Morgunblaðið - 01.11.2012, Blaðsíða 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2012
Heill heimur
af ævintýrum
Fossaleyni 2, Grafarvogi, sími 586 1000
husgogn.is
Diesel.is | Klettháls 15 | 110 Reykjavík | Sími 578 5252 | diesel@diesel.is
www.fiat500.is
SKANNAÐU KÓÐANN OG
SKOÐAÐU MÁLIÐ BETUR
G
R
A
F
IK
E
R
.IS
2.670 ÞÚS. KR.*
NÝR FIAT 500 LOUNGE 2013 VERÐ KR.
Eyðir aðeins 4.8L á hundraði í blönduðum akstri.
*Miðað við gengi á euro 159
KYNNA&
sökunarbeiðni verði orðuð af ykk-
ur.“
„Vísað er til samtals okkar í dag,
16. nóvember. Samkvæmt lækna-
skrá sem birt er á vef Land-
læknisembættisins fékk Kári Stef-
ánsson (lnr. 1168) almennt og ótak-
markað lækningaleyfi hinn 10. júní
1977 og sérfræðileyfi í taugalækn-
ingum hinn 14. desember 1984. Kári
lauk prófi frá læknadeild Háskóla
Íslands árið 1976. Eitt af skilyrðum
sérfræðileyfis er að sjálfsögðu al-
mennt lækningaleyfi. Aðrar upplýs-
ingar eru ekki hjá Landlæknisemb-
ættinu um leyfisveitingar Kára
Stefánssonar. Hann hefur því fullt
og ótakmarkað lækningaleyfi á Ís-
landi. Sigurður Guðmundsson“
Dómsorð launsveitarinnar 18.
nóvember 2005 hljóðar:
„Í grein Jóhanns Tómassonar er
gefið í skyn að Kári Stefánsson
stundi lækningar án tilskilinna leyfa.
Þetta er rangt eins og meðfylgjandi
bréf Landlæknis sýnir. Nauðsynlegt
er að fjarlægja þessi ummæli taf-
arlaust og varanlega af vef Lækna-
blaðsins. Sjálfsagt er að biðja Kára
Stefánsson afsökunar á því að þessi
ummæli hafi verið birt. Greinin í
heild er til umfjöllunar hjá siða-
nefnd LÍ að beiðni stjórnar LÍ og er
rétt að bíða úrskurðar hennar hvort
þörf sé frekari aðgerða.“
Sigurbjörn Sveinsson, formaður
LÍ, átti frumkvæði að því að kæra
mig til siðanefndar. Kári Stefánsson
er heigull. Ragnar Aðalssteinsson
lögmaður minn óskaði ítarlegra
gagna 20. janúar 2006. Sigurbjörn
Sveinsson, fullur hroka, afhenti ekk-
ert:
„Ég vil hins vegar við þetta tæki-
færi mótmæla þeim áburði afdrátt-
arlaust, að stjórn Læknafélags Ís-
lands hafi beitt sér fyrir ritskoðun
greinar Jóhanns Tómassonar að
óskum Kára Stefánssonar. Ef nið-
urstaða nefndarinnar hefur hentað
Kára Stefánssyni eða fallið að fram-
settum kröfum hans, þá er það
stjórn Læknafélags Íslands alger-
lega óviðkomandi.“
Ragnar hótaði að kæra stjórn LÍ
vegna gagnaöflunar. Sigurbjörn
svaraði:
„Hvað varðar fyrra umkvörtunar-
efnið þá sendi félagið bréf til Siða-
nefndar, ásamt afriti af grein Jó-
hanns Tómassonar; „Nýi sloppur
keisarans“, og óskaði eftir því við
nefndina að hún tæki afstöðu til inni-
halds greinarinnar og kannaði hvort
í henni væru ummæli um Kára Stef-
ánsson sem stríddu gegn Siða-
reglum LÍ. Eins og kvörtunin er
sett fram telur félagið ekki þörf á
öðrum gögnum en greininni sjálfri
og siðareglunum. Rétt er að taka
fram að stjórn félagsins hefur ekki
tekið neina afstöðu til þess álitaefnis
hvort Jóhann hafi gerst brotlegur
gegn siðareglunum en stjórn félags-
ins ber engu að síður að hafa eftirlit
með og stuðla að því, að siðaregl-
urnar séu í heiðri hafðar. Leiki vafi á
því hvort svo sé í einstökum tilvikum
er það Siðanefndar að skera úr um.“
Stjórn LÍ lagði engin ákæruatriði
fyrir siðanefnd. Siðanefndin skil-
greindi engin heldur. Hvernig verst
maður slíkum endemum? Þrjú og
hálft ár fóru í dugleysi og fúsk siða-
nefndar. Málinu „lauk“ 15. apríl
2009. „Landlæknar eru undanþegnir
siðareglum í störfum sínum.“ Siða-
reglur lækna og stjórnarskrárvarin
mannréttindi voru svívirt.
» „Greinin í heild er
hjá siðanefnd LÍ að
beiðni stjórnar LÍ og er
rétt að bíða úrskurðar
hennar hvort þörf sé
frekari aðgerða.“ Í hálft
fjórða ár!
Höfundur er læknir.
Nú geta allir fengið iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/