Morgunblaðið - 01.11.2012, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2012
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Skoðum líkamann er kennslu-bók í þrívídd um líkamannfyrir blind og sjónskertbörn á aldrinum 6 til 8 ára.
Bókin er lokaverkefni Höllu Sigríðar
Margrétardóttur Haugen, eða Höllu
Siggu, í grafískri hönnun frá
Listaháskóla Íslands. Eftir því sem
best er vitað er bókin sú fyrsta sinn-
ar tegundar í heiminum.
Hugmynd sem vatt upp á sig
„Mér finnst gaman að komast á
sýningar þar sem má snerta hluti og
hef mikla snertiþörf fyrir áferð efna
og öðru slíku. Eftir mikla sjálfs-
skoðun varð þetta til þess að ég fór í
heimsókn á Þjónustu- og þekkingar-
miðstöð fyrir blinda, sjónskerta og
daufblinda. Þar sá ég mjög fallegar
bækur sem eru til fyrir blind börn í
dag, yfirleitt stuttar myndasögur
sem ætlaðar eru til að kenna þeim að
þekkja hluti í umhverfinu. Slíkar
bækur eru þó ekki skráðar sem
kennslubækur og þegar ég fór að
tala við starfsfólk miðstöðvarinnar
komst ég að því að lítið sem ekkert
er til af kennsluefni með myndum
fyrir þessi börn. Þetta sat í mér enda
finnst mér nærri ógerlegt að hafa t.d.
átt að læra líffræði í grunnskóla án
þess að sjá myndir. Með bókinni
minni vonast ég því til að byrja á því
að koma til móts við þessa vöntun.
Ég leitaði ráða hjá fólki um allan bæ
um hvernig best væri að búa til slíka
bók en það var í samtali við manninn
minn sem þrívíddarprentun kom
Áþreifanleg
líffræði
Skoðum líkamann er áþreifanleg kennslubók um lík-
amann fyrir blind og sjónskert börn á aldrinum 6 til 8
ára. Bókinni er skipt upp eftir hlutum líkamans og í
henni er að finna verkefni sem þeim tengjast.
Morgunblaðið/Golli
Hönnuður Bókin er lokaverkefni Höllu Siggu í grafískri hönnun.
Morgunblaðið/Golli
Þrívíð Í bókinni eru fígúrur sem hægt er að lyfta upp og þreifa á.
Menningarmiðstöðin á Egilsstöðum,
hið frábæra Sláturhús, er dugleg við
að halda fólki við menningarefni. Þar
er alltaf eitthvað skemmtilegt um að
vera og hægt að skoða á heimasíð-
unni www.slaturhus.is hvað er á dag-
skránni hverju sinni. Núna frá 1.-11.
nóvember verða átta viðburðir á tíu
dögum og ekki af lakara taginu.
Heimildarmyndin Hreint hjarta eftir
Grím Hákonarson verður sýnd sem
og Djúpið, vinnustofur listamanna
verða opnar, karókí, flóamarkaður og
ljóðskáld lesa úr verkum sínum.
Menningarveislunni lýkur svo með
stórtónleikum laugardagskvöldið 10.
nóv. með hljómsveitinni VALDIMAR.
Vefsíðan www.slaturhusid.is
Vinsæl Hljómsveitin Valdimar hefur heldur betur skapað sér góðan orðstír.
Dagar myrkurs í Sláturhúsinu
Þau leiðu mistök urðu hér á
síðum Daglega lífsins fyrir
nokkru að í viðtali við
Akeem Cujo, eiganda nýrrar
ferðaskrifstofu sem heitir
AnaConDa Ventures
gleymdist að setja inn slóð-
ina á vefsíðu fyrirtækisins.
Beðist er velvirðingar á
þessu og slóðin hér með
birt:
www.anacondavent-
ures.com
Ævintýraferðir til Gana
Anacondaventures á vefnum
Dans Ganabúar eru liðtækir í dansi.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Laugavegi 47, sími 552 9122 Laugavegi 47, sími 551 7575
25% afsláttur af
úlpum, leðurjökkum og buxum
Fimmtudag, föstudag og langan laugardag
Faxafen 10 • 108 Reykjavík • sími 568 2878 • Opið mán.- fös. kl. 11.00-18.00 og lau. 11.00-15.00
friendtex.is • praxis.is • soo.dk
Pantið vörulista
á sala@soo.is
Teg. 25180
Litir: Svart-Hvítt
Str. 36-46
Verð kr. 7.990,-
Útsöluvörur - Frábær tilboð
Teg. 51142
Afrafmagnaðir
Litir: Svart-Hvítt
St. 35-46
Verð 15.900,-
15%
AFSLÁTTUR
af barnafötum