Morgunblaðið - 13.11.2012, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2012
TRAU
ST
OG G
ÓÐ
ÞJÓN
USTA
Í 16 Á
R
HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200 – OPIÐ: VIRKA DAGA: 9:30-18, LAUGARDAGA: 11-14
Verið velkomin
SJÓNMÆLINGAR Á STAÐNUM
VORUM AÐ
TAKA UPP
FULLT AF
FLOTTUM
UMGJÖRÐUM
Ég trúi því varla að ég fái borgað fyrir þetta. Þetta er svoskemmtileg vinna,“ segir Valur Valsson. Hann starfar semverkefnastjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands og kennir
áfanga í tengslum við nýsköpun í Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra á Sauðárkróki. Fab Lab-smiðjan, sem hann stýrir, hefur að-
setur í skólanum.
Fab Lab er stafræn smiðja, þar sem öllum gefst kostur á að koma
og fá afnot af flóknum tækjum og tólum til að hanna, móta og fram-
leiða hluti með hjálp tækninnar eins og leysiskurðvéla, prentara
o.fl. „Það er mest að gera eftir frí; jóla-, páska- og sumarfrí. Þá gefst
fólki tími til að hugsa og kemur til okkar og framleiðir. Allir aldurs-
hópar sækja til okkar. Verkefnin eru ólík, allt frá litlum krökkum
sem framleiða límmiða til að hengja upp í herbergið sitt til eldra
fólks sem hefur tálgað út í tré í marga áratugi og langar að sjá
hvernig vélin vinnur þetta,“ segir Valur.
„Ég menntaði mig fyrir sunnan, fékk heimþrá og þá bauðst mér
þetta starf og ég sé ekki eftir því.“ Valur er í óðaönn að gera upp
gamalt hús, Áshildarholt, sem stendur rétt fyrir utan Sauðárkrók.
Amma kærustunnar, Lilju Gunnlaugsdóttur, bjó þar og verður þar
framtíðarheimili fjölskyldunnar. Valur sagðist ekki ætla að gera
neitt sérstakt í tilefni dagsins nema vera með konunni og dóttur
þeirra, Ásrúnu. Loku væri þó ekki fyrir það skotið að eitthvert húll-
umhæ yrði á laugardaginn. thorunn@mbl.is
Valur Valsson er 30 ára í dag
Afmælisbarnið Valur Sauðkrækingur og stoltur pabbi með Ásrúnu
eins og hálfs árs í fanginu. Hún fór snemma að kanna heiminn.
Draumavinnan á
æskuslóðum
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Hafnarfjörður Freyja Nótt fæddist 14. febrúar. Hún vó 2.800 g og var 46 cm.
Foreldrar hennar eru Hrafnhildur Eik Skúladóttir og Hreinn Gústavsson.
Nýir borgarar
Á
slaug ólst upp í Ytra-
Krossanesi við Ak-
ureyri. Hún lauk stúd-
entsprófi frá MA 1952,
cand. phil.-prófi frá HÍ
1953, stundaði nám í þýsku við há-
skólann í Göttingen 1953-54 og 1957,
var við nám og húsmóðurstörf í
Washington DC og í Kaliforníu í
Bandaríkjunum 1959-61, stundaði
spænskunám í El Salvador 1968-69,
lauk kennaraprófi frá KÍ 1971, sótti
ýmis námskeið í stjórnun og kennslu
hér á landi og kennslufræðinámskeið
erlendis, lauk sérkennaraprófi frá
KHÍ 1986 og MA-prófi í uppeldis- og
kennslufræði 1998.
Áslaug var einkaritari hjá Trygg-
ingastofnun ríkisins 1955-57, kennari
við Vogaskóla 1962-63, fram-
kvæmdastjóri Bóksölu stúdenta við
HÍ 1966-68, kennari við Fossvogs-
skóla 1972-73, yfirkennari þar 1973-
82 og skólastjóri 1974-75, fræðslu-
stjóri Reykjavíkur 1982-96 og um-
boðsmaður foreldra og skóla í
Reykjavík 1996-2001. Áslaug dvaldi
með manni sínum um eins árs skeið í
Áslaug Brynjólfsdóttir, fyrrv. fræðslustjóri í Reykjavík – 80 ára
Fjölskyldumynd frá 1969 Áslaug og Guðmundur, ásamt Ragnheiði, Birgi, Gunnari Braga og Guðrúnu Bryndísi.
Málsvari skólabarna
Áslaug og Jóhann Áslaug með seinni manni sínum er henni var veittur
riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu, að Bessastöðum árið 1997.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is