Morgunblaðið - 01.11.2012, Page 21

Morgunblaðið - 01.11.2012, Page 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2012 Margir sérfræðingar eru á því að landganga Sandy og eyðileggingin í kjölfar fellibylsins hefði ekki átt að koma neinum á óvart. Bráðnun heimskautaíssins, hækkandi sjávar- borð, hlýnun lofthjúpsins og veðra- breytingar muni líklega ala af sér fárviðri og áhlaðanda af áður óþekktri stærðargráðu. „Sandy er forsmekkurinn af því sem koma skal,“ sagði Michael Oppenheimer, prófessor í jarðvísind- um við Princeton-háskóla, í samtali við CNN í gær. Oppenheimer hannaði nýlega líkan af áhrifum loftslagsbreytinga á sjávarágang í óveðrum á New York- svæðinu en í grein eftir hann og þrjá kollega hans, sem birtist í vísinda- tímaritinu Nature í febrúar síðast- liðnum, komust þeir að þeirri niður- stöðu að „stormur aldarinnar“ verði í framtíðinni „stormur hverra tuttugu ára eða minna“. Þá segja félagarnir líkur á að lofts- lagsbreytingar muni auka bæði styrk og stærð illviðra en Sandy var til að mynda um 1.500 km að þver- máli, eða mun umfangsmeiri en flestir fellibyljir. Ríkisstjóri New York-ríkis, And- rew Cuomo, sagði á þriðjudag að það ætti ekki að koma neinum á óvart að veðrið væri að breytast en það hefur vakið sértaka athygli að í kosninga- baráttunni vestanhafs hafa loftslags- breytingar nánast ekkert verið til umræðu. AFP Stormur Nýir leigubílar á floti í sjó í Hoboken í New Jersey á þriðjudag. Forsmekkur af því sem koma skal  Spá hamfarastormum á 20 ára fresti Orkuskot sem virkar strax! Lífrænt grænmetisduft fyrir alla Heilbrigð orka úr lífrænni næringu og fullt af andoxunarefnum Eykur vellíðan, skerpir hugsun, heilbrigði og frísklegt útlit. Börn, unglingar og fullorðnir finna mun á orku og úthaldi - Fyrir íþróttaæfingar, skólann og vinnuna Gefur góða líðan og dregur úr sælgætislöngun Blóðsykursjöfnun úr grænmeti er æskilegust fyrir alla. Kjörið fyrir sykursjúka. Meðmæli næringafræðinga - 100% náttúrleg uppspretta Brokkál Spínat Rauðrófur Salatkál – Gulrætur – Steinselja lífræn bætiefni fyrir allaFæst í: Lifandi markaður, Lyfjaveri, Krónunni og Hagkaup Ekkert erfðabreytt – Ekkert skordýraeitur – Engar geymslugeislanir Engin aukaefni, litar- eða bragðefni. Svarið við spurningu dagsins Fylgifiskar - Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Sími 533 1300 - fylgifiskar.is JÓLAHLAÐBORÐ Fyrir heimili og vinnustaði Makrílkæfa með ristuðum kókos, döðlum og greipaldin Grafin rauðspretta með piparrótarrjóma Reyktur lax á blinis Síldartvenna Hreindýrabollur með bláberjagljáa Reykt andabringa með rauðbeðu- og mandarínusalati Ostahleifur í hátíðarbúningi Hvít súkkulaði lime terta 4.500 kr. á mann miðað við 8 manns eða fleiri. Fylgifiskar veisluþjónusta 533-1300. Við erum byrjuð að taka pantanir fyrir jólahlaðborð. Jólahlaðborðin byrja síðustu vikuna í nóvember.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.