Morgunblaðið - 01.11.2012, Síða 35

Morgunblaðið - 01.11.2012, Síða 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2012 Kom það greinilega í ljós á hans síðustu árum þegar hann endur- smíðaði Henderson-vélhjól frá grunni, eða því sem manni fannst vera kolryðguð járnahrúga en varð að glæsilegu farartæki í höndum hans. Hann unni náttúrunni og útilífi og undi sér þar vel, var mikill veiðimaður, veiddi bæði fugl og fisk og var færni hans við laxveið- ar viðbrugðið. Oft fengum við að njóta gestrisni Gríms – og Ástu, meðan hennar naut við. Einkum norður í Hrútafirði, við laxveiðar í Hvalsá og ýmiss konar fagnað, meðal annars biljarð og brids- spilamennsku. Auk þess að vera afburða lax- veiðimaður var Grímur góður leiðbeinandi og tókst að koma nokkru fjöri í fremur daufgerða veiðimenn. Hann hnýtti marga „fluguna“ um ævina, má þá nefna að hann hannaði og hnýtti hina fengsælu Snældu, sem þekkt er orðin. Hann var áhugamaður um skák og brids og spilaði síðast við félaga sína nokkrum dögum fyrir andlátið. Í einkalífi var hann hamingju- samur, var góður fjölskyldufaðir – og afi. Ástu eiginkonu sína missti hann fyrir rúmum sjö ár- um – harm sinn bar hann í hljóði. Sonur hans og tengdadóttir, þau Gunnar og Gígja Hrund, reynd- ust honum einstaklega vel og viku ekki frá honum í veikindum hans og hjúkruðu honum af natni og umhyggju allt fram á síðasta dag. Grímur hélt andlegri reisn allt til loka þótt líkamlegir kraftar væru á þrotum. Hann lést á heim- ili sínu þriðjudaginn 23. október 2012. Við sem þekktum Grím drúp- um höfði og minnumst hans í bæn og þökkum honum samfylgdina. Gunnari, Gígju Hrund, Huga Þey, Ásgrími og Ástu Ísafold vottum við samúð okkar. Álfhildur og Eymundur. Einn af okkur traustu félögum í Lionsklúbbnum Ægi, Grímur Jónsson, er fallinn frá. Grímur hafði afar góða nærveru þó hann hafi ekki látið mikið fyrir sér fara. Hann var mjög traustur og far- sæll félagi sem lagði sig fram við hin ýmsu störf klúbbsins allt frá því að hann gekk til liðs við okkur árið 1987. Má þar nefna vinnu við undirbúning við hið árlega kút- magakvöld klúbbsins sem haldið hefur verið á Hótel Sögu í árarað- ir og hefur verið aðalfjáröflunar- verkefni klúbbsins í áratugi og margar ferðirnar sem Grímur kom með okkur félögunum aust- ur að Sólheimum í Grímsnesi og lagði fram krafta sína s.s. þegar litlu jólin voru haldin eða farið var í gróðursetningarferðir. Hann var afar laghentur og rak járnsmíðaverkstæði og nutu klúbburinn og félagar þess óspart. Grímur hafði einstaklega gam- an af að ferðast og hann ásamt eiginkonu sinni Ástu Jónsdóttur fór með í fyrstu utanlandsferðina sem klúbburinn stóð fyrir árið 1985 til Vínarborgar og árið eftir fór Grímur einnig með klúbbnum til Rússlands. Ófáir félagar leituðu til Gríms um ráðleggingar varðandi sil- ungs- og laxveiði enda var Grím- ur landsfrægur laxveiðimaður og þá ekki síst einn helsti sérfræð- ingur landsins varðandi flughnýt- ingar. Margar voru flugurnar sem Grímur stakk að okkur Lionsfélögum í gegnum tíðina og unun var að hlusta á Grím segja skemmtilegar veiðisögur sem hann gerði oft á fundum hjá okk- ur. Með þessum fátæklegu orðum viljum við Lionsfélagar þakka all- ar þær ánægjustundir sem við áttum með Grími og öll hans góðu störf í þágu klúbbsins. Við vott- um fjölskyldu hans allri okkar innilegustu samúð. Andrés Erlingsson, formaður Lkl. Ægis. ✝ FJÓLA JÓSEFSDÓTTIR frá Brekku, Hjalteyri, Reynimel 78, Reykjavík, andaðist þriðjudaginn 16. október. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 2. nóvember kl. 13.00. Sigtryggur Rósmar Eyþórsson, Þorbjörg Guðmundsdóttir, Þórey Eyþórsdóttir, Kristján Baldursson, Hildur G. Eyþórsdóttir, ömmubörn og langömmubörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, dóttir mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, STEINUNN H. SIGURÐARDÓTTIR, Tröllateig 47, Mosfellsbæ, sem lést laugardaginn 27. október verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju mánudaginn 5. nóvember kl. 15.00. Alfreð Alfreðsson, Margrét J. Jónasdóttir, Sigurður Ö. Alfreðsson, Rósfríður F. Þorvaldsdóttir, Óskar M. Alfreðsson, María Sturludóttir, Hanna M. Alfreðsdóttir, Valdimar R. Arnarson, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Halldóra JennýHilmarsdóttir fæddist á sjúkra- húsi Vestmanna- eyja 11. janúar 1969. Hún lést á heimili sínu í Dan- mörku þann 29. ágúst 2012. Foreldar hennar voru Ólöf Þ. Hall- dórsdóttir, f. 1952, og Hilmar Ásgeirs- son, f. 1948. Uppeldisfaðir henn- ar var Einar Sigurðsson, f. 1957. Sambýliskona Hilmars er Ragn- heiður Sverrisdóttir, f. 1953. Bræður hennar voru þeir 1) Ás- geir Guðmundur Hilmarsson, f. 1972, eiginkona hans er Eva Kristjánsdóttir, f. 1981. Börn þeirra eru þau Þór- ey Anna, f. 1997, frá fyrra sambandi, Nökkvi Þór, f. 2004, og Ásdís Embla, f. 2007. 2) Sigurður Einar Einarsson, f. 1981, sambýliskona hans er Elísa Ein- arsdóttir, f. 1986. Börn þeirra eru Sara Mist, f. 2008, og Einar Tristan, f. 2012. Sonur Halldóru Jennýar og Gústafs Adolf Þórarinssonar er Jón Ólafur Gústafsson, f. 1990 og sonur hans er Bjarki Snær, f. 2012. Útförin fór fram í kyrrþey frá Landakirkju Vestmannaeyja. Elsku stelpan mín. Mikið á ég eftir að sakna þín. Þú gafst mér svo mikið. Ég var svo stolt af því hvað þú gast bjargað þér ein í Danmörku. Við Jón Ólafur, sonur þinn, heimsóttum þig í fyrra haust og vorum svo ánægð yfir því hvað þú áttir fallegt heimili og yfir því hvað þú leist vel út. Þú varst alltaf svo falleg. Við höfðum það svo notalegt hjá þér og okkur leið svo vel saman. Ég hafði áð- ur komið út til þín, það eru svo margar stundir sem við áttum saman sem ég gleymi aldrei. Þú varst svo skemmtilegt barn og líka eftir að þú fórst að eldast. Þú gekkst í gegnum marga erf- iðleika og spítalalegur en þú hélst alltaf áfram. Mér hlotnaðist sú hamingju- stund að fá að vera hjá þér þeg- ar þú fæddir Jón Ólaf, það var mesta hamingjustund sem þú upplifðir. Þú, ég og hann vorum mjög samrýnd. Útaf þínum veikindum dvaldi hann mikið hjá mér og fór því að líta á bræður þína sem bræður sína. Þú varst á leiðinni heim til Ís- lands því sonur þinn var að gera þig að ömmu, það sem þú hlakk- aðir til, elsku stelpan mín! Afi, amma og Bergur hafa örugglega tekið vel á móti þér, þú varst fyrsta barnabarn þeirra og uppáhald. Nú kveð ég þig, ástin mín, nú ertu sofnuð svefninum langa. Guð og englar vaki yfir þér. Þín Mamma. Mig langar að kveðja, því þú fórst alltof fljótt, ég fékk aldrei tækifæri til þess. Ég sit hérna með sorg í hjarta. Það er svo óréttlátt að þú sért farin Halldóra mín, svona ung og allt farið að ganga vel hjá þér. Þér leið vel í Dan- mörku þó heimþráin hafi alltaf verið til staðar, sérstaklega eftir Jóni Óla og mömmu þinni. Þið mamma þín voruð í góðu sam- bandi og þú varst alltaf dugleg að hringja og spyrja um fjöl- skylduna og alltaf fengum við kveðju frá þér, segðu Eyju og öllum að ég elski þau og sakni þeirra. Þú hlakkaðir svo til að koma heim núna í október því þú varst að verða amma, mán- uði eftir lát þitt kom lítill prins sem hefur fengið nafnið Bjarki Snær. Það var svo gott að mamma þín og Jón Óli voru búin að fara út til þín í heimsókn og sjá fal- lega heimilið þitt. Þú varst alltaf mikið fyrir að punta í kringum þig og sjálfa þig líka. Enda varstu alltaf myndarleg og flott stelpa, já og fyrst og fremst góð manneskja. Ég á hafsjó af minningum um þig, Halldóra mín, sem ég á eft- ir að geyma með mér. Dauðinn er voldugt afl sem enginn sigrar. Ástvinum Halldóru votta ég samúð mína. Ef þú átt erfitt, sérð enga von, þú veist þú átt mig að óháð stund og stað. Ég verð hjá þér, vef þig örmum mér, og skal þér vísa veg. Eins og brú yfir boðaföllin ég bendi þér á leið. Margt miður fer, margt bölið er. Og margur er í leit að sjálfum sér. Sjá, þú átt völ að sigra dauða og kvöl. Ég þerra öll þín tár. Eins og brú yfir boðaföllin liggur okkar leið. (Lag: Paul Simon/ Texti: Ómar Ragn- arsson) Kveðja, Eyja frænka. Halldóra Jenný Hilmarsdóttir ✝ Halldór Gunn-laugsson fædd- ist á Húsavík 20.5. 1981. Hann lést 23. október sl. Foreldrar hans eru Rósa Emilía Óladóttir frá Vatnskoti, Þykkva- bæ, f. 2.8. 1962, og Gunnlaugur Krist- jánsson, f. 14.1. 1956. Fósturfaðir: Gunnar Ársælsson frá Hákoti, Þykkvabæ, f. 13.2. 1963. Systk- ini Halldórs eru Sindri Gunn- arsson, f. 9.12. 1988, Guðrún Björg Gunnarsdóttir, f. 17.6. 1998, Logi Gunnlaugsson sam- feðra, f. 16.10. 1975. Börn Hall- dórs eru: Ágúst Freyr, f. 10.3. 1999, Elín Helga, f. 3.10. 2005, Sölvi Thor, f. 6.6. 2006, og Emilia Ósk, f. 25.2. 2007. Halldór bjó fyrstu árin sín í Vatnskoti, Þykkvabæ, en flutt- ist með foreldrum sínum, Rósu og Gunnari, til Reykjavíkur 1985 og ólst þar upp. Sveitin var honum samt ætíð ofarlega í huga og dvaldi hann þar mörgum stundum hjá Jó- hönnu ömmu sinni og Óla afa sínum, en þau voru honum afar kær. Hann lauk grunn- skólaprófi frá Hamraskóla vor- ið 1997. Hann fór snemma að vinna og starfaði um tíma hjá föður sínum við raflagnir, en fór síðar að vinna við versl- unarstörf, mestallan tíman hjá Bónus og nú síðast sem versl- unarstjóri hjá Bónus á Ísafirði. Útför hans fer fram frá Graf- arvogskirkju í dag, 1. nóv- ember 2012, og hefst athöfnin kl. 13. Nú næðir vindur og nóttin kemur og nú er friður í hjarta þér. Þú átt að vita það öðru fremur að englar Drottins þeir vaka hér. Úti vindurinn vex og dvínar hann vekur öldur við kala strönd og ber um himininn bænir þínar, þær berast áfram um draumalönd. Í myrkri finnur þú máttinn dofna, á meðan vindur um landið fer. Augun lokast, þú ert að sofna og englar Drottins þeir fylgja þér. Á meðan birta í brjósti lifir, þá bið ég Guð minn að vernda þig og veit hann vakir hér öllu yfir og englar Drottins þeir styðja mig. (Kristján Hreinsson.) Kveðja. Mamma og pabbi. Elsku Dóri minn. Ég á engin orð. Engin orð til að lýsa því hvernig mér líður. Þú varst svo stór partur af lífi mínu svo lengi. Minning þín mun ávallt lifa í hjarta mér. Mig vantar svör, á ekki fleiri tár. Engill ræður för, þegar ég verð gamall og grár. Veröldin er grimm hvað sem hefur skeð. Þó nóttin þín sé dimm vakir engill yfir þér. Þegar ég kenni til þá veit ég og skil einhver æðri en ég er hér sem að vakir yfir mér. Hún farin er frá þér einn og yfirgefinn. Einhver vakir yfir þér þá hverfur frá þér efinn. Þér leið ekki vel á fasi þínu sást. Þín gríma örþunn skel þú gafst alla þína ást. Þegar ég kenni til þá veit ég og skil einhver æðri en ég er hér sem vakir yfir mér. Rangt eða rétt? að elska er aldrei létt. Minn engill, hann er hér hann vakir yfir mér. ... (Bubbi Morthens) Þín Matthildur. Í minningu frænda míns Hall- dórs Gunnars og Gunnlaugsson- ar langar mig að skrifa nokkur orð, þó verður að viðurkenna að engin orð hljóma rétt og grunar mig að á þessum tíma séu þau hreinlega ekki til. En þegar eng- in orð eru rétt þá er oft gott að rifja upp góðar minningar og þá fyrst uppgötva ég hvað er meint þegar sagt er að minningar geta hlýjað fólki um hjartarætur. Þær geta verið styrkur á erfiðum tímum og góðar minningar um Dóra munu lifa áfram í hjarta okkar að eilífu. Ég var svo hepp- in að hafa fengið að eyða tíma með frænda mínum í bernsku og vildi ég óska að stundirnar hefðu orðið miklu fleiri á fullorðins- aldrinum. Dóri sem varð ekki eldri en 31 árs, hafði þó lifað lengra lífi en flestir jafnaldrar hans. Á lífsleiðinni upplifði hann sorg og erfiðleika. En mikla gleði, bros, hlátur og gott jafn- aðargeð gat ég þó alltaf tengt við frænda minn. Hann eignaðist dýrmæta vini, á eina bestu og hjartahlýjustu fjölskyldu sem hver maður getur óskað sér að eiga og fjögur falleg og heilbrigð börn. Ég trúi því að Dóri muni lifa í þeim og fjölskyldu sinni alla tíð og vaka yfir þeim. Það er dýrmætur hugsunar- háttur að trúa og þegar við Dóri ræddum um trú ekki fyrir svo löngu sagði hann þetta: „Það er margt sem ég veit ekki og enn meira sem ég skil ekki, en til- hugsunin um Jesú gefur mér skrýtna góða tilfinningu án þess að ég telji mig beint kristinn og alls ekki biblíumann en ég er tilbúinn að fórna því að vita bet- ur og vera klár fyrir þessa til- finningu.“ – Með þessum orðum fannst mér ég skynja að hann trúði á eitthvað æðra. Það sem Jesú boðaði, sagði Dóri að væri: „það fallegasta sem ég get hugs- að mér og einhvern veginn of gott til að koma frá eigingjörn- um mannshuga“. – Dóri hefði varla geta orðað þetta betur og á þessum nótum er ég viss um að nú bíður Dóra gott líf í himna- ríki, þess vegna hef ég ákveðið að þessi orð séu ekki mín hinsta kveðja, heldur hlakka ég til að sjá þig seinna, kæri Dóri. Elsku Rósa, Gunnar, Sindri, Vala, Guðrún Björg, Ágúst Freyr, Elín Helga, Sölvi Thor og Emilía Ósk, þið eigið allar mínar hugsanir og samúð. Guðfinna Árnadóttir. Halldór Gunnlaugsson Nú er komið að leiðarlokum og höfum við kvatt þig í hinsta sinn. Minningarnar streyma fram um leið og ég loka dyrunum á eftir mér. Sem lítið stelpuskott man ég varla eftir þeim degi sem ég hljóp ekki upp brekkurnar í sveitinni til að kíkja til þín og fá hjá þér eitt- hvað gott að borða. Þótt annríkið hafi verið mikið á stóru heimili og alltaf eitthvað um að vera hafðir þú alltaf tíma til að tína fram eitt- hvert góðgæti handa sísvöngum ormum. Þínu stóra heimili sinntir þú af einskærri alúð og minnist ég þess varla að hafa séð þig sitja auðum höndum. Oft var setið í stól og prjónað eða stoppað í fatn- að, straujað, þvegið og bakað. Þú varst mér góð fyrirmynd og í hjarta mínu blundar sá metnaður að koma miklu í verk og sitja ei auðum höndum, þann metnað á ég þér mikið til að þakka. Þótt erfiðir tímar hafi oft bankað upp á í gegnum árin man ég ekki eftir þér á annan hátt en þú værir Halla Guðbjörg Halldórsdóttir ✝ Halla GuðbjörgHalldórsdóttir fæddist á Skútum í Glerárþorpi 19. mars 1931. Hún andaðist á sjúkra- húsinu á Akureyri 10. október 2012. Útför Höllu fór fram frá Möðru- völlum í Hörgárdal 20. október 2012. glaðvær, umhyggju- söm og tækir lífinu með ró. Þótt aldur- inn hafi verið farinn að segja til sín með sínum takmörkun- um kvartaðir þú aldrei og tókst hverju því sem koma skyldi með einskæru æðruleysi og gerðir svo bara grín að öllu saman. Að þú hafir fengið færi á að ferðast og skoða heiminn er mér hjartnæmt því fátt er eins gleði- legt og þegar fólk hefur tök á að lifa lífinu lifandi, það gerðir þú svo sannarlega. Í góðra vina hópi á sólbjartri strönd, það er sú mynd sem ég geymi af þér í hjarta mínu ásamt hlýjum orðum og skemmtilegum minningum. Elsku amma og langamma, við þökkum þér yndislega samfylgd í gegnum árin og megi okkar æðri máttur fylgja þér á leiðarenda, til þeirra ástvina sem bíða þín með gleði og hlýhug. Við fylgjum þér síðasta spölinn þar sem þú munt hvíla lúin bein við hlið eiginmanns og sonar. Vertu sæl, okkar ynd- islegust. Fallin er frá mín fyrirmynd til fundar við forna feður. Svo fögur og fáguð sem vorsins lind fjölskyldu sína kveður. (SÁ) Stella Árnadóttir og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.