Morgunblaðið - 01.11.2012, Side 44

Morgunblaðið - 01.11.2012, Side 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2012 Fyrirtækið Walt Disney keypti í vikunni kvikmyndafyrirtæki George Lucas, Lucasfilm, fyrir fjóra milljarða dollara, jafnvirði 509 milljarða króna. Með því fær Disney einkaleyfi á Stjörnustríðs- myndunum, Star Wars, og er sjö- unda myndin í syrpunni væntanleg árið 2015. George Lucas segir tíma til kominn að láta Stjörnustríð í hendur nýrri kynslóð kvikmynda- gerðarmanna og forstjóri Disney, Robert Iger, segir að með kaup- unum á Lucasfilm sameinist sköp- unarkraftur á heimsmælikvarða. Stjörnustríðsmyndirnar eiga sér gríðarlega stóran hóp aðdáenda um heim allan og var sú nýjasta, Star Wars: Episode III - Revenge of the Sith, frumsýnd árið 2005.Moldríkur George Lucas. Fyrirtæki Lucas keypt af Disney Auður Rán Þorgeirsdóttir hefur ver- ið ráðin í starf framkvæmdastjóra Listahátíðar í Reykjavík. Hún hefur áður starfað sem verkefnastjóri hjá Höfuðborgarstofu þar sem hún stýrði viðburðum á borð við Menn- ingarnótt og Vetrarhátíð. Hún var hvatamaður að umsókn borgarinnar um titilinn Bókmenntaborg UNESCO og var annar tveggja stjórnenda verkefnisins hjá Menn- ingar- og ferðamálasviði Reykjavík- ur, skv. kynningu. Auður stýrði fyrstu Lestrarhátíðinni í Reykjavík sem fór fram í október sl. og var um árabil í dag- skrárteymi Ed- inburgh Int- ernational Book Festival. Hún er með BA gráðu í bókmenntafræði frá HÍ og MSc gráðu í Cultural Management & Policy frá Queen Margaret University í Edinborg í Skotlandi. Auður framkvæmdastjóri Listahátíðar Auður Rán Þorgeirsdóttir Ástin nefnist nýr einleikskabarett sem frumsýndur verður í Þjóðleik- húskjallaranum annað kvöld kl. 22. Þar leiða saman að nýju hesta sína þau Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Tómas R. Einarsson, en í sýning- unni hljóma lög af geisladiski þeirra Kossi ásamt öðrum nýjum. Að sögn Tómasar á samstarf þeirra Ólafíu Hrannar sér langa sögu, en þau gáfu út diskinn Koss árið 1995, þar sem hljóma lög eins og „Kyssikonan ægilega, „Halló litli karl“ og „Ástin“, en síðastnefnda lagið í útsetningu Samúels J. Sam- úelssonar var valið Jazzverk ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2004. Aðspurður segir Tómas hug- myndina að kabarettinum í raun komna frá ungum strák sem sagði Ólafíu Hrönn frá því að hann hefði ásamt systur sinni leikið lögin af plötunni Kossi þegar hann var barn. „Ólafía Hrönn bjó auðvitað til ýmsa karaktera í þessum lögum og þá fannst okkur tilvalið að setja upp sýningu þar sem sú pæling væri tek- in lengra. Í Ástinni segir þannig frá söngkonu sem hefur upplifað margt ástarævintýrið. Hún segir frá mis- jafnri reynslu sinni, sársaukanum og reiðinni, draumum og þrám,“ segir Tómas og bendir á að Ólafía Hrönn bregði sér bæði í hlutverk karla og kvenna auk þess sem hún virki hljómsveit og áheyrendur. Leik- stjóri sýningarinnar er Hilmir Snær Guðnason, en höfundur handrits er Tómas. Hljómsveit sýningarinnar skipa auk Tómasar á kontrabassa þeir Ómar Guðjónsson á gítar og Matthías MD Hemstock á trommur. Þess má að lokum geta að aðeins verða sex sýningar á næstu tíu dög- um. silja@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Koss Samstarf Tómasar R. Einarssonar og Ólafíu Hrannar Jónsdóttur á sér langa sögu, en þau sendu frá sér diskinn Koss fyrir sautján árum. Ástarævintýri söngkonunnar  Ástin sýnd í Þjóðleikhúskjallaranum SKYFALL Sýnd kl. 6 - 9 - 10 (Power) SEVEN PSYCHOPATHS Sýnd kl. 8 - 10:20 TEDDI 2D Sýnd kl. 6 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar FYRSTA SINN Á ÍSLANDI! SÝNINGAR Í 4K - KL: 10 POWE RSÝN ING KL. 10 Í 4K VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG -bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is 12 16 L ,,Sú besta í allri seríunni” T.V - Kvikmyndir.is ,,Fyrsta flokks 007” J.A.Ó - MBL ,,Þrælspennandi og skemmtileg frá upphafi til enda” H.V.A - FBL Þ.Þ - FBL - Þ.Þ., FRÉTTATÍMINN - J.I., EYJAFRÉTTIR -H.G., RÁS 2 - K.G., DV - H.S.S., MORGUNBLAÐIÐ- H.V.A., FRÉTTABLAÐIÐ TRYGGÐU Þ ÉR MIÐA Á “SÚ BESTA Í ALLRI SERÍUNNI” T.V. - KVIKMYNDIR.IS ÞRÆLSPENNANDI OG SKEMMTILEG FRÁ UPPHAFI TIL ENDA. H.V.A - FBL FYRSTA FLOKKS 007 J. A. Ó. - MBL Þ.Þ. - FRÉTTATÍMINN SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS SKYFALL KL. 5.20 - 8 - 10 - 10.40 12 TAKEN 2 KL. 8 16 DJÚPIÐ KL. 6 10 SKYFALL KL. 6 - 7 - 9 - 10 12 TAKEN 2 KL. 10.10 16 LOVE IS ALL YOU NEED KL. 8 - 10.30 L DJÚPIÐ KL. 5.50 - 8 10 THE DEEP ENSKUR TEXTI KL. 5.50 10 SKYFALL KL. 5 - 6 - 8 - 9 - 11 12 SKYFALL LÚXUS KL. 5 - 8 - 11 12 TEDDI LANDKÖNNUÐUR KL. 3.40 L FUGLABORGIN 3D ÍSL.TAL KL. 3.40 L TAKEN 2 KL. 10.30 16 DJÚPIÐ KL. 5.50 - 8 - 10.10 10 ÁVAXTAKARFAN KL. 3.40 L KORTIÐ GILDIRTIL 31. janúar 2013 – MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR MOGGAKLÚBBURINN Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða. Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á mbl.is/moggaklubburinn. Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér. FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT EÐA Í SÍMA 569 1100 2 FYRIR 1 AF AÐALRÉTTUM ÁMATSEÐLI Tilboðið býðst frá mánudegi til laugardags eftir kl. 17:00 frá 11. október til 9. nóvember 2012. Framvísið Moggaklúbbskortinu áður en pantað er. Greitt er fyrir dýrari réttinn. Tilboðið gildir ekki með öðrum tilboðum. MOGGAKLÚBBUR Nauthóll Nauthólsvegi 106 | 101 Reykjavík 599 6660 www.nautholl.is www.facebook.com/nautholl nautholl@nautholl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.