Morgunblaðið - 01.11.2012, Page 40
40 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Vinir og vandamenn eiga eftir að
koma þér verulega á óvart. Farðu á flóamark-
aði, fornbókabúðir, búðir sem selja notuð föt
og skoðaðu uppboð á netinu.
20. apríl - 20. maí
Naut Þér hættir til í hita augnabliksins að
missa sjónar á takmarkinu. Með yfirvegun
vinnur þú best. Hafðu dómgreindina til hlið-
sjónar, þannig verður þú líka góður leiðtogi.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert í skapi til þess að berjast fyr-
ir málstað annarra á vinnustað. Láttu aðra
vita af því, hvað þér þykir vænt um þá.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það þarf hugrekki til að horfast í
augu við eigin mistök og síðan að gera sitt til
að bæta úr þeim. Eyddu tíma í að skrifa, biðja
eða hugleiða til að finna þitt eigið sjónarhorn.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það getur reynst fyrirhafnarsamt að
láta drauminn rætast en þó er engin ástæða
til þess að leggja árar í bát. Skoðaðu alla
möguleika í stöðunni og láttu að lokum þitt
eigið brjóstvit ráða.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú átt erfitt með að segja nei. Ekki líð-
ur á löngu þar til þú verður fyrirtaks vanda-
málalausnari. Vertu óhræddur við að njóta
ánægju lífsins og leyfa henni að blómstra.
23. sept. - 22. okt.
Vog Dagurinn hentar vel til að huga að breyt-
ingum í vinnunni og á stefnu þinni í lífinu.
Hristu þetta slen af þér og gakktu öruggur til
móts við ný og spennandi verkefni.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þótt þér takist ekki að breyta
skoðunum annarra er alveg öruggt að mál-
flutningur þinn fellur í góðan jarðveg. Líttu í
kringum þig og finndu nýja leið.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þótt það sé freistandi til að halda
friðinn að verða við kröfum annarra er það
ekki rétta lausnin til frambúðar. Farsælast er
að finna jákvæðan farveg og hefjast handa.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er engin skoðun svo skotheld
að hún geti ekki breyst vegna nýrrar vitn-
eskju eða einhvers annars. Búðu þig undir
hefðbundnar skyldur, maður sleppur aldrei
undan þeim of lengi í einu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þér er það óvænt ánægja hvað þú
uppskerð fljótt árangur erfiðis þíns. Til þess
að draumar þínir geti orðið að veruleika
þarftu að vinna mikið.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Umhverfið klappar þér lof í lófa og þú
mátt njóta vinsældanna. Sá tími kemur að þú
munt geta sagt hug þinn allan.
Benedikt Jóhannesson gaf út bók-ina „AHA! Ekki er allt sem sýn-
ist.“ Þar eru þrautir og þversagnir
sem allar kynslóðir geta haft gagn
og gaman af að spreyta sig á. Á með-
al umfjöllunarefna eru lygaraþver-
sögnin og yfirlýsingar sem stríða
gegn sjálfum sér, eins og „Öll þekk-
ing er vafasöm.“ Og nefnd eru dæmi
um nýstárlegar limrur eftir Sigurð
J. Grétarsson, svo vitnað sé í bókina:
„Limran um Hallgerði Hö
hún hætti í braglínu tvö.
Þessi frjálslega limra er ekki
þversagnakennd, en hún leiddi af
sér aðra, sem einnig hefur tilvísun í
fúlmenni Íslendingasagna.
Væri limru í Hávarsson hreytt
Hver er þversögnin? Er það, að í
huganum bættu menn ósjálfrátt við
annarri línunni: „hún hætti í brag-
línu eitt“? Eða er það bara tilhugs-
unin um það að limrur geti verið
styttri en fimm línur?“
Nú svo má auðvitað bæta við að
limrur skutu ekki upp kollinum fyrr
en mörgum árhundruðum eftir daga
Þorgeirs Hávarssonar.
Limran er hefðum samkvæmt
fimm línur, en þar sem hún er óút-
reiknanleg með öllu, þá skýtur hún
upp kollinum í ýmsum gervum.
Jón Ingvar Jónsson hefur gert að
leik sínum að yrkja limrur sem eru
fjórar línur, þrjár línur og tvær lín-
ur. Og nú er hann búinn að koma
limrunni niður í eina línu, ef marka
má eftirfarandi skrif:
„Er hægt að koma limrunni niður
í eina línu? Hér er tilraun sem inni-
heldur nafn og bústað til að gera lín-
una einu limrulega:
Um Sigurð á Heiði er hljótt,
En, ef til vill hef ég teygt mig of
langt núna, eða er nógu hljótt um
Sigurð á Heiði?
Draumurinn er auðvitað að semja
limru með engri línu. Ég efast
reyndar um að það sé gerlegt.“
Og hann bætir við neðanmáls:
„Ég var á hagyrðingamóti á
Laugum í Sælingsdal á föstudags-
kvöld. Um „Fjallkonan hrópar á
vægð!“ hafði ég bara þetta að segja:
Bændurnir puða með plóginn
og pirrast við ESB-róginn,
en féð er á beit
í fallegri sveit
og hemur þar helvítis skóginn.
Svo var ég bara með mun minni
penna en hin:
Þegar ég um blíðu bið
en brestur hylli kvenna,
þá er ljúft að leika við
lítinn kúlupenna.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af nýstárlegum limrum,
fjallkonu og bændum
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„SEGÐU EIGANDANUM AÐ
ÉG LÝSI YFIR GJALDÞROTI.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... Einhver sem
dekrar við þig.
HÆ,
GRETTIR!
HVAÐ ERTU
AÐ BRALLA?
BARA AÐ BÍÐA EFTIR AÐ ÞÚ FARIR SVO
ÉG GETI BORÐAÐ KLEINUHRINGINN
SEM ÉG ER MEÐ FYRIR AFTAN BAK.
HVERT FINNST ÞÉR AÐ
VIÐ ÆTTUM AÐ FARA Í
FRÍINU Í ÁR?
MMBFGLM ... SMJATT ...
FFLUOGBB ... HÚMPF!
TYRKLAND?
ÚTSALA MÁTUN
Allt er breytingum háð, meira aðsegja útfararbransinn. Nú er ei-
lífðin orðin stafræn, eins og sagði í
fyrirsögn fréttar frá AFP í gær. Þar
segir frá því að í Frakklandi sé nú
farið að bjóða upp á jarðarfarir í
beinni útsendingu fyrir þá, sem ekki
geta verið viðstaddir í eigin persónu.
„Fjölskyldur verða sífellt dreifðari,
um þessar mundir getur fólk átt ætt-
ingja í öllum landshornum eða
heimshornum, langt frá fæðing-
arstað sínum,“ segir Eric Fauveau,
sem stýrir vefvarpsþjónustu lík-
brennslufyrirtækis í Frakklandi, við
AFP. Þá geta ættingjar fengið upp-
töku af útförinni fyrir 100 til 200 evr-
ur.
x x x
Þessar nýjungar komu Víkverjaekki sérlega á óvart, en hann
rak í rogastans þegar hann sá að út-
fararþjónustur væru margar farnar
að bjóða upp á að setja strikamerki
eða QR-kóða á grafreiti. Fyrst var
boðið upp á þessa þjónustu í Seattle í
Bandaríkjunum, en nú hafa fyr-
irtæki í Frakklandi og á Bretlandi
fylgt í kjölfarið. Hægt er að skanna
merkin með snjallsíma og þá birtist
lífshlaup hins látna ásamt myndum,
myndskeiðum og minningar-
greinum.
x x x
Þetta mun vera markaðssett áþeim forsendum að það hjálpi
aðstandendum, en geti einnig verið
vandalausum til upplýsingar.
x x x
Þá virðast minningarathafnir veraað færast yfir á netið.
Minningarvefsíður munu hafa byrj-
að að ryðja sér til rúms í Bandaríkj-
unum fyrir nokkru og eru komnar til
Evrópu. þar er hægt að senda sam-
úðarkveðjur, kveikja á stafrænu
kerti og deila myndum eða minn-
ingum.
x x x
Þá lætur fésbókin ekki sitt eftirliggja á þessum vettvangi frem-
ur en öðrum. Þar er hægt að frysta
síðu fráfallins einstaklings og breyta
í stafrænan minnisvarða þar sem
hægt er að votta hinum látna virð-
ingu sína. víkverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn veitir lýð sínum styrk, Drott-
inn blessar lýð sinn með friði. (Sálm-
arnir 29:11)
Sunnuhlíð 12, Akureyri, sími 462 1415
www.tonabudin.is
Síðumúla 20, Reykjavík, sími 591 5340
www.hljodfaerahusid.is
Yamaha píanó og flyglar
með og án “silent” búnaðar.
Áratuga góð reynsla gerir
Yamaha að augljósum kosti
þegar vanda skal valið.
Veldu gæði,
veldu