Morgunblaðið - 04.12.2012, Síða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2012
Í skoðanakönnun sem MMR gerði
fyrir Landssamband íslenskra út-
vegsmanna kemur í ljós að mikill
meirihluti telur stjórnkerfi fisk-
veiða vera betra hér á landi en í
öðrum löndum.
71,7% þeirra sem tóku afstöðu
telja að stjórnkerfi fiskveiða sé
heldur eða mun betra en í öðrum
löndum. 11,2% telja kerfið alveg
eins en 17,1% telur stjórnkerfi
fiskveiða hér á landi verra en í
öðrum löndum. Þetta kemur fram
í frétt á vef LÍÚ.
LÍÚ lét einnig kanna hug fólks
til mikilvægis íslensks sjávar-
útvegs. Niðurstöðurnar voru af-
gerandi en 96,9% telja íslenskan
sjávarútveg annaðhvort mjög eða
einstaklega mikilvægan fyrir Ís-
land.
Könnunin var gerð dagana 9.-
13. nóvember meðal Íslendinga á
aldrinum 18-67 ára og var svar-
fjöldinn 879.
Telja kerfið
betra en ann-
ars staðar
Nær allir telja sjáv-
arútveg mikilvægan
Mikilvæg grein Gert að fiski.
Siglingastofnun hefur óskað eftir
tilboðum í gerð nýrrar þjónustu-
bryggju í Landeyjahöfn. Sigurður
Áss Grétarsson, forstöðumaður
hafnasviðs Siglingastofnunar, segir
að um sé að ræða nýja bryggju og
verður hún staðsett gegnt ferju-
bryggjunni í höfninni.
„Þessi bryggja er aðallega hugs-
uð fyrir dýpkunarskipin og eins
vegna almenns viðhalds á mann-
virkjum þarna við hausinn og
hafnargarðana,“ sagði Sigurður.
Hann segir að upphaflega hafi ver-
ið ætlunin að nota bryggju Herj-
ólfs fyrir dýpkunarskip og önnur
skip sem sinni reglulegu viðhaldi
hafnarinnar. Það hafi hins vegar
ekki reynst vel að nota ferju-
bryggjuna til þess.
Sigurður sagði aðspurður að nýja
bryggjan væri ekki vísbending um
að til stæði að útvíkka hlutverk
Landeyjahafnar. „Það er ekki hugs-
unin,“ sagði Sigurður.
Samkvæmt auglýsingu Siglinga-
stofnunar eftir tilboðum í gerð
þjónustubryggjunnar felst í verk-
efninu meðal annars uppúrtekt og
endurröðun á um 1.700 m3 af
grjóti, niðurrekstur 34 platna í
stálþil, stálþilsfestingar, um 1,300
m3 fylling, steypa um 44 metra
kantbita og steypa 220 m2 þekju.
Tilboð verða opnuð hjá Siglinga-
stofnun 18. desember kl. 11.00.
Verkinu skal vera lokið eigi síðar
en 31. maí 2013.
gudni@mbl.is
Ný bryggja í Landeyjahöfn
Morgunblaðið/RAX
Landeyjahöfn Nú á að bæta við þjónustubryggju gegnt ferjubryggjunni.
Siglingastofnun óskar eftir tilboðum í þjónustubryggju
sem er ætluð dýpkunarskipum og öðrum þjónustuskipum
Lögreglan á
Suðurnesjum
hefur að und-
anförnu haft til
rannsóknar
mál er varðar
tilraun til
smygls á kóka-
íni til landsins.
Tollverðir í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar stöðvuðu
tvær íslenskar stúlkur um tvítugt
sem voru að koma frá London 20.
nóvember síðastliðinn. Þær reynd-
ust hafa kókaín innvortis, samtals
tæplega 300 grömm.
Að sögn lögreglunnar voru stúlk-
urnar úrskurðaðar í gæsluvarðhald
til 2. desember, en hafa verið látnar
lausar. Rannsókn lögreglunnar er á
lokastigi og ekki hafa fleiri verið
handteknir vegna málsins.
Tvær konur
teknar með
kókaín innvortis
Í flestu sem viðkemur jólahaldinu er best að halda í hefðirnar
og þar er MS rjóminn hvergi undanskilinn. MS rjóminn er þessi
gamli góði sem er samt alltaf ferskur. Hann myndi endast á
milli jóla og nýárs – ef hann væri ekki svona góður.
Jólarjómi
allra landsmanna