Morgunblaðið - 01.11.2012, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2012
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Kristín Kalmansdóttir, sviðsstjóri
stjórnsýslusviðs Ríkisendurskoðun-
ar, segist ekki sjá að kostnaður við
fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins
(Orra) hafi verið óhóflegur. Rekstur
kerfisins kostaði 584 milljónir í
fyrra, en það ár nam símakostnaður
ríkisins 1.083 milljónum.
Ríkisendurskoðun kynnti á blaða-
mannafundi í gær skýrslu Ríkisend-
urskoðunar um innleiðingu og kostn-
að við Orra.
Heildarkostnaður við Orra á ár-
unum 2001-2011 nam 5,9 milljörðum,
en þar af nam stofnkostnaður 1,5
milljörðum. Samkvæmt kaupsamn-
ingi átti kostnaðurinn að vera einn
milljarður. Kostnaðurinn fór því 41%
fram úr áætlun miðað við verðlag
ársins 2001. Engin áætlun var gerð á
sínum tíma um rekstrarkostnað
Orra.
Sveinn Arason ríkisendurskoð-
andi benti á að 12 sjúkrahús í Dan-
mörku hefðu tekið upp nýtt fjár-
hagsupplýsingakerfi og kostnaður
við það hefði verið 5,2 milljarðar.
Rekstrarkostnaður við fjárhagsupp-
lýsingakerfi bankanna væri um 15
milljarðar á ári.
Ríkisendurskoðun gerði í október
könnun meðal forstöðumanna hvern-
ig þætti að vinna í Orra. Niðurstað-
an var sú að 80% sögðu að vandamál
hefðu komið upp við innleiðinguna
en 90% töldu að þau væru að mestu
eða öllu leyti leyst. 70% töldu virkni
Orra í samræmi við þarfir sinnar
stofnunar. 45% töldu kerfið aðgengi-
legt og 50% töldu kerfið skilvirkt
stjórnkerfi. Það voru helst forstöðu-
menn smærri stofnana sem töldu
kerfið ekki aðgengilegt eða skilvirkt,
en þeir notuðu kerfið minna en for-
stöðumenn stærri stofnana.
Þinginu veittar misvísandi
upplýsingar í upphafi
Þegar nýtt fjárhags- og mann-
auðskerfi var fyrst kynnt fyrir Al-
þingi árið 2001 kom fram að kostn-
aður við kerfið yrði 160 milljónir.
Samt lá fyrir í fjármálaráðuneytinu
á þeim tíma áætlun um að kostnað-
urinn yrði um 800 milljónir. Ríkis-
endurskoðun gagnrýnir í skýrslu
sinni að Alþingi hafi ekki verið upp-
lýst um kaupverð Orra fyrr en í
október 2001. Upplýsingar til þings-
ins hafi því verið misvísandi. Í fjár-
lagafrumvarpinu 2002 kemur hins
vegar fram að áætlaður kostnaður
við innleiðingu og rekstur Orra á ár-
unum 2001-2003 er 1,3 milljarðar.
Kostnaður vegna Orra hefur alltaf
verið innan fjárheimilda nema árin
2001 og 2004.
Kostnaður af Orra
var ekki óhóflegur
Heildarkostnaður við Orra er 5,9 milljarðar á 10 árum
Morgunblaðið/Kristinn
Ríkisendurskoðun Sveinn Arason ríkisendurskoðandi og Ingunn Ólafsdóttir sérfræðingur kynntu skýrslu Ríkis-
endurskoðunar um Orra, ásamt Kristínu Kalmansdóttur, sviðsstjóra stjórnsýslusviðs Ríkisendurskoðunar.
Skafti Harðarson hefur fyrir hönd
Samtaka skattgreiðenda sent emb-
ætti skattrannsóknarstjóra ríkisins
ítrekunarbréf, þar sem hann krefst
þess að embættið taki málefni DV
ehf., útgáfufélags DV, til rannsóknar
vegna gruns um brot á lögum um
staðgreiðslu opinberra gjalda, lög-
um um virðisaukaskatt og almenn-
um hegningarlögum.
Tildrög málsins eru þau að 30.
september sl. sendi Skafti sér-
stökum saksóknara bréf þar sem
hann kærði rekstrarfélag DV ásamt
fyrirsvarsmönnum og framkvæmda-
stjóra félagsins og vísaði í fréttir
þess efnis að samkvæmt ársreikn-
ingi útgáfufélagsins hefði það í lok
júlí á líðandi ári skuldað tugi
milljóna í
ógreidda vörslu-
skatta, það er
innheimtan
virðisaukaskatt
og staðgreiðslu
opinberra gjalda.
Í byrjun október
kom fram í
Fréttablaðinu að
útgáfufélag DV
skuldaði 76 millj-
ónir í opinber gjöld.
Skafti segir að embætti sérstaks
saksóknara hafi brugðist skjótt við
og í bréfi dagsettu 3. október hafi
það sagt að kæran hafi verið fram-
send til embættis skattrannsóknar-
stjóra ríkisins. Frá því hafi hann
hins vegar ekkert heyrt og því sent
ítrekunarbréf til embættisins sl.
föstudag.
„Það er alveg ljóst að þarna er
verið að mismuna mönnum fyrir lög-
um og fyrir stjórnarskránni, menn
fá ekki sömu meðferð,“ segir Skafti
um kæruna og vísar til dóma-
fordæma máli sínu til stuðnings.
Hann segir að háttsemi fyrirsvars-
manna útgáfufélags DV teljist
„meiri háttar brot“ í skilningi al-
mennra hegningarlaga og spyr
hvort meðvitað eigi að sleppa þeim
við rannsókn og hugsanlega
refsingu.
Morgunblaðið reyndi ítrekað að
ná í skattrannsóknarstjóra í gær en
skilaboðum var ekki svarað.
Samtök skattgreiðenda
ítreka kæru á hendur DV
Embætti skattrannsóknarstjóra hefur ekki brugðist við
Skafti
Harðarson
Sveinn Arason ríkisendurskoð-
andi segist sannfærður um að
hægt sé að leysa þau mál sem
upp hafi komið í samskiptum
Alþingis og Ríkisendurskoð-
unar. Með þessari skýrslu sé
Ríkisendurskoðun búin að
leggja fram grunn sem hægt sé
að byggja á við umfjöllun um
innleiðingu og kostnað við Orra,
en nokkrir þingmenn hafa gagn-
rýnt Ríkisendurskoðun harðlega
vegna tafa við vinnu við skýrsl-
una.
„Ég hef fulla trú á að þing-
menn sem skoða þessa skýrslu
muni komast að þeirri niður-
stöðu að það sé skynsamlegt að
styðja við bakið á þeirri eftir-
litsstofnun sem er að vinna fyrir
þá,“ sagði Sveinn.
Sveinn sagðist njóta fulls
stuðnings forseta Alþingis til að
gegna áfram stöðu ríkisend-
urskoðanda.
Nýtur trausts
þingforseta
RÍKISENDURSKOÐANDI
198
7 - 2012
25 ár
Klappastíg 44
Sími 562 3614
25 ÁRA AFMÆLI
25% AFSLÁTTUR AF ALLRI MATVÖRU
25 ÁRA AFMÆLISTILBOÐ
fimmtudag 1 nóv. til laugardags 3 nóv.
MultiMaster
fjölnotavél
slípar - sagar - skefur
raspar - brýnir - o.fl.
F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð
Skeifan 3 E-F • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is