Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.2012, Page 9

Skinfaxi - 01.11.2012, Page 9
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 9 – Niðurstöður rannsóknanna liggja nú fyrir. Hvað segja þær í stórum dráttum? „Þær undirstrika í rauninni það sem við höfum vitað lengi um forvarnagildi íþrótta. Það er algjörlega ljóst að ungmenni, sem eru sterklega tengd íþróttastarfi, eru í miklu betri málum en önnur. Þau standa sig betur í skóla, þeim líður betur, þau fá hærri einkunnir, nota minni vímuefni, þannig að tengslin eru endalaust jákvæð þarna á milli. Mestu máli skiptir að krakk- arnir séu glöð og ánægð en það er það sem heldur þeim áfram í íþróttunum. Auð- vitað eru fleiri þættir sem þarna skipta máli og má nefna góð tengsl við fjölskyldu, for- eldra og jafningjahóp. Það sem er hins vegar merkilegt við þetta núna og kemur glögglega í ljós á línuritum, þegar við ber- um saman stærstu félögin, er að ánægjan með íþróttaaðstöðuna skorar frá 38% upp í 100%. Með þessu móti og því að fá samanburð beint í andlitið getum við séð hvar skórinn kreppir. Mikilvægast af öllu er að aðilar, sem voru í rannsókninni, nýti niðurstöður, það er algjört lykilatriði. Við höfum talað fyrir því í mörg ár að þeir sem vinna á vettvangi með ungmennum þurfi að fá upplýsingar strax. Það þýðir ekki að koma með 2–3 ára niðurstöður og segja: Svona var þetta árið 2009. Þess vegna leggjum við gríðarlegt kapp á að koma upplýsingunum út eins fljótt og hægt er. Sveitarfélög, sem í búa um 80% lands- manna, eru komin með niðurstöður innan þriggja mánaða,“ sagði Jón Sigfússon. Aðspurður, hvort álíka könnun hefði verið unnin innan Norðurlandanna eða annars staðar, sagði Jón svo ekki vera. Hann sagði þó að samanburður við aðrar þjóðir væri til í ýmsum þáttum. Jón taldi að Ísland væri eina landið í Evrópu sem legði fyrir þýðisrannsóknir á hverju einasta ári. Hann sagði að það sem réði því að þetta væri hægt væru nemendur sjálfir. Þeir og skól- arnir væru stærstu samstarfsaðilarnir en frá þeim fengju þeir sem vinna rannsókn- ina upplýsingarnar um hvað ungmennin vilja og hvernig þeim líður. „Við erum tilbúin að halda svona rann- sóknum áfram en það fer samt allt eftir óskum og vilja hreyfinganna sjálfra. Það kallar á talsverðan undirbúning hjá okkur að setja inn þessa spurningaklasa. Við von- um að þetta haldi áfram en það er ekki okkar að ákveða það,“ sagði Jón Sigfússon hjá Rannsóknum og greiningu í spjalli við Skinfaxa. Mikilvægast af öllu er að aðilar, sem voru í rannsókninni, nýti niðurstöður, það er algjört lykilatriði.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.