Morgunblaðið - 01.11.2012, Page 48
FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 306. DAGUR ÁRSINS 2012
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. Tók stúlkur með sér á sjúkrahúsið
2. Búa saman í gamalli íbúð Ásgeirs
3. Óskar eftir leyfi vegna umfjöllunar
4. „Myndbandið er tilbúningur“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Kvæðamaðurinn Steindór Ander-
sen og tónskáldið og allsherjargoð-
inn Hilmar Örn Hilmarsson halda tón-
leika í Hörpu í dag kl. 17, við verslun
12 tóna, og eru þeir hluti af s.k. „off
venue“ dagskrá Iceland Airwaves og
tónleikaröð Hörpu, Undiröldunni.
Fjöldi tónleika verður í Hörpu frá kl.
12 og fram á kvöld meðan á hátíðinni
stendur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kvæðamaður og
tónskáld á Airwaves
Rútubíla-
söngvar verða
sungnir á uppá-
komu Vonarstræt-
isleikhússins,
sem Sveinn Ein-
arsson og Vigdís
Finnbogadóttir
standa fyrir, í Iðnó
4. og 7. nóvember
nk. kl. 20. Felix Bergsson leiðir söng-
inn með aðstoð Sigurðar Jónssonar,
tannlæknis og píanóleikara. Sveinn
Einarsson heldur utan um dagskrána.
Rútubílasöngvar
í Iðnó með Felix
Nýtt fatamerki, Freebird, verður
kynnt til sögunnar í Þjóðmenningar-
húsinu í dag kl. 17 en um hönnun
fyrir merkið sjá hjónin Gunnar Hilm-
arsson og Kolbrún Pet-
rea Gunnarsdóttir.
Gunnar segir verk-
efnið það mest
spennandi sem þau
hafi fengist við.
Hönnunina má
kynna sér á
freebird-
clothes.com.
Fatamerkið Freebird
í Þjóðmenningarhúsi
Á föstudag Norðan 18-25 m/s og snjókoma, en úrkomulítið
syðra. Mjög snarpir vindstrengir við fjöll. Á laugardag Norð-
an 15-23 m/s og snjókoma, en bjartviðri sunnanlands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan og norðaustan 18-23 m/s
nyrðra, hvessir austast í kvöld. Mjög snarpir vindstrengir
sunnan við fjöll. Sjókoma eða él, en bjart með köflum syðra.
VEÐUR
Keflavík hélt áfram sigur-
göngu sinni í Dominos-
deild kvenna í körfuknatt-
leik í gærkvöld. Keflavík-
urkonur sóttu Val heim að
Hlíðarenda og fögnuðu
þar sigri, 69:65. Keflavík
hefur þar með unnið alla
sex leiki sína í deildinni og
hefur tveggja stiga for-
skot á Snæfell sem vann
öruggan sigur gegn Njarð-
vík á heimavelli sínum,
84:57. »2
Keflavík áfram
á sigurbrautinni
Það var alger bónus að vinna. Ég er
eiginlega ennþá að átta mig á því að
ég sé Norðurlanda-
meistari,“ segir
Katrín Tanja Frið-
riksdóttir úr Ár-
manni sem um
helgina varð
Norðurlanda-
meistari unglinga
í ólympískum
lyftingum. »4
Hefur varla áttað sig
ennþá á sigrinum
Eiður Smári Guðjohnsen, leik-
maður belgíska liðsins Cercle
Brugge, er á skotskónum þessa
dagana. Eiður skoraði fyrir liðið í
fjórða leiknum í röð í gærkvöld og
í fyrsta sinn var hann í sigurliði
en Cercle Brugge vann leikinn
3:1. Eiður gekk til liðs við félagið í
byrjun síðasta mánaðar og er
óðum að komast í leikæfingu. »1
Eiður Smári skoraði
í fjórða leiknum í röð
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Þau gerast enn, kraftaverkin. Fyrir
rúmum mánuði var íslensk fimm
manna fjölskylda á ferðalagi í Róm á
Ítalíu. Gleraugu fimm ára dóttur-
innar týndust á fjölfarinni götu og
þau voru afskrifuð en hugulsemi finn-
anda og kóði á umgjörðinni urðu til
þess að gleraugun komust aftur heil
og ósködduð í réttar hendur á Íslandi
fyrir skömmu.
Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir segir
að fjölskyldan hafi verið í Róm í sept-
ember. Á fyrsta degi hafi hjónin verið
á göngu með börnunum í miðborg
Rómar þegar kerra Ólafíu Bellu,
fimm ára dóttur þeirra, hafi farið á
hliðina og símar og fleira, sem hafi
verið í töskum á kerrunni, farið út um
allt. „Það var svo heitt, hún var sveitt
í andlitinu og við vorum nýbúin að
taka gleraugun af henni, höfðum sett
þau í hólf á kerrunni,“ rifjar Ingunn
Björk upp. „Við skriðum þarna á fjór-
um fótum og tíndum upp dótið, en
þegar við komum á hótelið um kvöld-
ið sáum við að gleraugun höfðu orðið
eftir. Þá var um tvennt að velja; fara
aftur niður í bæ og leita að gleraug-
unum eða sætta okkur við þá stað-
reynd að nýju gleraugun væru horfin.
Seinni kosturinn varð fyrir valinu.“
Ólafía Bella fékk gleraugun í sum-
ar og óvænt aftur í liðinni viku. „Við
vorum viku úti en daginn sem við
komum heim var hringt í okkur frá
versluninni, þar sem við höfðum
keypt gleraugun, og okkur sagt að
góður Samverji hefði fundið gler-
augun og skilað þeim í næstu gler-
augnaverslun í borginni,“ segir Ing-
unn. „Þessi góðhjartaða manneskja
hefur séð að barn með slæma sjón
hafði týnt gleraugum sínum og viljað
gera sitt til að koma þeim í réttar
hendur. Við erum ótrúlega þakklát
fyrir þetta og við höfum aldrei kynnst
svona þjónustu. Eigandi verslunar-
innar fór meðal annars sjálfur í
tollinn og náði í gleraugun og við höf-
um ekki borgað krónu. Þetta er allt
svo jákvætt og hvergi brotalöm í öllu
ferlinu.“
Upplýsingakóði á umgjörðinni
Kjartan Bragi Kristjánsson, eig-
andi Optical Studio í Smáralind, segir
að öll Lindberg gleraugu séu núm-
eruð hverjum kaupanda með agnar-
smáum kóða, sem veiti upplýsingar
um hver sé eigandi, hvar gleraugun
hafi verið pöntuð og hvenær. „Þessar
upplýsingar á gleraugnaumgjörðinni
leiddu til þess að gleraugun komust
til skila,“ segir hann. „Sjóntækja-
fræðingurinn í búðinni í Róm hafði
samband við Lindbergsverksmiðjuna
í Árósum í Danmörku og þar fundu
menn út hverjum þau tilheyrðu. Okk-
ur var tilkynnt um fundinn, gler-
augun send til okkar og það var alsæl
lítil stúlka sem kvaddi okkur eftir að
hafa fengið til baka gleraugun, sem
hún hafði saknað síðan þau týndust í
grennd við Colosseum í Róm.“
Samverji á hverju horni
Gleraugu týnd-
ust í Róm en eig-
andinn fannst hér
Ljósmynd/Bernharð Kristinn
Þakkir Ólafía Bella færir Sigríði Gunnarsdóttur, verslunarstjóra í Optical Studio í Smáralind, blómvönd og fallegt
kort sem hún teiknaði sjálf sem þakklætisvott fyrir hjálpina við að endurheimta gleraugun.
Kveðjur Ólafía Bella sendir öllum sem hlut eiga að máli þakklætiskveðjur.
VEÐUR » 8 www.mbl.is