Morgunblaðið - 01.11.2012, Síða 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2012
OPNUNARTÍMI EFNALAUG
MÁN - FÖS: 8-18 • LAU: 11-13
OPNUNARTÍMI FATALEIGA
MÁN - FÖS: 13-17 • LAU: LOKAÐ
EFNALAUG OG FATALEIGA GARÐABÆJAR | GARÐATORGI 3 | GARÐABÆ | SÍMI 565 6680 | FATALEIGA.IS
Hröð og vönduð þjónusta. Fjölskyldufyrirtæki til 27 ára.
Persónuleg þjónusta og hagstætt verð.
Efnalaug Garðabæjar ætlar að láta
30% af andvirði
hreinsaðra guggatjalda
renna til mæðrastyrksnefndar
í nóvember
Komið tímanlega
Vaxandi eftirspurn eftir heróíni í
Kína hefur orðið til þess að ópíum-
rækt í Suðaustur-Asíu hefur tvö-
faldast á síðustu sex árum og ann-
ars staðar í heimsálfunni sjá sífellt
fleiri bændur sér hag í því að hefja
valmúaræktun.
Í nýrri skýrslu Fíkniefna- og af-
brotaskrifstofu Sameinuðu þjóð-
anna segir að fjórðung ópíumefna-
neytenda í heiminum sé nú að finna
í Austur-Asíu og við Kyrrahafið en
langstærsti hluti neytenda býr í
Kína, þar sem skráðir notendur
heróíns eru alls milljón talsins.
Hækkandi verð hefur haft þau
áhrif að bændur í Laos og Myan-
mar (Búrma), sem er næst stærsti
ópíumframleiðandi heims á eftir
Afganistan, leita sífellt inn á af-
skekktari lönd með valmúarækt
sína, til að komast undan eftirliti
yfirvalda.
Á þessu ári einu hefur ópíum-
framleiðsla í Laos aukist um 66%,
og nemur nú 6.800 hekturum lands,
og um 17% í Myanmar, þar sem
hún nemur nú 51.000 hekturum.
Samkvæmt skýrslu SÞ mun and-
virði ræktunarinnar í löndunum
tveimur árið 2012 nema 431 milljón
dollara, eða 54,5 milljörðum króna.
Þá eru 38 þúsund heimili talin
hafa tekjur af ræktuninni í Laos og
300 þúsund í Myanmar.
holmfridur@mbl.is
AFP
Hætta Eiturlyfjaneysla ungs fólks er sívaxandi vandi í Myanmar.
Ópíumrækt í
miklum vexti
Vaxandi eftirspurn eftir heróíni
Aukablað um bíla fylgir
Morgunblaðinu alla þriðjudaga