Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.2012, Page 20

Skinfaxi - 01.11.2012, Page 20
20 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Ungmennafélagið Þróttur í Vogum varð 80 ára þann 23. október sl. og í því tilefni var haldin afmælishátíð laugardaginn 27. október. Veitt voru heiðursverðlaun, skrif- að var undir samstarfssamning Þróttar og sveitarfélagsins Voga og skemmtiatriði voru börnunum til ánægju. Um aldamótin 1900 hafði starfað ung- mennafélag í Vatnsleysustrandarhreppi en það hafði lagst af 1920. Ungmenna- félagið Þróttur var stofnað 23. október 1932. Í fyrstu stjórn UMFÞ voru: Jakob A. Sigurðsson, Sólheimum (formaður), Helgi Magnússon, Sjónarhóli, Einar Samúelsson, Austurkoti í Vogum, Pétur G. Jónsson, Nýjabæ í Vogum, og Guðmundur B. Jóns- son, Brekku í Vogum. Á öðru starfsári félagsins var ráðist í að byggja félagsheimili í samstarfi við kven- félagið Fjólu. Um jólin 1933 var nýja húsið vígt og fékk nafnið Kirkjuhvoll. Stendur það enn í dag á Vatnsleysuströnd. Tuttugu árum síðar keyptu UMFÞ, kvenfélagið Fjóla og Vatnsleysustrandarhreppur sam- komuhúsið Glaðheima í Vogum sem stóð við Vogagerði 21–23. UMFÞ hélt frá upphafi úti blaði sem nefndist Vitinn. Blaðið var í bókarformi og gekk á milli félagsmanna (ritstjóra) sem skrifuðu ýmislegt í bækurnar til skemmt- unar og fróðleiks. Búið er að ljósrita bæk- urnar og binda inn þannig að þær eru aðgengilegar en upprunalegu bækurnar eru varðveittar í Landsbókasafni Íslands. Ýmis menningar- og félagsmálefni hafa verið á vegum UMFÞ í gegnum tíðina. Félagið hefur m.a. rekið unglingaskóla og staðið fyrir ýmiss konar menningarviðburð- um í sveitarfélaginu. Mest fer nú fyrir íþróttastarfi innan félagsins og leggja börn og unglingar stund á það. Megin- áhersla er lögð á sund, knattspyrnu og júdó. Kristján Árnason, núverandi formaður Ungmennafélagsins Þróttar, sagði í sam- tali við Skinfaxa að í tilefni afmælisins hefði verið gefið út rit þar sem farið var yfir sögu Þróttar og var því dreift til félaga og bæj- arbúa. Haldin var afmælishátíð þar sem tímamótanna var minnst og öllum í bæn- um var boðið til kaffisamsætis. Haldnar voru ræður og við þetta tækifæri skrifaði Þróttur undir nýjan samstarfssamning við sveitarfélagið. Þá voru nokkrir einstakl- ingar heiðraðir fyrir störf sín fyrir félagið. „Starfið innan Þróttar gengur mjög vel. Við réðum nýjan framkvæmdastjóra í sum- ar og jukum starfshlutfall hans í 50% og það held ég að hafi gert gæfumuninn. Ungmennafélagið Það er töluverð umsjón að halda utan um svona rekstur og því var nauðsynlegt að auka starfshlutfall nýs framkvæmdastjóra. Við gerðum einnig í kjölfarið ákveðnar breytingar sem hafa orðið til góðs fyrir félagið. Það má segja að þegar á allt er Tinna Hallgríms- dóttir, framkvæmda- stjóri Þróttar, og Kristján Árnason, formaður Þróttar. Heiðursverðlaun voru veitt á afmælishófinu.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.