Morgunblaðið - 13.11.2012, Blaðsíða 35
95 ára
Helgi Magnússon
85 ára
Árni Sigurðsson
Guðfinna Ingvarsdóttir
Ingimar Þórarinn
Vigfússon
Jens Guðmundur
Hjörleifsson
Sigríður Guðrún
Eiríksdóttir
80 ára
Dýrólína Eiríksdóttir
Magnús S. Jósefsson
Viðar Benediktsson
75 ára
Ásbjörg Ellingsen
Jóhannes Eric
Konráðsson
Jón Levi Tryggvason
Pétur Jónsson
Ragnhildur Óskarsdóttir
70 ára
Bergþóra Ólafsdóttir
Monika Sveinsdóttir
Rhodalind Ingólfsdóttir
Sigurlína Davíðsdóttir
60 ára
Gíslunn Loftsdóttir
Hjörtur Þór Ágústsson
Nancy Joanne Ewell
Pétur Ágúst Pétursson
Þorgeir Örlygsson
Þórunn Siemsen
50 ára
Aðalsteinn Jónsson
Atli Sturluson
Guðmundur Birgir
Ólafsson
Gunnlaugur H.
Halldórsson
Helena Unnarsdóttir
Jóhann Gunnlaugsson
Sigfinnur Karlsson
Sigurður H.
Jóhannsson
Þyri Kristjánsdóttir
40 ára
Bjarki Rafn
Guðmundsson
Bjartur Logi
Guðnason
Dagmara Kinga
Szlapczynska
Goran Lukic
Hafsteinn Sverrisson
Helga Björk Þórisdóttir
Inga Berglind
Sigurðardóttir
Íris Ragna
Stefánsdóttir
Jenný Johansen
Jón Már Gunnarsson
Kjartan Guðmundur
Júlíusson
Kjartan Guðnason
Kristbjörg Marta
Jónsdóttir
Linda Kristjánsdóttir
Luyiza Krasovska
Magnús Stephensen
Magnússon
Marzena Stanislawa Lis
Tinna Rut Jóhannsdóttir
Vaka Óttarsdóttir
Védís Sigurjónsdóttir
Þórunn Marinósdóttir
30 ára
Ari Bjarnason
Christine Di Zheng
Daníel Gunnarsson
Elínborg Þrastardóttir
Eyrún Sigmundardóttir
Jóhann Björn
Sveinbjörnsson
Valur Valsson
Til hamingju með daginn
El Salvador á vegum SÞ.
Þú fórst seint í kennaranám, Ás-
laug, laukst því 39 ára að aldri. Engu
að síður varstu orðin fræðslustjóri í
Reykjavík rúmum áratug síðar.
Fór seint í kennaranám
„Já. Þegar ég og fyrri maðurinn
minn vorum í El Salvador varð ég að
kenna börnunum mínum sjálf. Við
voru mjög einangruð þar, en það
styrkti tengsl mín við börnin og ég
var staðráðin í að láta námið ganga
vel. Það gekk eftir og sú reynsla varð
um leið að grunninum að þeim áhuga
og þeirri menntun, reynslu og starfi
sem ég síðan öðlaðist í þessum mik-
ilvæga málaflokki.
Einhver kynni að halda því fram
að ég hefði byrjað á öfugum enda. Ég
held hins vegar að þessi nálgun hafi
verið gæfa mín.“
Áslaug sat í stjórn Fræðslumynda-
safns ríkisins og Ríkisútgáfu náms-
bóka 1978-80, í stjórn Stéttarfélags
grunnskólakennara 1976-78 og í
stjórn Félags skólastjóra og yf-
irkennara 1979-82, í Fræðsluráði
Reykjavíkur, í Menntamálaráði og
stjórn Menningarsjóðs, í stjórn Fé-
lags framsóknarkvenna í Reykjavík,
sat í miðstjórn Framsóknarflokksins,
sat í stjórn Barnaheilla og stjórn
Kvenréttindafélags Íslands og
Bandalags kvenna í Reykjavík, er fé-
lagi í Alfa-deild Alþjóðasamtakanna
Delta Kappa Gama, var formaður
Alfa-deildar og forseti Lands-
sambands Delta Kappa Gamma.
Fjölskylda
Áslaug giftist 6.6. 1986 Jóhanni
Gíslasyni, f. 15.3. 1928, d. 22.6. 2004,
lögfræðingi Útvegsbankans í
Reykjavík. Hann er sonur Gísla Guð-
mundssonar, skipstjóra í Reykjavík,
og Sigríðar Jóhannsdóttur húsfreyju.
Börn Áslaugar og fyrri manns
hennar, dr. Guðmundar Ernis Sig-
valdasonar jarðfræðings sem er lát-
inn, eru Ragnheiður, f. 9.5. 1954, dr. í
eðlisfræði, gift Daníel Friedan, dr. í
eðlisfræði og prófessor í New Jersey
í Bandaríkjunum, og á hún þrjú börn;
Birgir, f. 30.6. 1956, MA í stjórnmála-
og sagnfræði og dósent við HA,
kvæntur Ingibjörgu Elíasdóttur lög-
fræðingi og fjölmiðlafræðingi og á
hann tvö börn; Gunnar Bragi, f.
27.10. 1960, véltækni- og sjáv-
arútvegsfræðingur og MBA í stjórn-
un, kvæntur Ullu Uhrskov matvæla-
fræðingi og á hann þrjár dætur;
Guðrún Bryndís, f. 20.7. 1963, yf-
irlæknir á barna- og unglingageð-
deild Landspítala, gift Kristjáni
Matthíassyni fiðluleikara og á hún
tvö börn.
Systkini Áslaugar: Ragnheiður, f.
29.11. 1923, d. 13.11. 1947, tal-
símakona; Þorgerður, f. 6.11. 1925, d.
1996, veflistakona í Noregi; Ari, f.
7.12. 1926, dr. í eðlisfræði, búsettur í
Bandaríkjunum; Sigrún, f. 2.6. 1928,
fyrrv. fulltrúi við HÍ, búsett í Reykja-
vík; Sigurður Óli, f. 8.9. 1929, d. 31.1.
1984, BSc í eðlis- og stærðfræði,
kennari og bæjarfulltrúi á Akureyri;
Helga, f. 24.12. 1935, fyrrv. læknarit-
ari, búsett í Reykjavík.
Foreldrar Áslaugar voru Brynj-
ólfur Sigtryggsson, f. 7.10. 1895, d.
10.8. 1962, kennari og bóndi, lengst af
í Ytra-Krossanesi, og Guðrún Rós-
inkarsdóttir, f. 3.8. 1905, d. 44.5. 1983,
húsfreyja þar.
Úr frændgarði Áslaugar Brynjólfsdóttur
Áslaug
Brynjólfsdóttir
Guðrún Jónsdóttir
húsfr. í Æðey
Guðmundur Rósinkarsson
hreppstj. í Æðey í Djúpi
Rósinkar Guðmundsson
b. íÆðey
Þorgerður S Sigurðard.
húsfr. í Æðey
Guðrún Rósinkarsdóttir
húsfr. á Ytra- Krossanesi
Valgerður Magnúsdóttir
húsfr. á Kjarna
Sigurður Konráðsson
b. á Kjarna
Soffía Jónsdóttir
húsfr. í Dagveðrartungu
Sigurður Jónsson
b. í Dagveðrartungu í Hörgárdal
Sigtryggur Sigurðsson
b. í Hólkoti í Hörgárdal
Guðrún Emelía Jónsdóttir
ljósmóðir í Hólkoti
Brynjólfur Sigtryggsson
kennari og b. á Ytra-Krossanesi
Guðrún Hallgrímsdóttir
húsfr. að Laugalandi
Jón Einarsson
hreppstj. að Laugalandi á Þelamörk
Sigríður Jónsdótti
húsfr. í Auðbrekku
Stefán R Sigurjónss.
b. á Hall-
fríðarstöðum
Margrét S. Stefánsd.
móðir Stefáns
Baldurssonar, fyrrv.
Þjóðleikhússtj.
Jakob Guðmundss.
smiður á Flateyri
Ragnar Jakobss.
útgerðarm . á Flateyri
Kristján
Ragnarss.fyrrv.
framkvæmdastj.
LÍÚ
Fræðslustjórinn Áslaug Brynjólfs-
dóttir á skrifstofu sinni.
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2012
Diesel.is | Klettháls 15 | 110 Reykjavík | Sími 578 5252 | diesel@diesel.is
www.fiat500.is
SKANNAÐU KÓÐANN OG
SKOÐAÐU MÁLIÐ BETUR
G
R
A
F
IK
E
R
.IS
2.670 ÞÚS. KR.*
NÝR FIAT 500 LOUNGE 2013 VERÐ KR.
Eyðir aðeins 4.8L á hundraði í blönduðum akstri.
*Miðað við gengi á euro 159
KYNNA&
Eysteinn fæddist á Hrauni áDjúpavogi 13.11. 1906.Hann var sonur Jóns
Finnssonar, prests í Hofsþingum,
og k.h., Sigríðar Hansdóttur Beck
húsfreyju. Bróðir Eysteins var dr.
Jakob Jónsson, sóknarprestur í
Hallgrímskirkju og rithöfundur,
faðir Þórs veðurfræðings og rithöf-
undanna Guðrúnar, Svövu og Jök-
uls leikritaskálds sem var faðir rit-
höfundanna Elísabetar, Illuga og
Hrafns. Eysteinn stundaði nám hjá
föður sínum, við Samvinnuskólann
í Reykjavík hjá Jónasi frá Hriflu
1925-27 og við Pitman’s College í
London. Hann gerði ungur banda-
lag við Hermann Jónasson gegn
Jónasi frá Hriflu og hófst yngri til
mannvirðinga í stjórnmálum en
dæmi voru um hér á landi, varð
alþm. 26 ára og ráðherra í Stjórn
hinna vinnandi stétta 1934, aðeins
27 ára. Eysteinn var síðan ráð-
herra í stjórnum Framsókn-
arflokksins fram að Viðreisn, 1959,
lengst af fjármálaráðherra. Hann
tók við formennsku í Framsókn-
arflokknum af Hermanni og gegndi
þar formennsku í stjórnarandstöðu
1962-68. Á þeim árum náði Fram-
sóknarflokkurinn ekki vopnum sín-
um, enda leið flokkurinn fyrir rót-
tækar og velheppnaðar
efnahagsaðgerðir Viðreisnarstjórn-
arinnar, og fyrir það að sjálfstæð-
ismenn kenndu Framsókn einni
um höft og skammtanir fyrri tíma.
Eysteinn þótti með mælskustu
þingmönnum á sínum yngri árum
en hafði ráma og fremur óáheyri-
lega rödd. Hann var með útstæð
eyru eins og sjá má á gömlum
skopteikningum í Speglinum og
fleiri blöðum. Hann var engu að
síður áhrifamikill og merkur
stjórnmálamaður, skarpgreindur,
samviskusamur reglumaður og
sjálfum sér samkvæmur í utanrík-
ismálum sem málsvari vestrænnar
samvinnu – ólíkt Hermanni Jón-
assyni.
Eysteinn var mikill útivist-
armaður og einlægur málsvari
náttúruverndar. Hann var stjórn-
arformaður SÍS 1975-78 og for-
maður Náttúruverndarráðs 1972-
78.
Eysteinn lést 11.8. 1993.
Merkir Íslendingar
Eysteinn
Jónsson
40 ára Róbert er fram-
kvæmdastjóri og fyrrv.
leikmaður Víkings, lands-
liðs- og atvinnumaður í
handbolta.
Maki: Jóhanna Jóns-
dóttir, f. 1971, íþrótta-
kennari.
Synir: Arnór, f. 1999, og
Leó, f. 2006.
Foreldrar: Sighvatur Sig-
urðsson, f. 1950, fram-
kvæmdastjóri, og Elínóra
Sigurðardóttir, f. 1951,
starfsmaður við LHS.
Róbert Þór
Sighvatsson
30 ára Ívar ólst upp í
Hafnarfirði, er stúdent frá
Flensborg og húsasmiður
frá Iðnskólanum í Hafn-
arfirði og stundar nú nám
í hljóðtækni hjá Stúdíó
Sýrlandi og Tækniskól-
anum í Reykjavík.
Foreldrar: Ásta Svein-
björnsdóttir, f. 1955, fé-
lagsliði hjá Sólvangi í
Hafnarfirði, og Sigurjón
Gíslason, f. 1937, véla-
verkfræðingur, búsettur í
Hafnarfirði og í Flórída.
Ívar Atli
Sigurjónsson
70 ára Stefán starfaði hjá
Ræsi í rúm 40 ár og er
söngvari Lúdó Sextetts
og Stefáns frá 1958.
Maki: Oddrún Gunn-
arsdóttir, f. 1944, versl-
unarmaður.
Börn: Svandís Ósk, f.
1962, bankamaður, og
Gunnar Bergmann Stef-
ánsson, 1964, arkitekt.
Foreldrar: Jón B. Stef-
ánsson, f. 1908, d. 1982,
bifvélavirki, og Guðrún
Jónsdóttir, f. 1906, látin.
Stefán
Jónsson