Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.2012, Side 38

Skinfaxi - 01.11.2012, Side 38
38 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Átta fulltrúar frá UMFÍ tóku þátt í námskeiði og ráðstefnu sem NSU (Nordisk Samorganisation for Ung- domsarbejde) hélt í Danmörku fyrir skemmstu. Skinfaxi settist niður með hópnum og ræddi við þau um þema námskeiðsins, hvernig laða megi ungmenni til starfa innan rótgróinna félaga, hvað þau fengu út úr ferðinni, stranga vinnutörn í Danmörku og ryðgaða skóladönskuna. Námskeiðið var haldið á Helsingjaeyri (Helsingør), í ríflega 46.000 manna bæ um 45 kílómetra norður af Kaupmannahöfn. Helsta kennileiti bæjarins er Krónborgar- kastali, sögusvið Hamlets eftir William Shakespeare. Ljósin í Helsingborg í Svíþjóð blasa við af eyrinni. Hvergi er styttra yfir Eyrarsundið en á milli bæjanna tveggja, aðeins 4,5 km. Íslenski hópurinn kom á áfangastað seinni part föstudags, eftir örlítinn þvæling um bæ- inn í aðventurökkrinu. Það er snjóföl á vegin- um, veturinn er kominn til Danmerkur. Því var búið að lofa í Politiken fyrir helgina. Að auki eru mættir fulltrúar frá Eistlandi, Slésvík- urhéraði, Svíþjóð, Finnlandi, Grænlandi, Fær- eyjum, Noregi og Danmörku, alls tæplega 40 þátttakendur. Þeim var skipt upp í þrjá smærri hópa sem hver um sig leitaðist við að svara spurningunni „Hvernig er hægt að virkja ung- menni til þátttöku í skipulögðu félagsstarfi?“ Vinnutarnirnar í hópunum samanstóðu af þankahríð og stuttum hreyfileikjum, sem Danir eru mjög hrifnir af. Þess á milli var hópn- um safnað saman í aðalsal farfuglaheimilisins og farið í leiki og gerðar æfingar til að víkka hugann. Á laugardeginum fór hópurinn í Louisisana-nútímalistasafnið í Humlebæk, um tíu kílómetra til suðurs. Safnið er fjölsótt- asta listasafn Danmerkur. Það hefur komið sér upp verðmætu safni eftir helstu listamenn tuttugustu aldarinnar fyrir utan að safnbygg- ingin þykir listaverk út af fyrir sig. „Heimsókninni var ætlað að veita okkur innblástur. Ekki efast ég um að það hafi tek- ist,“ segir Egill Gunnarsson, hálfþrítugur Aust- firðingur, sem var mjög ánægður með ferðina á Louisiana. „Útisvæðið hjá Louisiana er troð- fullt af skúlptúrum eftir marga þekktari mynd- höggvara samtímans. Inni var sjálfsmynda- sýning þar sem mátti finna verk eftir frægustu myndlistarmenn 20. aldar ásamt sögu hverrar sjálfsmyndar.“ Við heimkomu á farfuglaheimilið byrjaði vinnan fyrir alvöru. Hugmyndir hópanna átti að kynna fyrir stjórn NSU sem kom í heim- sókn um kaffileytið á sunnudeginum. Stjórn- in gerði síðan athugasemdir við verkefnin sem voru lagfærð enn frekar fyrir formlega kynningu á ráðstefnunni í Kaupmannahöfn á þriðjudeginum. Sunnudagurinn varð því býsna strangur. „Námskeiðið var langt og erfitt. Unnið var allan daginn fram á kvöld og hvíldir voru fáar og stuttar. Það var því þó nokkur léttir þegar vinnunni lauk seint á sunnudagskvöldi,“ segir Egill en hópurinn hans vann fram á aðfaranótt mánudags. Aðrir kláruðu fyrr. „Hópurinn minn fullkláraði kynninguna skömmu eftir kvöldmat og við gátum slakað á restina af kvöldinu,“ segir Orri Davíðsson sem starfar í félagsmiðstöð á Selfossi. Fyrir ferðina hugsaði ég „mig langar“ „Tengslin gætu reynst ómetanleg í komandi tíð en jafnframt hreifst ég með af metnaði þess, skoðun- um og hugmyndaauðgi.“ UMFÍ-hópurinn í ráðstefnulok, frá vinstri: Orri, Hafþór, Eygló, Kolbrún, Egill, Elísabet, Gunnar og Valdís. Útskrifaður í dönsku. Egill kynnir niðurstöður hóps síns.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.