Morgunblaðið - 01.11.2012, Page 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2012
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Mér finnst spennandi að blanda
saman mörgum ólíkum stefnum og
stílum,“ segir Jóhannes Birgir
Pálmason, forsprakki hljómsveit-
arinnar Epic Rain sem nýverið sendi
frá sér breiðskífuna Elegy. Á plöt-
unni er að finna tíu frumsamin lög
eftir hljómsveitarmeðlimi, en Epic
Rain skipa, auk Jóhannesar sem
syngur, hljóðblandar og semur alla
textana, þeir Bragi Eiríkur Jóhanns-
son söngvari og gítarleikari, Stefán
Ólafsson píanóleikari, Daði Már Jen-
sen gítar- og banjóleikari og Guð-
mundur Helgi Rósuson gítarleikari.
„Tónlistin á plötunni er mjög
theatrical eða leikræn með svolitlum
kabarett-fílingi auk þess sem heyra
má áhrif frá dark country, dark folk
og smá blús. Einnig eru augljós hipp
hopp-element og rapp-áhrif,“ segir
Jóhannes, sem er annar tveggja for-
söngvara hljómsveitarinnar eða
„vocalisti“ eins og hann orðar það
sjálfur. „Því ég get ekkert sungið.
Eina leiðin fyrir mig til að tjá mig
raddlega er í gegnum rapp eða spo-
ken word. Bragi sér um allan söng-
inn, enda er hann með svakalega
rödd sem hann getur notað á marga
vegu.“
Myndir þú taka undir það að
hljóðheimur plötunnar væri undir
frönskum áhrifum?
„Já, enda hef ég löngum heillast af
franskri tónlist, ekki síst franskri
kvikmyndatónlist. Mamma og pabbi
bjuggu lengi úti í Frakklandi og það
var mikið spilað af franskri tónlist á
mínu æskuheimili sem hefur senni-
lega haft töluverð áhrif á mig. Mér
finnst andrúmsloftið í franskri tón-
list mjög skemmtilegt auk þess sem
frönsk tónlist er oft mjög melódískt.
Tvö laganna á plötunni gætu þannig
verið lög úr franskri kvikmynd og
eitt þeirra er sungið á frönsku. Mig
hefur lengi langað til að blanda
frönsku inn í lag og það hentaði
þessu lagi vel,“ segir Jóhannes og
bætir við: „Ætli það sé ekki ákveðin
rómantík.“
Vill að textinn framkalli myndir
Sumir myndu segja að hljóðheim-
urinn og söngstíllinn væri einnig
undir sterkum áhrifum frá Tom
Waits. Eru það meðvituð áhrif?
„Ég neita því ekki að Tom Waits
hefur veitt mér mjög mikinn inn-
blástur í gegnum tíðina, enda er ég
mikill aðdáandi hans og hef hlustað
mikið á hann. En það væri auðvitað
kjánalegt að reyna að stæla hann.
Ég heillast ekki síst af andrúmslofti
laga hans sem eru einmitt mjög leik-
ræn. Einnig hef ég alltaf dáðst að
honum fyrir það að hann hefur ávallt
verið óhræddur við að fara sínar eig-
in leiðir, verið óragur við að prófa
nýja hluti og aldrei reynt að búa til
slagara eða vera vinsæll. Það hefur
veitt mér mikinn innblástur.“
Talandi um innblástur, hvert sæk-
ir þú sér innblástur þegar kemur að
textasmíðinni?
„Ég hef alltaf verið hrifinn af sög-
um, en í bæði folk- og country-tónlist
er alltaf verið að segja sögur. Ég vil
að hlustendur sjái textann fyrir sér,
þ.e. að textinn framkalli ákveðnar
myndir, aðstæður eða hugarheim.
Sumar sögurnar sem ég segi eru
hreinn uppspuni, en aðrar byggjast
á raunverulegum atburðum þó með
ýktum þráðum,“ segir Jóhannes, en
þess má geta að texta plötunnar má
nálgast á epicrain1.bandcamp.com.
Fastagestur á Airwaves
Epic Rain kemur fram á Iceland
Airwaves á Þýska barnum nk. laug-
ardag kl. 20.50. „Þetta er sjöunda
eða áttunda árið í röð sem ég spila á
Airwaves,“ segir Jóhannes sem hef-
ur m.a. komið fram undir lista-
mannsnafninu Rain. „Epic Rain lék í
núverandi mynd fyrst á Airwaves ár-
ið 2010, en þá heyrði í okkur eigandi
Les Rencontres Transmusicales-
tónlistarhátíðarinnar sem er þekkt-
asta tónlistarhátíðin í Frakklandi.
Hann vildi fá okkur á sína hátíð og
varð það úr að við lékum á hátíðinni í
desember í fyrra. Það gekk ótrúlega
vel og fengum við mjög góða dóma,
vorum t.d. valin ein mesta uppgötv-
un hátíðarinnar,“ segir Jóhannes og
tekur fram að í framhaldinu hafi
hljómsveitin fengið umboðsmenn í
Frakklandi sem vinni að því að
skipuleggja tónleikahald bæði þar í
landi og víðar í Evrópu. „Við erum
tiltölulega nýkomnir heim, en við
spiluðum á þrennum tónleikum í
Frakklandi auk tónleika á Ítalíu.
Næstu tónleikar okkar erlendis
verða í París 22. nóvember næst-
komandi.“
Spurður hvenær von sé á útgáfu-
tónleikum hérlendis segir Jóhannes
það enn ekki ákveðið. „En það verð-
ur þó á þessu ári, því get ég lofað.“
„Ég get ekkert sungið“
Forsöngvarar Bragi Eiríkur Jóhannsson og Jóhannes Birgir Pálmason syngja hvor með sínu nefi.
Hljómsveitin Epic Rain sendir frá sér fyrstu breiðskífu sína er nefnist Elegy
Forsprakki sveitarinnar lýsir tónlistinni sem leikrænni undir hipp hopp áhrifum
Í dag er annar í Airwaves og fram-
boðið af spennandi tónleikum all-
svakalegt. Þeir sem vilja rokk í
þyngri kantinum ættu að drífa sig í
Hörpu í kvöld, salinn Norðurljós.
Þar leika m.a. Skálmöld, HAM og
Mugison leysir af hólmi Swans, sem
tepptist vegna stormsins Sandy. Í
Kaldalóni í sama
húsi leikur Elíza
Newman kl. 21.40
væntanlega efni
af nýrri plötu líkt
og Biggi Hilmars
sem treður upp
23.20. Í Silf-
urbergi koma
svo fram óska-
börn þjóð-
arinnar, Of Mon-
sters and Men, kl. 00.10. Á Þýska
barnum verður einnig mikið hipp
hopp-stuð. Dúóið Halleluwah, þeir
Sölvi Blöndal og Egill „Tiny“ Thor-
arensen, leika þar 21.20 og banda-
ríska sveitin Shabazz Palaces kl. á
miðnætti. Leaves snýr svo aftur á
Gamla Gauknum kl. 20.50. Á „off
venue“ dagskránni er svo margt
kræsilegt. Ástralinn Ben Frost verð-
ur á Kaffibarnum kl. 18.30 og tvær
stórgóðar,
danskar sveitir á
Bar 11, Nelson
Can kl. 20.30 og
The Attacks hálf-
tíma síðar. Á
Hressó verður
kanadísk veisla,
fimm kanadískar
hljómsveitir spila
og á Icelandic
Bar kemur fram
dúettinn Kleópatra, þ.e. borg-
arstjórinn Jón Gnarr og félagi hans
Sigurjón Kjartansson. Þetta eru að-
eins örfáir molar af nægtaborði
Airwaves, sjá icelandairwaves.is.
Vinsæl Hljómsveitin Of Monsters
and Men spilar í Hörpu í kvöld.
Annar í Airwaves
Elíza Newman
Jón Gnarr
Hljómsveitin Ghostigital kemur
fram á morgun kl. 15 á utan-
dagskrártónleikum Iceland Air-
waves við Kex Hostel sem sendir
verða út í beinni á bandarísku út-
varpsstöðinni KEXP.ORG. Á laug-
ardaginn heldur hún tónleika á
Þýska barnum kl. 21.40. Ekki er þó
allt upp talið því hljómsveitin skipu-
leggur tónleika RafKraums á
sunnudeginum, á fylgihátíð Iceland
Airwaves, Rafwaves, í Iðusölum.
Það kvöld heldur Ghostigital upp á
tíu ára tónleikaafmæli sitt en hún
kom fyrst fram á Airwaves árið
2002. Hljómsveitir á RafKraums-
kvöldinu eru Trouble, Good Moon
Deer, Tonik, Legend, Ghostigital,
Captain Fufanu, Bypass00:15 Ocu-
lus. Trouble hefur fyrst leik, kl.
20.30. Þess má einnig geta að þriðja
breiðskífa Ghostigital, Division of
Culture and Tourism, fer í heims-
dreifingu nú í nóvember og verður
platan einnig gefin út á vínyl.
Tíu ára tónleikaafmæli Ghostigital
Kraumandi Ghostigital á Airwaves fyrir
þremur árum. Einar Örn í miklum ham.
Vegleg Airwaves-veisla verður í
dag, á morgun og hinn í Norræna
húsinu, 19 tónleikar haldnir og frítt
inn á þá alla þar sem þeir heyra
undir sk. „off venue“ dagskrá há-
tíðarinnar. Tónleikarnir verða
haldnir í sal Norræna hússins sem
var sérstaklega hannaður fyrir
flutning kammertónlistar. Dag-
skráin var sniðin með salinn í huga
og flutningur að mestu órafmagn-
aður. Í dag leika m.a. Agent Fresco,
Ásgeir Trausti og Thee Attacks og
á morgun Guðríð Hansdóttir og
Benjamin frá Færeyjum, My Bubba
& Me og Elíza Newman. Á laug-
ardaginn verða sex tónleikar
haldnir og þá m.a. með Rökkurró,
Rubik frá Finnlandi og Árstíðum.
Nítján tónleikar á þremur dögum
Íslenskt-danskt Tvíeykið My Bubba
& Me leikur í Norræna húsinu.
Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is
Í spinning öðlast ég
aukið úthald og styrk,
frábær undirstaða fyrir
útivistina, hvort sem það
eru hjólreiðar, skíði eða
fjallganga.
Þórður Magnússon
Fjörugir tímar þar sem hjólað er undir leiðsögn
þjálfara í takt við skemmtilega tónlist.
Mjög mikil brennsla og góð þjálfun.
Tímarnir eru fjölbreyttir þar sem hjólað
er allan tímann eða tímanum skipt
í spinning og styrktaræfingar.
Hjólaðu þig í form
Frír prufurtími
Spinningtímar
mán. mið. og fös. kl 12.00 og 17.15