Morgunblaðið - 04.12.2012, Síða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2012
Ég fer í bakarí og kaupi köku til að mæta með í vinnuna,“ seg-ir Katrín Lilja Sigurðardóttir sem er þrítug í dag. Katrín ogeiginmaður hennar ætla að slá upp sameiginlegri þrítugs-
afmælisveislu um helgina og bjóða vinum og vandamönnum. Katrín
hefur í mörg horn að líta en hún starfar hjá Raunvísindastofnun Há-
skóla Íslands, er í meistaranámi í efnafræði, sinnir stundakennslu
og hleypur fjórum sinnum í viku með hlaupahópnum Bíddu aðeins.
Þar að auki heldur hún utan um sprengjugengið svokallaða sem
stendur fyrir stórum sýningum innan Háskóla Íslands tvisvar á ári
auk þess að ferðast með Háskólalestinni um landið og fræða unga
fólkið um efnafræði. Katrín segir sprengjugengið góða leið til að
kynna yngri kynslóðinni efnafræði. „Við erum stjörnur efnafræð-
innar. Þetta er langbesta leiðin til að ná til krakkanna og sýna þeim
hvað vísindin geta verið skemmtileg,“ segir Katrín sem hikar ekki
við að hlaupa 10-15 km fjórum sinnum í viku milli þess að sinna fjöl-
skyldu og vinnu. Hún fagnar því að geta nú loksins tekið þátt í jóla-
undirbúningnum án þess að þurfa að láta prófalestur trufla sig.
„Þetta er nýtt fyrir mig, ég er t.d. búin að baka smákökur sem er
eitthvað sem hefur ekki gerst oft. Við fjölskyldan ætlum að njóta
þess að vera saman í aðdraganda jólanna,“ segir Katrín en hún og
eiginmaður hennar eiga þrjú börn. heimirs@mbl.is
Katrín Lilja Sigurðardóttir er þrítug í dag
Vinátta Katrín Lilja, þriðja frá hægri, ásamt góðum hópi vinkvenna.
Allar verða þær þrítugar á árinu, þar af fjórar nú í desember.
Nýtur þess að vera
laus við próflestur
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Sigurður Stein-
arsson er með
opið hús, kaffi
og með því, í
dag, 4. desem-
ber, á heimili
sínu frá kl. 18.
Árnað heilla
40 ára
Hveragerði Hrafnhildur Emelía fædd-
ist 27. febrúar kl. 17.30. Hún vó 3.625
g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar
eru Sigrún Helga Högnadóttir og
Bragi Árdal Björnsson.
Nýir borgarar
Grindavík Aþena Ósk fæddist 17. maí
kl. 2.15. Hún vó 3.905 g og var 53 cm
löng. Foreldrar hennar eru Kristín Ósk
Högnadóttir og Aron Daníel Arn-
arson.
Þ
orvarður Kjerulf fædd-
ist í Reykjavík 4.12.
1982, átti heima að
Brúarási á Héraði frá
þriggja ára til fimm
ára aldurs en ólst síðan upp í
Fellsmúla í Landsveit við fjárbú-
skap og hestamennsku.
Þorvarður var í Laugalands-
skóla, stundaði nám við MR í eitt
ár en lauk stúdentsprófum frá MH
2003. Hann stundaði nám í fé-
lagsfræði við HÍ og lauk BA-prófi í
þeirri grein 2008 og lauk MA-prófi
í alþjóðasamskiptum við HÍ 2011.
Á menntaskólaárunum starfaði
Þorvarður hjá Bónusvídeói, starf-
aði við Kópavogshælið á háskóla-
árunum og í þjónustuveri Skelj-
ungs.
Að loknum háskólaprófum vann
hann við utanríkisráðuneytið í eitt
ár en hefur starfað við Evrópuvef-
inn frá ársbyrjun 2012.
Vill upplýsta ESB-umræðu
En hvað er Evrópuvefurinn?
„Evrópuvefurinn er upplýsinga-
veita um Evrópusambandið og
Evrópumál, settur á stofn og kost-
aður af Alþingi en starfræktur af
Háskóla Íslands. Hann er í raun
systurvefur Vísindavefs HÍ.
Vefnum er ætlað að veita al-
Þorvarður K. Sigurjónsson, verkefnastjóri á Evrópuvef - 30 ára
Á sviði Hljómsveitin Camp Keighley, talið frá vinstri: Hilmar Örn Egilsson, Fannar Ásgrímsson, afmælisbarnið.
Jónas Vilhjálmsson, Ólöf Katrín Þórarinsdóttir og Magnús Gylfi Hilmarsson.
Svarar spurningum
almennings um ESB
Fjölskyldan Þorvarður, ásamt Kristínu Lenu og syninum, Óttari Kjerulf.
Hægt er að
sendamynd og texta
af nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
sk idaskal i . i s
Skíðaskálans í Hveradölum
Hafið samband og við gefum verðtilboð í hópinn þinn.
Pantið tímanlega í síma 567 2020 eða sendið á okkur
tölvupóst á skidaskali@skidaskali.is
Ekki missa af okkar
landsfræga og margrómaða
jólahlaðborði
Skíðaskálinn
í Hveradölum
er í
15 mín. fjarðl
ægð
frá Rauðava
tni
Salir Skíðaskálans eru:
Stóri salur (100-200 manns)
Litli salur (60-90 manns)
Risið (60-90 manns)