Morgunblaðið - 04.12.2012, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2012
Kaffihúsakeðjan Starbucks áformar
að breyta skattastefnu sinni í Bret-
landi, þannig að hún greiði skatt af
hagnaði sínum á Bretlandseyjum, en
það hefur einungis einu sinni gerst á
undanförnum 15 árum. Breska rík-
isútvarpið, BBC, greindi frá þessu í
gær. Þar kom fram að eigendur
hinnar bandarísku kaffihúsakeðju
væru með þessu móti að bregðast við
harðri gagnrýni í Bretlandi að und-
anförnu, á það að keðjan hefði skotið
sér undan því að greiða skatt af
hagnaði sem hefur orðið til í landinu.
Starbucks hefur komist hjá því að
greiða tekjuskatt í allan þennan
tíma, með því að greiða 4,7% heildar-
sölunnar í Bretlandi beint til systur-
félags í Hollandi og þannig getað tal-
ið fram mun minni hagnað í
Bretlandi.
Í skýrslu sem birt var í London í
gær er haft eftir Margaret Hodge,
formanni fjárlaganefndar breska
þingsins, að bresk skatta- og tolla-
yfirvöld þyrftu að vera „aðgangs-
harðari og ákveðnari í innheimtu
sinni, til þess að koma í veg fyrir að
alþjóðleg fyrirtæki geti skotið hluta
hagnaðar síns undan skatti“.
Ákveði stjórn Starbucks að breyta
skattastefnu sinni, verður það til-
kynnt á morgun, miðvikudag, að
sögn BBC, áður en George Osborne,
fjármálaráðherra flytur haustræðu
sína á breska þinginu.
AFP
Gagnrýni Kaffikeðjan Starbucks virðist ætla að láta undan gagnrýni á
skattastefnu sína á Bretlandseyjum og byrja að greiða skatt af hagnaði.
Starbucks er
að gefa eftir
Breyta skattastefnu í Bretlandi
Nú geta allir fengið iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/
Lars Christensen, forstöðumaður hjá greiningardeild Danske
Bank, kynnir nýja greiningu á Íslandi. Að því loknu verður umræða
um horfur Íslands og þá kerfislegu áhættuþætti sem helst gætu
komið í veg fyrir jákvæða þróun hérlendis, ekki síst vandamál sem
skapast geta á næstu árum tengd gjaldeyrishöftum og greiðslu-
jöfnuði við útlönd.
Hversu stór er vandinn og hvað er helst til ráða?
Sigríður Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálastöðugleika
Seðlabankans og Hrafn Árnason, forstöðumaður stýringar eigna hjá
Íslandssjóðum taka þátt í umræðunum ásamt Lars.
Fundarstjóri er Stefán Sigurðsson, framkvæmdastjóri VÍB - Eignastýringarþjónustu Íslandsbanka.
Fylgstu með fundinum í beinni útsendingu á www.vib.is á morgun,
miðvikudag, kl. 08.30 til 10.00.
Fylgstu með fundinum í beinni
útsendingu eða horfðu á upptöku af
honum síðar á www.vib.is.
Skráðu þig á póstlistann okkar á
www.vib.is/postlisti svo þú missir
ekki af fundum okkar í framtíðinni.
Jákvæðar horfur
eða blikur á lofti?
Íslandsbanki | Kirkjusandi | 155 Reykjavík | Sími 440 4900 | vib@vib.is | www.vib.is
Markmið funda VÍB er að stuðla að upplýstri og faglegri umræðu um mikilvæg mál á sviði eignastýringar, viðskipta og efnahagsmála.
VÍB er eignastýringarþjónusta Íslandsbanka.
Opið: mán-fös 12:30 - 18:00 og laugardaga til jóla 12:00 - 16:00
Dalvegi 16a - Rauðu múrsteinshúsunum, 201 Kópavogi - S. 517 7727 - nora.is
Jólagjafir og jólaskraut fyrir heimilið og bústaðinn
Handsmíðuð piparkvörn kr. 8800,-
Krakkamatarsett - Diskur, skál
kanna, eggjabikar og taska
kr. 6590,-
Parakönnur kr. 3900,-
Bakki og 2 könnur
Aðventukrans kr. 5990,-
Glerdiskur 26,5 cm kr. 1390,-
Desertskál á fæti kr. 1790,-
Rauður diskur kr. 1990,-