Morgunblaðið - 04.12.2012, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2012
Deiliskipulag Landspítalans var
samþykkt á aukafundi skipulagsráðs
Reykjavíkur í gær. Fulltrúar Sjálf-
stæðisflokks greiddu atkvæði gegn
tillögunni og segja að ekkert tillit
hafi verið tekið til rúmlega 800 at-
hugasemda borgarbúa. Fulltrúi
meirihlutans segir aftur á móti að
það hafi verið gert á ýmsan hátt.
„Fá mál hafa átt sér jafn langan
aðdraganda eða jafn langan kynn-
ingarferil eins og þessi fram-
kvæmd,“ sagði Hjálmar Sveinsson,
fulltrúi meirihlutans í skipulagsráði,
í samtali við mbl.is í gær. Að sögn
Hjálmars var farið vandlega yfir at-
hugasemdir um umferðarmál sem
bárust í kynningarferlinu og gerðar
ýmsar úttektir þar að lútandi. Hann
segir að búið sé að þrengja verulega
að því byggingasvæðinu og hann
heilmiklar breytingar hafi verið
gerðar í takt við efni athugasemd-
anna.
Þessu hafnar Júlíus Vífill Ingvars-
son, sem sæti á í skipulagsráði fyrir
hönd Sjálfstæðisflokksins. „Þær
breytingar sem voru gerðar á skipu-
laginu eiga ekki við um auglýst deili-
skipulag, heldur allt annað ferli,“
sagði Júlíus Vífill í samtali við mbl.is.
„Mér finnst það vera mjög merkilegt
að svona umdeilt skipulag, sem fær á
níunda hundrað athugasemdir, skuli
hafa verið afgreitt úr skipulagsráði
án þess að tekið hafi verið tillit til svo
mikið sem einnar einustu athuga-
semdar.“
Segja fjármögnun óljósa
Í bókun sjálfstæðismanna um af-
greiðsluna er bent á að ekki liggi fyr-
ir samkomulag við lífeyrissjóði um
fjármögnun verkefnisins. Fjármögn-
unina þurfi að hugsa upp á nýtt sem
opinbera framkvæmd. „Skipulags-
ráð ætti því að nýta tímann til þess
að skoða þetta mál betur í stað þess
að boða til aukafundar í skipulags-
ráði og í borgarstjórn til þess að
klára málið á miklu meiri hraða en
talist getur eðlilegt,“ segir í bókun-
inni. „Lífeyrissjóðirnir og aðrir sem
ætluðu að koma að þessu hafa ekki
verið í sambandi við framkvæmdaað-
ilann undanfarin tvö ár. Mér finnst
alveg sérstaklega skrýtið að verið sé
að reka á eftir Reykjavíkurborg með
þeim hætti sem gert hefur verið, ef
fjármagnið liggur ekki fyrir,“ segir
Júlíus Vífill.
Hjálmar segir fjármögnun vera
verkefni stjórnvalda. „Við erum ekki
að byggja spítalann, við erum ein-
göngu að afgreiða deiliskipulag,“
segir hann.
Kosningakeimur af málinu
Nágrannasveitarfélög Reykjavík-
ur þurfa að samþykkja svæðisskipu-
lagið, en ekki hefur náðst samstaða
um það. Skipulaginu var hafnað í
Kjósarhreppi og ekki hefur verið
tekið afstaða til þess á Seltjarnar-
nesi. Hjálmar telur að það muni ekki
stöðva skipulagsráð í því að sam-
þykkja tillögurnar.
Júlíus Vífill segir vinnubrögðin
bera keim af kosningavetri. „að er
ekki hægt að horfa fram hjá því að
það eru kosningar framundan. Það
er einhvern veginn sá bragur á þessu
að það eigi að koma þessu í gegn fyr-
ir kosningar.“
annalilja@mbl.is
Enn er deilt um
deiliskipulag spítala
Meirihlutinn segir fá mál hafa fengið jafn langan kynning-
arferil Minnihluti segir málið bera keim af kosningavetri
Landspítalinn Nýtt deiliskipulag Landspítalans var samþykkt í gær.
Betra kaffi!
Kaffivél með hitabrúsa
Tekur aðeins 7 mínútur að hella upp á
2,2 lítra af kaffi.
Síðumúla 16 ~ 108 Reykjavík ~ Sími: 580 3900 ~ fastus.is
Fastus til framtíðar
Skipholti 3 - Sími: 552 0775 - www.erna.isERNA GULL- OG SILFURSMIÐJA
Fallega
jólaskeiðin
frá Ernu
Jólaskeiðin 2012
er hönnuð af
Sóleyju Þórisdóttur.
Skeiðin er smíðuð á
Íslandi úr ósviknu silfri.
Verð: 18.500.- stgr.
Silfurmunir og skartgripir síðan 1924
Jólasöfnun Mæðrastyrksnefndar
Reykjavíkur er hafin
Það hefur sýnt sig að á erfiðum tímum stendur
íslenska þjóðin saman og sýnir stuðning,
hver og einn eftir bestu getu.
Hægt er að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119
Einnig er opið fyrir síma á skrifstofutíma
s. 551 4349, netfang: maedur@simnet.is
Pallíettur um jólin
Verð 7.900 kr.
Fleiri litir
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is Ríta tískuverslun
Laugavegi 63 • S: 551 4422
laxdal.is
Vertu vinur á
LOÐSKINNSHÚFUR – SKINNKRAGAR
KASMÍRTREFLAR
SPARIBOLIR
PEYSUÚRVAL
BLÚSSUÚRVAL
JÓLAGJAFIR KONUNNAR