Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.2012, Side 33

Skinfaxi - 01.11.2012, Side 33
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 33 Héraðssamböndin á Vesturlandi og sunnanverðum Vestfjörðum skrifuðu ný- lega undir viljayfirlýsingu um samstarf í frjálsum íþróttum á Vesturlandi og nær- svæðum. Héraðssamböndin, sem hér um ræðir, eru Ungmennasamband Borgar- fjarðar, Héraðssamband Snæfellsness og Hnappadalssýslu, Ungmennasamband Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga, Ung- mennafélagið Skipaskagi, Héraðssam- bandið Hrafna-Flóki, Héraðssamband Strandamanna og Ungmennafélag Kjal- nesinga. Einnig koma Frjálsíþróttasamband Íslands og Ungmennafélag Íslands að sam- komulaginu sem ber nafnið SamVest. Sam- starfið er tilraunaverkefni sem á að styrkja frjálsar íþróttir á svæðinu. Samkomulagið er til þriggja ára. „Með samstarfinu teljum við okkur standa sterkari og að við náum því að rífa frjálsar íþróttir upp úr þeirri lægð sem þær voru komnar í. Við sjáum fram á gott sam- starf í þessum efnum. Núna er stefnan að vera með sameiginlegar æfingar en þær vorum við einnig með sl. sumar í Borgar- nesi, með góðum árangri. Einnig ætlum við að æfa saman í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal þegar færi gefst. Við verðum Samstarf héraðssambanda um frjálsar íþróttir á Vesturlandi og sunnanverðum Vestfjörðum: „Ekki í nokkrum vafa um að samstarfið á eftir að efla okkur“ Jóhanna Sigrún Árnadóttir, UDN, Birgitta M. Valsdóttir, UMFK, Garðar Svansson, UMFG, Lóa Björk Hallsdóttir, FRÍ, og Ásgeir Ásgeirsson frá UMSB skrifa undir samkomulagið en að því loknu var samæfing í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Með þeim á myndinni eru krakkar frá viðkomandi héraðssamböndum. einnig með sameiginleg héraðsmót í Borg- arnesi. Við sendum reyndar sameiginlegt lið í bikarkeppni FRÍ á liðnu hausti sem gafst mjög vel. Ég er ekki í nokkrum vafa um að samstarfið á bara eftir að efla starf okkar og um leið frjálsar íþróttir,“ sagði Hrönn Jónsdóttir, framkvæmdastjóri UMSB, í samtali við Skinfaxa.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.