Morgunblaðið - 01.11.2012, Side 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2012
Tenórsöngvarinn Gissur Páll Giss-
urarson kemur fram á tónleikum í
Hömrum á Ísafirði í kvöld, fimmtu-
daginn 1. nóvember. Með honum
leikur píanóleikarinn Árni Heiðar
Karlsson.
Þetta eru fyrstu áskriftar-
tónleikar Tónlistarfélags Ísafjarðar
á þessu starfsári og hefjast þeir
klukkan 20.
Þeir Árni Heiðar og Gissur Páll
hófu samstarf sitt árið 2008, og
hafa síðan komið fram við fjölmörg
tækifæri. Á tónleikunum í kvöld
flytja þeir einkum íslensk einsöngs-
lög, þar sem áhersla er lögð á að
leiða hlustandann inn í heim túlk-
andans og nálgast tónlistina frá
sjónarhorni flytjendanna. Áhersla
verður þannig lögð á nálægð og
innlifun, bæði flytjenda og hlust-
enda.
Á dagskránni verða fjölmörg
þekkt einsöngslög á borð við
„Draumalandið“, „Í fjarlægð“ og
„Hamraborgina“. Auk þess munu
félagarnir flytja úrval evrópskra
sönglaga.
Áskriftarkort Tónlistarfélags
Ísafjarðar gilda á tónleikana en
einnig eru seldir miðar við inn-
ganginn á 2.000 kr. Aðgangur er
ókeypis fyrir nemendur.
Söngvarinn Gissur Páll mun syngja
bæði íslensk og erlend einsöngslög.
Gissur Páll á tónleikum á Ísafirði
Hin árlega „Tónlistarveisla í
skammdeginu“, sem menningar- og
safnanefnd Garðabæjar gengst fyr-
ir, verður haldin í kvöld, fimmtu-
dag, í göngugötunni á Garðatorgi.
Í tónlistarveislu ársins stígur hin
gamalkunna hljómsveit Jet Black
Joe á svið. Hljómsveitin heldur upp
á 20 ára afmæli á þessu ári, með
tónleikahaldi og útgáfu safndisks.
Forsprakkarnir Páll Rósinkrans og
Gunnar Bjarni Ragnarsson mæta á
Garðatorgið ásamt meðleikurum
og spila valinkunn lög.
Þetta er í ellefta sinn sem tónlist-
arveislan er haldin á Garðatorgi og
hafa Garðbæingar, sem og aðrir
tónlistarunnendur, iðulega kunnað
vel að meta og fjölmennt á torgið.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21 og
standa í rúma klukkustund. Sama
kvöld verður einnig opið hús í sal
Grósku á Garðatorgi þar sem gestir
og gangandi geta skoðað myndlist
frá klukkan 18 til 23.
Aðgangur að tónlistarveislunni
er ókeypis og allir velkomnir.
Rokkarar Gunnar Bjarni og Páll Rós-
inkrans leika ásamt félögum sínum.
Jet Black Joe leikur á Garðatorgi í kvöld
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Titillag disksins er þemalagið úr
myndinni Cinema Paradiso sem
ítalska tónskáldið Ennio Morricone
samdi. Raunar má segja að það svífi
ítölsk stemning yfir þessum diski,“
segir Jónas Þórir píanóleikari um
diskinn Paradiso sem hann og Matt-
hías Stefánsson fiðluleikari nýverið
sendu frá sér. Á disknum má finna
þrettán lög, m.a. þemalagið úr kvik-
myndinni Schindler’s List eftir John
Towner Williams, „Gabriels’s Obo“
eftir Morricone, þemalagið úr Il Post-
ino eftir Luis Enrique Bacalov,
„Summertime“ eftir George
Gerschwin og „Szymon“ eftir Ólaf
Þórðarson sem flutt er í minningu
tónskáldsins á diskinum, en Matthías
spilaði árum saman með Ólafi.
„Þetta eru lög sem við Matthías
höfum spilað við ýmsar kirkjulegar
athafnir í gegnum tíðina,“ segir Jón-
as Þórir þegar hann er spurður um
lagavalið á disknum. „Þessi diskur er
ætlaður öllum sem vilja hafa rólegt
heima sér og slaka á yfir rauðvíns-
glasi. Þetta er svona létt klassík,“
segir Jónas Þórir.
Lítið menningarlegt útgáfu-
fyrirtæki með mikinn metnað
Aðspurður segir Jónas þá Matt-
hías hafa spilað saman í tæpan ára-
tug. „Vinur minn benti mér á hann
þegar ég var að leita að fiðluleikara.
En segja má að Matti hafi gengið
mér í föðurstað,“ segir Jónas Þórir og
hlær þegar blaðamaður hváir enda er
Matthías talsvert yngri en Jónas Þór-
ir. Til útskýringar segir Jónas Þórir:
„Við faðir minn, Jónas Þórir Dag-
bjartsson fiðluleikari, lékum saman
þar til hann var orðinn 81 árs gamall.
Við sáum um tónlistarflutning í öllum
opinberum veislum í rúm tuttugu ár
og lékum fyrir kóngafólk, forseta og
ráðherra. Við Matti náðum strax
mjög vel saman, enda höfum við báðir
mjög gaman af því að spila ekki alveg
eftir nótum heldur leika okkur með
efnið og spinna. Við göngum kannski
hvað lengst í spunanum í laginu
„Summertime“,“ segir Jónas Þórir.
Jónas Þórir og Matthías halda út-
gáfutónleika í Þjóðmenningarhúsinu
nk. sunnudag kl. 20. „Okkur finnst
salurinn þar einstaklega fallegur auk
þess sem hljómurinn er afbragðs-
góður. Við tókum diskinn upp á þess-
um stað,“ segir Jónas Þórir og út-
skýrir að diskurinn hafi verið tekinn
upp á tónleikum fyrir vini í ágúst sl.
„Þetta er því lifandi spilamennska á
disknum.“
Paradiso er fyrsti diskurinn frá út-
gáfufyrirtæki Jónasar Þóris og Matt-
híasar sem nefnist A.M.M. ehf.
„Skammstöfunin stendur fyrir Arte
Mano Musica. Við ætlum að vera lítið
útgáfufyrirtæki sem er menning-
arlegt og rekið með miklum metnaði.
Snemma á næsta ári sendum við frá
okkur disk sem verið hefur í vinnslu í
hálft annað ár. Þar er um að ræða
vögguvísur fyrir lítil börn þar sem við
Matti spilum, en Egill Ólafsson og
Sigríður Thorlacius syngja. Þetta
verður blanda af nýju og gömlu efni,
bæði íslenskt og erlent, en allt sungið
á íslensku. Að ári munum við Matti
síðan senda frá okkur disk eingöngu
með íslenskum dægurlögum í flutn-
ingi okkar tveggja.“
Ljósmynd/Jón Svavarsson
Vinir Jónas Þórir og Matthías Stefánsson hafa starfað lengi saman.
„Matti hefur gengið
mér í föðurstað“
Jónas Þórir og Matthías Stefánsson gefa út Paradiso
ÁLFABAKKA
16
7
L
L
12
VIP
16
16
16
7
EGILSHÖLL
12
12
L
16
16
HOPE SPRINGS KL. 5:50 - 8 - 10:10
FRANKENWEENIE SÝNDÍ3DMEÐÍSLTEXTAKL. 6 - 8 - 10
END OF WATCH KL. 5:40 - 8 - 10:20
END OF WATCH VIP KL. 5:40 - 8 - 10:20
LOOPER KL. 10:20
SAVAGES KL. 8
THE CAMPAIGN KL. 5:50
LAWLESS KL. 10:40
BRAVE ÍSL.TALI KL. 5:50
L
12
16
KEFLAVÍK
SKYFALL KL. 8 - 11
HOPE SPRINGS KL. 8
END OF WATCH KL. 10:10
AKUREYRI
7
L
L
16
16
16
FRANKENWEENIE SÝNDÍ3DMEÐÍSL TEXTAKL.6
LAWLESS KL. 8
LOOPER KL. 10:20
BRAVE ÍSL.TALI KL. 6
HOPE SPRINGS KL. 8
END OF WATCH KL. 10:20
Entertainment Weekly
BoxOffice.com
16
Ein besta mynd ársins!
- Boxoffice Magazine
JOSEPH
GORDON-LEVITT
BRUCE
WILLIS
EMILY
BLUNT
HAUNAST
FRÁ LEIKSTJÓRANUM TIM BURTON
12
16
16
7
KRINGLUNNI
UPPLIFÐU NÝJA SAMBÍÓIÐ KRINGLUNNI
SKYFALL NÚMERUÐ SÆTI
KL. 5 - 6 - 7 - 8 - 9 - 10
HOUSE AT THE END OF THE STREET
KL. 11 FORSÝNING 2 FYRIR 1 MIÐNÆTUR
SPRENGJA
HOPE SPRINGS KL. 5 L
12
12
UPPLIFÐU NÝJA
SAMBÍÓIÐ Í
KRINGLUNNI
SKYFALL KL. 5 - 8 - 10:20 - 11
FRANKENWEENIE SÝNDÍ3DMEÐÍSLTEXTA KL. 6
END OF WATCH KL. 5:40 - 8 - 10:20
HOPE SPRINGS KL. 5:40 - 8
LOOPER KL. 8
LAWLESS KL. 10:30
-FBL
-FRÉTTATÍMINN
Entertainment Weekly New York Observer Empire Boxoffice.com
L
FORSÝND Í KRINGLUNNI
KL. 23 Í KVÖLD
JENNIFER LAWRENCE ÚR HUNGER
GAMES, HÖRKU SPENNUTRYLLIR
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Faxafen) ◊ 108 Reykjavík ◊ Sími 588 4499 ◊ mostc.is ◊ Möst.C
Opið alla virka daga 12-18 og laugardaga frá 11-16
Tískuvöruverslun fyrir konur á öllum aldri
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
30% afsláttur
af öllum
peysum og pu
leðurjökkum