Morgunblaðið - 13.11.2012, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 2012
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Garðar
Faglærðir garðyrkjumenn
geta bætt við sig verkefnum.
Trjáklippingar, trjáfellingar, hellu-
lagnir og viðhald garða.
Ingvar s. 8608851
Jónas s. 6978588.
Gisting
Gisting Akureyri
Skógarhlíð 27, 601 Akureyri, 160 fm
einbýlishús, 4 svefnherbergi. Að-
staða fyrir ca. 13 manns. Leyfilegt að
hafa hund í Skógarhlíð. Er einnig með
fleir sumarbústaði við Akureyri og
allir með heitum potti.
orlofshus.is Leó 897 5300
Hvataferðir, fyrirtækjahittingur,
óvissuferðir, ættarmót
Frábær aðstaða fyrir hópa. Líka
fjölskyldur. Heitir pottar og grill.
Opið allt árið. Sími: 486 1500.
Minniborgir.is
Gisting á góðum stað.
Snyrting
Babaria-snyrtivörur loksins á
Íslandi.
Babaria er fjölbreytt vörulína sem er
unnin úr náttúrulegum hráefnum og
hentar þörfum allrar fjölskyldunnar
fyrir alla daglega umhirðu húðar.
Vörurnar fást í netversluninni
www.babaria.is
Geymslur
Geymslur miðsvæðis í Reykjavík
fyrir bretti og húsvagna.
Uppl. í síma 899 8607 frá 8-18.
arne@visir.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Staðgreiðum gull,
demanta og úr.
Hringar, hálsmen, armbönd,
rolex,cartier, patek philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér
að kostnaðarlausu.
www.kaupumgull.is
upplýsingar í síma 661 7000
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Bókhald
N.P. þjónusta. Óska eftir bókhalds-,
eftirlits- og gæslustörfum.
Uppl. í s. 861 6164.
Þarftu aðstoð við reksturinn ?
Við aðstoðum þig við:
bókhaldið,
launaútreikninga,
virðisaukaskattsuppgjör,
gerð ársreikninga,
skattframtalið,
samskipti við RSK.
Ókeypis kynningartími
Rekstur og skattskil sf.
Suðurlandsbraut 16.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Bílaþjónusta
Húsviðhald
Hreinsa þakrennur
og tek að mér ýmis
smærri verk .
Sími 847 8704,
manninn@hotmail.com
Múr- og lekaviðgerðir
Sveppa- og örverueyðing
Vistvæn efni notuð
Húsaviðgerðir
www.husco.is
Vönduð vinna
Áratuga reynsla
Sími 555-1947 Gsm 894-0217
Kaupi silfur
Vantar silfur til bæðslu og endurvinn-
slu. Fannar verðlaunagripir,
Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi.
fannar@fannar.is - sími 551 6488.
GULLFALLEGUR LAND ROVER
Range Rover H S E. SVARTUR MEÐ
SVÖRTU LEÐRI, ekinn 120 Þ. MÍLUR,
bensín, sjálfskiptur. Staðgr. verð 1990
þús.. Rnr.105476.
ÓSKUM EFTIR VINNUVÉLUM OG
TÆKJUM Á SKRÁ.
sala@bifreidar.is
bifreidar.is
Réttarhálsi 2, 110 Reykjavík.
S. 577 4777.
http://www.bifreidar.is
Blekhylki og tónerar
í flestar gerðir prentara, 50-70%
ódýrari, öll hylki framleidd af
ORINK.
Blekhylki.is, Fjarðargötu 11,
Hafnarfirði, sími 517-0150.
Til sölu Bílar
Kristall ljósakrónur - Ný sending
Ný sending með glæsilegar kristals-
ljósakrónur, veggljós, matarstell og
kaffistell, kristalsglös, styttur og
skartgripir til sölu.
Bohemia Kristall, Glæsibær
S. 571 2300
Enn á ný hefur
knérunnur sæmdarhjónanna
Ásu Thordarson og Jóns Gríms-
sonar, löggilts endurskoðanda
og málflutningsmanns á Ísafirði
á öldinni sem leið, orðið fyrir
höggi, er eldri dóttir þeirra
hjóna, Steinunn Ragnheiður,
kvaddi 92 ára hérvist sína hinn
23. október sl. eftir langa og
stranga sjúkrahúsvist á Land-
spítalanum.
Didda, en því nafni gegndi
hún meðal ættingja sinna og
vina, var 3. barn foreldra sinna.
Steinunn R.
Jónsdóttir Hunt
✝ Steinunn Ragn-heiður Jóns-
dóttir fæddist 25.
ágúst 1920 á Suður-
eyri í Súgandafirði.
Hún andaðist á
Landakotsspítala
23. október 2012.
Útför hennar fór
fram frá Neskirkju
6. nóvember 2012.
Að Diddu látinni
lifa hana tvö
yngstu systkinin,
þau Inga Þórhildur
og Ragnar Áki.
Didda var skírð í
höfuðið á móður-
ömmu sinni, Stein-
unni Ragnheiði
Guðmundsdóttur,
sem ættuð var frá
Gemlufalli í Dýra-
firði, og var Didda
sú fyrsta í röð annarra fagurra
svanna í þessari ætt, sem þetta
fallega nafn hlaut. Didda var
fríð kona yfirlitum og fönguleg
og bjó yfir miklum þokka, var
vel lesin og fjölfróð og bjó að
mikilli lífsreynslu eftir að hafa
búið lungann úr ævi sinni í
Vesturheimi.
Kynni þess, sem hér skrifar,
og Diddu hófust er hann 1972
kvæntist Ásu Hönnu, bróður-
dóttur hennar.
Ása Hanna hafði á tánings-
árum sínum dvalið um tveggja
ára skeið í Toranto í Kanada
hjá Diddu og eiginmanni hennar
Miles O. Hunt, sem var breskur
þegn af írsku bergi brotinn. Þau
hjónin höfðu kynnst og giftst
heima á Íslandi nokkrum árum
áður og eignuðust þar dótturina
Maureen Ásu Jane. Af versn-
andi atvinnuárferði í Kanada
tekur fjölskyldan sig aftur upp
og flytur til Sunnyvale í Kali-
forníu, þar sem afkomumögu-
leikar voru snöggtum betri en í
Kanada. Rétt fyrir jólin 1972
flugum við Ása Hanna vestur til
Kaliforníu og dvöldum á heimili
þeirra hjóna og nutum mikillar
gestrisni. Þarna efldust kynni
okkar Diddu fyrir alvöru og
hafa varað til hennar hinsta
dags. Mikil gleði ríkti í ranni
þeirra hjóna, Diddu og Miles,
þar sem tveir litlir dóttursynir
trítluðu um gólf, annar árs gam-
all og hinn tveggja. En allt í
einu, án fyrirvara, dregur ský
fyrir sólu og tilvera gærdagsins
hrundi til grunna! Degi eftir
komu okkar til Íslands berst
ættinni helfregn að vestan, að
einkadóttirin, Maureen Ása,
hafi dáið á voveiflegan hátt.
Þessi atburður hvíldi eins og
mara á þeim hjónum og leiddi
til þess, að leiðir þeirra skildi.
Árið 1993 flutti Didda til Ís-
lands og hefur vart liðið sá dag-
ur síðan, að þær frænkurnar
hafi ekki talað saman og Didda
verið tíður gestur okkar og við
notið samveru með henni á
flestum stórhátíðum þessi síð-
ustu 20 ár ævi hennar. Sam-
band hennar við dóttursynina
og fjölskyldur þeirra hefur ver-
ið mjög náið í gegnum tíðina,
hún hefur farið í nokkrar heim-
sóknir til þeirra til Idaho, þar
sem bræðurnir, Brandon og
Aaron, búa stutt hvor frá öðr-
um. Sá eldri, Brandon, er sjó-
maður og rær frá verstöð í
Alaska og er oft 2 til 3 mánuði
að heiman í senn, en hinn, sá
yngri, Aaron, er barnaskóla-
kennari. Báðir eru vel kvæntir
og eiga börn og buru. Báðir
hafa þeir og fjölskyldur þeirra
komið til Íslands nokkrum sinn-
um, ömmu sinni til ómældrar
gleði.
Blessuð sé heilög minning
Steinunnar Ragnheiðar Jóns-
dóttur.
Gylfi Guðmundsson.
Didda frænka, systir hans afa
Hjartar. Didda frænka sem bjó
í Ameríku og sendi okkur
skemmtilegustu jólagjafirnar og
kom reglulega í heimsókn og afi
Hjörtur og mamma kættust.
Svo flutti Didda frænka heim
frá Ameríku og við kynntumst
frænku okkar og voru það ljúf
og góð kynni. Við höfum brallað
margt saman, átt marga sam-
verustundina og það hefur verið
okkur systrum ómetanlegt að
geta verið frænku okkar innan
handar í lífsins amstri. Mamma
og Didda frænka áttu náið sam-
band og Didda var mikið heima
á Víðimelnum, hvort sem var á
virkum degi eða á hátíðisdög-
um, hún var hluti af litlu fjöl-
skyldunni okkar.
Strákarnir hennar í Ameríku
áttu hjarta hennar og þegar
litlu barnabarnabörnin bættust
í hópinn deildi hún með okkur
fréttum og sýndi okkur myndir,
stolt amma, það fór ekki
framhjá neinum. Aaron og
Brandon hafa verið duglegir að
heimsækja ömmu sína síðast-
liðin ár og það voru bestu dag-
arnir hjá Diddu frænku, sér-
staklega ef litlu krílin voru með
í för.
Síðasta ár hefur verið frænku
erfitt, Elli kerling var henni
snúin. Undanfarna mánuði
dvaldi hún á sjúkrahúsi eftir að
hafa dottið í gönguferð í bæn-
um, þetta var erfiður tími. Síð-
asta mánuðinn þvarr lífslöng-
unin og að lokum kom að
stundinni sem bíður okkar allra.
Það var tregablandin stund sem
við systur áttum ásamt Ingu
frænku og Agga frænda á
Landakoti þar sem Didda okkar
kvaddi en við erum þess fullviss
að einkadóttirin Maureen Ása
Jane hafi tekið vel á móti móður
sinni sem var búin að bíða end-
urfundanna lengi.
Blessuð sé minning yndis-
legrar frænku.
Helga Maureen og Ásta
Camilla Gylfadætur.
Í minningu föðursystur minn-
ar Steinunnar Ragnheiðar Jóns-
dóttur Hunt, eða Diddu frænku
eins og hún var kölluð, langar
mig að skrifa nokkrar línur um
þessa merkilegu og góðu konu
sem ég var svo heppinn að eiga
að.
Didda frænka fór ung stúlka
til Vesturheims og bjó bæði í
Kanada og í Bandaríkjunum í
nærri hálfa öld. Hún flutti heim
til Íslands árið 1995, komin á
eftirlaunaaldur og eyddi síðustu
árum ævi sinnar hér.
Í minningunni man ég sem
barn að mesti spenningurinn
var að opna jólapakka frá Diddu
frænku, í þeim pökkum leynd-
ust gersemar og sælgæti sem
ekki fékkst á Íslandi þess tíma.
Fjarlægðin milli landa var mikil
og lítið um ferðalög, því er hlý-
hugur hennar í garð systkina-
barna sinna einstakur. Mörg
okkar hafði hún aldrei augum
litið framan af, en gjafir og fal-
legar kveðjur frá Diddu frænku
voru mér og fleirum mikil gleði
og skipuðu henni sérstakan
sess.
Ekki var lífið endalaus ham-
ingja hjá henni frænku minni
eins og við má búast á langri
ævi, en hún þurfti að reyna
meira en margur. Hún varð fyr-
ir miklu áfalli og harmi þegar
hún missti einkadóttur sína
Maureen aðeins tuttugu og fjög-
urra ára að aldri frá tveimur
drengjum, tveggja og þriggja
ára. Þessa byrði bar hún með
reisn alla tíð, þó að sárið hafi
aldrei gróið um heilt. Það var
þó gaman að sjá hversu mikla
gleði strákarnir hennar í Am-
eríku gáfu henni, þeir Aaron og
Brandon. Barnabarnabörnin
komu hvert af öðru og hún upp-
lifði það að sjá fjölskyldu sína í
Vesturheimi dafna og blómstra.
Fyrir rúmum þremur áratug-
um kynntist ég vel Diddu
frænku, þegar ég dvaldi hjá
henni í Kaliforníu á árunum
1980 svo aftur 1983, þar sem ég
starfaði sem sjómaður. Didda
bjó ein í litla húsinu sínu
skammt sunnan við San Franc-
isco þar sem hún var búin að
koma sé vel fyrir. Didda opnaði
heimili sitt fyrir frænda sínum
og var það mér ómetanlegt
skjól meðan á dvöl minni vest-
anhafs stóð. Er það ógleyman-
legt hvað var gaman að vera
með henni og húmorinn hennar
hafði ekkert kynslóðabil. Marg-
ar minningar streyma fram í
hugann, eins og þegar sumar-
hitinn var að gera út af við okk-
ur og við settumst saman út í
stóra ameríska kaggann sem ég
átti, til að kæla okkur. Þetta
fannst henni vera hin besta
skemmtun, var nóg til að Didda
fékk delluhlátur eins og henni
var einni lagið. Þetta væri jú al-
veg ófært að vera frekar í bíln-
um en húsinu. Þarna gafst tæki-
færi til að launa frænku minni
greiðasemina, og ég útvegaði
kælingu í húsið svo ekki þyrfti
að notast við kaggann framar.
Eftir að Didda kom heim var
hún fljót að aðlagast lífinu hér
heima meðal vina sinna, systk-
ina og ættingja og kom sér vel
fyrir á notalegu heimili.
Ég var svo heppinn að fá að
kynnast vel þessari frænku
minni sem varð mér svo kær og
njóta samveru hennar síðustu
árin. Mun ég ætíð minnast
hennar með gleði, hlýju og
þakklæti.
Ég og fjölskylda mín vottum
frændum mínum, Aaron, Brand-
on og fjölskyldum, og systkin-
um hennar, Agga og Ingu,
dýpstu samúð vegna fráfalls
Diddu.
Bárður Jón Grímsson.
Elsku amma mín. Það er aldrei
auðvelt að kveðja, hvað þá mann-
eskju eins og þig sem hefur alltaf
verið til staðar. Alltaf á leiðinni til
Akraness, þegar ég sá stromp-
inn, vissi ég hvar þú varst og að
ég myndi sjá þig innan skamms í
kaffi á Suðurgötu 109. Ég vissi að
þar gæti ég gengið að því vísu að
mæta þér í dyragættinni með
bros sem myndi lækna ferða-
þreytuna um leið og faðmlag sem
Sjöfn B. Geirdal
✝ Sjöfn B. Geir-dal fæddist á
prestssetrinu
Innra-Hólmi 2.
mars 1935. Hún lést
á sjúkrahúsi Akra-
ness 18. október
2012.
Útför Sjafnar B.
Geirdal fór fram
frá Akraneskirkju
26. október 2012.
myndi bjóða mig
velkominn.
Inn gekk maður í
hlýju og notalegheit
en manni var aldrei
kalt í heimsókn hjá
þér, alveg sama hve-
nær ársins maður
kom. Ég held að það
hljóti að hafa haft
eitthvað með það að
gera hversu
hjartahlý mann-
eskja þú varst, það hlýtur að hafa
smitað út frá sér. Inni í stofu
mátti ætíð finna samsafn góðgæt-
is á borð við nammi, ís og kökur.
Á borðum var alltaf eitthvað sem
líka hafði verið til í síðustu heim-
sókn í bland við eitthvað nýtt og
eitthvað klassískt. En ég fattaði
ekki fyrr en seint að þú værir að
fylgjast með hvað manni þætti
best og sýndi mestan áhuga svo
þú gætir örugglega átt eitthvað
sem manni þætti gott í næstu
heimsókn.
Að heimsókn lokinni og á leið-
inni út í bíl stóðstu alltaf í glugg-
anum að fylgjast með og vinka í
kveðjuskyni. „Bæ bæ amma“
kallaði ég og vinkaði alveg þang-
að til ég sá þig ekki lengur. Ég
kann ekki að kveðja og sleppa af
þér takinu, því ég trúi ekki að þú
sért farin og ég sjái þig ekki leng-
ur. Að ég sé búinn að vinka þér í
hinsta sinn.
Ég átta mig ekki á þessu enn.
En það kemur smátt og smátt
þegar ég fæ ekki afmæliskort frá
þér pakkað inn í þrjú umslög sem
öll eru innsigluð með límbandi,
þegar ég fer til Akraness og þú
ert ekki þar, þegar ég keyri Suð-
urgötuna en stoppa ekki við 109
til að fara í heimsókn og þegar ég
sé þig ekki lengur í glugganum til
að vinka mér til baka. Það er
aldrei auðvelt að kveðja, sérstak-
lega þegar þú ert ekki lengur til
staðar.
Þinn
Skúli Bragi.