Morgunblaðið - 04.12.2012, Síða 24
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2012
Það er eins og það
komi einhver deyfð
yfir atvinnulífið í apr-
ílmánuði ár hvert.
Oft lenda páskar í
þessum mánuði, síðan
sumardagurinn fyrsti
og 1. maí rétt á eftir.
Ég man apríl-
mánuð þar sem að-
eins 14 vinnudagar
voru í mánuðinum,
innan við helmingur
mánaðarins. Margir eru hikandi
við að byrja á nýjum verkefnum
fyrir páska og fresta þeim fram
yfir þá. Svipað má segja um des-
embermánuð. Margir fleiri frídag-
ar koma í öðrum mánuðum t.d.
annar í hvítasunnu, 17. júní, 1. maí
eins og áður var getið, versl-
unarmannahelgin o.fl.
Alls eru þessir frídagar 14, en
sumir lenda á helgum, svo að með-
altalið er um 11 dagar.
Þessum lögbundnu frídögum er
ákaflega illa raðað niður, bæði fyr-
ir launþega og vinnuveitendur,
enda ekki ákveðnir af þeim né fyr-
ir þá. Menn taki eftir að það eru
engir lögbundnir frídagar um há-
bjargræðistíma landbúnaðarins,
nema frídagur verslunarmanna,
sem byrjaði 1891.
Sumir þessara frídaga lenda
inni í vinnuvikunni, stytta hana og
skera í sundur.
Sú starfsemi fer vaxandi, sem
ekki er hægt að loka á þessum
dögum. Má þar nefna sjúkrahús,
heilsugæslu, löggæslu, örygg-
isgæslu, sjónvarp, ferðaþjónustu,
samgöngur, skemmtanir, veitinga-
og gistihús, flug, siglingar, fisk-
veiðar, verslun í æ ríkari mæli
o.fl. o.fl.
Það er ekki lengur í samræmi
við lýðræðislega þróun samtímans
að skipa mönnum að ofan, hvenær
þeir taka sér frí, heldur fer það
eftir þörfum hvers og
eins.
Ég legg til að þess-
ir lögskipuðu frídagar
verði afnumdir en
þessum 11 frídögum
bætt við orlofið.
Síðan er það hlut-
verk launþega og
vinnuveitenda að
semja um hvenær
þessir frídagar verða
teknir út.
Þá geta menn bætt
þessum fríum við
helgar sem þeim hentar en eru
ekki skyldir til að taka 3ja daga
helgar í apríl eða maí t.d.
Atvinnulífið verður fyrir minni
truflunum og verður afkastameira.
Nú eru fjárfestingar, vélar, sjálf-
virkni og kerfi ýmiskonar, æ rík-
ari þáttur í verðmætasköpuninni.
Óþarfi er að gefa kapítalinu frí á
meðan mannfólkið hvílir sig.
Þeir sem vilja halda sumardag-
inn fyrsta, 1. maí, eða 17. júní há-
tíðlegan taka sér einfaldlega frí
þann dag. Það er enginn að tala
um að leggja þessar hátíðir niður.
Það er hins vegar alveg óþarfi að
senda alla þjóðina heim og drepa
á vélinni á meðan, enda orðið erf-
iðara af tæknilegum ástæðum eins
og fyrr er talið. Einnig mætti
færa þessar hátíðir á sunnudaga,
þar sem frídagarnir eru komnir
annað.
Ég er viss um að ef þessum há-
tíðisdögum væri haldið uppi af
þeim, sem virkilega hafa áhuga á
því, yrðu þeir ennþá hátíðlegri.
Skyldufrídagar
Eftir Jóhann J.
Ólafsson
Jóhann J.
Ólafsson
»Ég legg til að þessir
lögskipuðu frídagar
verði afnumdir en
þessum 11 frídögum
bætt við orlofið.
Höfundur er stórkaupmaður.
Það urðu þáttaskil
hjá okkur sumarið
2008, er við misstum
báðar syni okkar. Þeir
voru jafnaldrar, annar
nýorðinn tvítugur og
hinn að nálgast þann
áfanga og bjuggu í
sama hverfi. Annar
lést af slysförum en
hinn vegna veikinda.
Hvert sem banamein þeirra var
urðu áhrifin söm. Líf okkar breyttist
mikið og margar brekkur að fara.
Þeir sem verða fyrir áföllum og
missi finna flestir einhverja leið til
að lifa af og horfa fram á veginn.
Sorgarvinna er þrotlaus vinna sem
lýkur aldrei og tekur á sig ólíkar
myndir, mismunandi eftir ein-
staklingum og aðstæðum hverju
sinni. Hjá okkur markaði það ákveð-
inn áfanga í þessu ferli að kynnast
starfi Nýrrar dögunar, samtaka um
sorg og sorgarviðbrögð.
Við hófum þátttöku í stuðnings-
hópi hjá Nýrri dögun. Þar kynnt-
umst við fyrst þó að við hefðum áður
vitað hvor af annarri og hist í kjöl-
farið á andláti drengjanna okkar.
Hópurinn okkar var leiddur af
tveimur fagaðilum og var samsettur
af fólki sem átti það sameiginlegt að
hafa misst barn. Börnin létust vegna
ýmiskonar veikinda eða slysa, þau
voru líka frá því að vera nokkurra
mánaða gömul til þess að teljast
fullorðin, en öll voru þau börn for-
eldra sinna. Það tekur mjög á að
fara í svona hóp og tjá líðan sína,
treysta öðrum fyrir tilfinningum
sínum, segja upphátt sögu sína og
hlusta á þrautagöngu annarra, sögu
sem maður þekkir ekki en þekkir þó
og skilur tilfinningarnar sem henni
fylgja.
Í hópnum ríkti trúnaður og traust
og hver og einn deildi tilfinningum
sínum og reynslu. Þó að það taki á
að vinna í svona hópi var það ekki
síður léttir og ákveðin lausn að upp-
lifa að innan hópsins voru allar til-
finningar viðurkenndar. Það var
styrkjandi fyrir okkur að tala við
skilningsríkt fólk sem hafði lent í
ámóta áföllum og við. Að finna þær
skrýtnu tilfinningar og hugsanir
sem bærast innra með sér og upp-
lifa þær ekki bara sem sínar og
sennilega ekkert svo skrýtnar og sjá
að það eru aðstæður okkar sem eru
svo skrýtnar og rangar. Úr varð því
einskonar jafningjastuðningur, þar
sem allir veittu og þáðu. Það skipti
ekki minnstu máli að þeir sem
leiddu hópinn eru fagmenn fram í
fingurgóma og mjög færir í sinni
vinnu.
Markmið Nýrrar dögunar er að
styðja syrgjendur sem og alla þá
sem vinna að velferð syrgjenda.
Samtökin eru öllum opin og lýtur
starfsemi þeirra fyrst og fremst að
stuðningi, ráðgjöf, upplýsingaþjón-
ustu og fræðslu. Samtökin hafa á að
skipa reyndu fólki sem hefur mikla
reynslu af vinnu við sálgæslu,
fræðslu og ráðgjöf. Makamissir,
barnsmissir og sjálfsvíg eru nokkur
dæmi af þeim sorgarvöldum sem Ný
dögun hefur unnið með. Samtökin
bjóða upp á reglulegar sam-
verustundir, fyrirlestra og stuðn-
ingshópa árið um kring.
Ný dögun, samtök um sorg og
sorgarviðbrögð, hafa nú starfað í
aldarfjórðung, en þann 8. desember
n.k. eru liðin 25 ár frá stofnun sam-
takanna. Áformað er að halda upp á
daginn með táknrænni göngu til
móts við nýja dögun og afmælisdag-
skrá í Háteigskirkju. Nánar má sjá
um dagskrá afmælisins á heimasíðu
samtakanna,www.sorg.is, og þar er
einnig hægt að kynna sér starfsemi
Nýrrar dögunar, þar á meðal dag-
skrá vetrarins og um stuðnings-
hópa.
Ný dögun
Eftir Steinunni
Sigurþórsdóttur
og Droplaugu
Guðnadóttur
»Hjá okkur markaði
það ákveðinn áfanga
í sorgarvinnunni að
kynnast starfi Nýrrar
dögunar, samtaka um
sorg og sorgarviðbrögð.
Steinunn
Sigurþórsdóttir
Steinunn er kennari. Droplaug er
forstöðumaður.
Droplaug
Guðnadóttir
Hanna Birna Kristjánsdóttir er
glæsilegur sigurvegari í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í höfuðborginni
– sem jafnan leiðir til ráðherrastóls
í fyllingu tímans – og fróðlegt verð-
ur að sjá hvaða málaflokk hún tek-
ur að sér, eftir að ráðuneytum
verður raðað upp á nýtt – í kjölfar
hamfara „fjölmálaráðherrans“,
skákandi í skjóli forsætisráð-
herranefnunnar, frænku minnar.
Illugi náði svo öðru sætinu, þrátt
fyrir setu sína í vafasömum sjóði
fallins banka, enda dró hann sig í
hlé og endurmat stöðu sína, vann
heimavinnuna og kom svo til baka,
sterkari en fyrr. Ólíkt Pétri H.
Blöndal sem ekkert hefur gert ann-
að en styrkja stöðu sína með skyn-
samlegum málflutningi frá upphafi
þingferilsins og tæpitungulausri
leiðsögn í þágu almennings – sem
kannski hefur komist skýrast í ljós,
þegar hann mætir í hreinskilnisleg
viðtöl á Útvarpi Sögu.
Ég studdi auðvitað Gulla vin
minn í annað sætið, einn mesta
ágætismann sem ég hef hitt á lífs-
leiðinni, bráðgáfaðan. Vinsæll og
myndarlegur ofan í kaupið. Ekki
furða að hann sé öfundaður og því
er ekki skrítið að hann komist inn á
topp-tíu listann yfir mest rægðu
menn þjóðarinnar. Án þess þó vita-
skuld að hagga á listanum sameig-
inlegum vini okkar sem hélt upp á
fimmtugsafmælið sitt í Perlunni,
sællar minningar.
Svo er það hinn sigurvegarinn,
Brynjar Níelsson lögmaður, leigu-
bílstjórasonur sem „lætur ekki vaða
yfir sig á skítugum skónum“ – stað-
fastur og æsingalaus afbragðs-
maður sem senn mun líklega fyr-
irfinnast í framvarðarsveit
flokksins. Auðvitað er ekki pláss
fyrir alla þar (þess vegna er Fram-
sóknarflokkurinn til líka) og Birgir
Ármannsson neyðist til að horfast í
augu við það líkt og Óli Björn –
sem báðir eru þó mjög fram-
bærilegir menn og vaxandi. Líkt og
segja má almennt um sjálfstæð-
isfólk.
PÁLL PÁLMAR DANÍ-
ELSSON,
leigubílstjóri.
Gátu úrslit mikilvæg-
asta prófkjörsins
orðið eitthvað betri?
Frá Páli Pálmari Daníelssyni
Bréf til blaðsins
Ármúla 32 · 108 Reykjavík · Sími 568 1888 · parketoggolf.is · Þú finnur okkur líka á Facebook
Parket & gólf - Sérfræðingar í gólfefnum!
Smelltu Boen á gólfið þitt
Norskt viðarparket með 5g smellukerfi
sem gerir lögnina einfalda og fljótlega.
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
util if. is
CASALL
MAGAHJÓL
3.790 kr.
MIKIÐ ÚRVAL
SPORTAUKAHLUTA.