Morgunblaðið - 04.12.2012, Qupperneq 35
menningi hlutlausar upplýsingar
um ýmsar mikilvægar staðreyndir
er varða Evópusambandið og Evr-
ópumál. Það er gert með því að
svara fyrirspurnum frá almenningi
og með greinaskrifum um stofn-
anir ESB og annað það sem máli
skiptir.“
Fáið þið margar fyrirspurnir?
„Það er svolítið misjafnt, fer eft-
ir fréttum og annarri umfjöllun
fjölmiðla. Ef Evrópumálin eru í
deiglunni fáum við fleiri fyrir-
spurnir en svo er rólegra þess á
milli. Vefurinn var opnaður í júní
2011 og síðan þá höfum við svarað
tæplega 400 fyrirspurnum og
skrifað greinar. Hér eru fimm
fastir starfsmenn en við erum þrjú
sem sinnum skriftum.“
En heldurðu að fólk geti treyst
því að þið séuð hlutlaus?
„Já, já. Þess er vandlega gætt
að héðan komi enginn pólitískur
áróður, enda höfum við engan
áhuga á því. Okkar hlutverk er að
upplýsa fólk um staðreyndir, ekki
að svara endanlega fyrir einn né
neinn.
Mér finnst að almenn umræða
um Evrópusambandið mætti vera
upplýstari á báða bóga. Við meg-
um ekki gleyma okkur í slag-
orðum.“
Þorvarður lærði á gítar í grunn-
skóla, er áhugamaður um tónlist
og hefur sungið með hljómsveit-
inni Camp Keighley frá 2010.
Hljómsveitin hefur haldið tónleika
nokkuð víða að undanförnu. Þá
söng Þorvarður með Hamrahlíðar-
kórnum meðan hann var í skól-
anum.
Auk tónlistarinnar hefur Þor-
varður áhuga á körfubolta. Hann
æfði og keppti í körfu með ung-
mennafélaginu Garpi á unglingsár-
unum og hefur verið að leika sér í
körfu með jafnöldrum sínum í Val
sl. tvö ár: „Fyrir mig er þetta
besta leiðin til að halda bumbunni
í skefjum. Svo hef ég alltaf gaman
af körfubolta, er orðinn harður
Valsari, fylgist með NBA-deildinni
og held með Chicago Bulls.“
Fjölskylda
Sambýliskona Þorvarðar er
Kristín Lena Þorvaldsdóttir, f.
13.2. 1983, málfræðingur hjá Sam-
skiptastöð heyrnarlausra. Hún er
dóttir Þorvalds Óttars Guðlaugs-
sonar, grafísks hönnuðar, og Arn-
dísar Tómasdóttur, gjaldkera hjá
Lýsi.
Sonur Þorvarðs og Kristínar
Lenu er Óttar Kjerulf Þorvarðar-
son, f. 12.6. 2011.
Bræður Þorvarðs eru Sigurjón
Bjarni Sigurjónsson, f. 30.7. 1988,
nemi í kvikmynda- og fjölmiðla-
fræði við HÍ; Vésteinn Sigur-
jónsson, f. 4.1. 1994, nemi við MH.
Foreldrar Þorvarðs eru Sigur-
jón Bjarnason, f. 17.9. 1959, fyrrv.
skólastjóri og framkvæmdastjóri
Eldhesta, og Halldóra Jóhanna
Þorvarðardóttir, f. 23.11. 1959,
sóknarprestur og prófastur í
Fellsmúla í Landsveit.
Úr frændgarði Þorvarðs Kjerulf Sigurjónssonar
Þorvarður Kjerulf
Sigurjónsson
Þorsteinn Jónsson
kaupfélagsstj. á Reyðarfirði
Sigríður Kjerulf
Þorvarðardóttir
húsfr.
Þorvarður Kjerulf Þorsteinsson
sýslum. og bæjarfógeti á Ísafirði
Magdalena Ó. Thoroddsen
blaðam. og rith.
Halldóra Jóhanna Þorvarðardóttir
sóknarpr. og prófastur í Fellsmúla í
Landsveit
Ólína Andrésdóttir Thoroddsen
frá Vaðli
Ólafur Thoroddsen Einarsson
skipstj., kennari og b. í Vatnsdal
í Rauðasandshr.
Sigurlaug Sigurjónsdóttir
frá Seyðisfirði
Jón Magnússon
sjóm. í Sólvangi í Eyjum
Kristín Björg Jónsdóttir
húsfr.
Bjarni Eiríkur Sigurðsson
rith. og fyrrv. skólastj. í Hveragerði
Sigurjón Bjarnason
fyrrv. skólastj. og
framkvæmdastj. Eldhesta
Ingunn Bjarnadóttir
tónskáld, frá Holtum í Mýrarhr.
Sigurður K. Eiríksson
verkam. í Rvík
Þorvaldur Thoroddsen
hreppstjóri á Patreksfirði
Einar Thoroddsen
lögmaður
Ólína Þorvarðardóttir
alþm.
Þorgeir Þorsteinsson
lögreglustj. á
Keflavíkurflugvelli
Jón Þorsteinsson
læknir í Rvík
Eiríkur Jónsson
ritstjóri
Katla María
Þorgeirsdóttir
leikkona
Sigríður
Þorgeirsdóttir
heimspekingur
Herdís Þorgeirsdóttir
fyrrv. forsetaframbj.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Í vinnunni Afmælisbarnið.
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2012
Hannes Þórður Hafstein,skáld og fyrsti íslenski ráð-herrann, fæddist á Möðru-
völlum í Hörgárdal 4.12. 1861. Hann
var sonur J. Péturs Havsteen, amt-
manns á Möðruvöllum, og þ.k.h.,
Kristjönu Gunnarsdóttur. Bróðir
Kristjönu var Tryggvi Gunnarsson
bankastjóri en móðir þeirra var Jó-
hanna, dóttir Gunnlaugs, ættföður
Briem-ættarinnar. Hannes var því
af Briem-ætt eins og forsætisráð-
herrarnir Jóhann Hafstein, Gunnar
Thoroddsen og Davíð Oddsson.
Hann bjó í ástríku hjónabandi
með Ragnheiði Melsteð en þau þóttu
óvenju glæsileg hjón og eignuðust
fjölda barna. Þau voru Sigurður
(1891), Kristjana (1892), Ástríður
(1893), Þórunn (1895), Sigríður
(1896), Sofía Lára (1899), Elín Jó-
hanna Guðrún (1900), Ragnheiður
(1903), Kristjana (1911), Sigurður
Tryggvi (1913). Margir afkomenda
Hannesar og Ragnheiðar hafa orðið
þjóðkunnir.
Hannes var í heimaskóla hjá Egg-
erti Briem, ömmubróður sínum á
Reynistað, og innritaðist tólf ára í
Lærða skólann. Hann byrjaði ungur
að yrkja og þótti snemma efnilegt
skáld, lauk stúdentsprófi 1880 og
lögfræðiprófi frá Hafnarháskóla
1886. Fyrstu árin í Kaupmannahöfn
drakk Hannes í sig bókmenntir og
stofnaði tímaritið Verðandi, ásamt
Bertel E.Ó. Þorleifssyni, Gesti Páls-
syni og Einari Kvaran og varð per-
sónulegur vinur Georgs Brandes.
Hann varð sýslumaður Dalasýslu
1887, málflutningsmaður við Lands-
yfirréttinn og landshöfðingjaritari
1889, og sýslumaður Ísafjarðarsýslu
1895. Hann var kjörinn á þing fyrir
Ísfirðinga 1900 og síðan fyrir Ey-
firðinga. Honum var falið að und-
irbúa heimastjórn á Íslandi og skip-
aður fyrsti ráðherrann þar 1.
febrúar 1904 við upphaf heima-
stjórnar. Hann missti meirihluta á
þingi við sambands-
lagakosningarnar frægu 1908 og vék
eftir samþykkta vantrauststillögu í
ársbyrjun 1909. Hann varð aftur
ráðherra 1912-1914, og var banka-
stjóri Íslandsbanka.
Hannes lést 13.12. 1922.
Merkir Íslendingar
Hannes
Hafstein
95 ára
Guðrún Þorsteinsdóttir
Gústaf Lárusson
90 ára
Jörgen F. Berndsen
Magnhildur Sigurðardóttir
85 ára
Birna Þórlindsdóttir
Gunnsteinn Magnússon
Þorsteinn Auðunsson
80 ára
Guðrún Sigríður
Jóhannesdóttir
Gunnsteinn Gíslason
Hildur Valeika
Kristín Kristjánsdóttir
Ragnheiður Sigurðardóttir
Sigurlína Helgadóttir
75 ára
Birna Ingadóttir
Hjálmar J. Fornason
Ketill Arnar Hannesson
Valgerður Sigurðardóttir
70 ára
Anna Einarsdóttir
Auður Aradóttir
Elsa Sigrún Eyþórsdóttir
Gottskálk Ólafsson
Grétar Arnbergsson
Helgi John Fortescue
Karl Friðrik Garðarsson
Ríkey Eiríksdóttir
Sigríður Ingólfsdóttir
Sigurður Kristófer
Pétursson
Svanlaug Sighvatsdóttir
Sverrir Kristjánsson
Þóra Kristinsdóttir
Þórunn Adda Eggertsdóttir
60 ára
Erlendur Guðnason
Margrét Vigdís Eiríksdóttir
Sjöfn Arnfinnsdóttir
Torfi Karl Karlsson
50 ára
Adolfo Garcia Avila
Ásgeir Þorgeirsson
Björn Kjartansson
Fanney Grétarsdóttir
Guðmundur O. Halldórsson
Guðrún Inga Úlfsdóttir
Ingibjörg Guðmundsdóttir
Ingólfur Geir Gissurarson
Jón Már Jóhannesson
Kristín Sjöfn Valgeirsdóttir
Snædís Valsdóttir
40 ára
Bjarni Þorgilsson
Guðrún Erla Gísladóttir
Kristrún Einarsdóttir
Ragna Benedikta
Garðarsdóttir
Sigurður Freyr Magnússon
30 ára
Ewa Wicik
Katrín Lilja Sigurðardóttir
Krystian Mateusz Jereczek
Magnús Mikaelsson
Ólafur Haukur Magnússon
Sigríður Helga
Ástþórsdóttir
Sigurbjörg Birgisdóttir
Sæunn Elsa Sigurðardóttir
Úlfar Gunnar Finsen
Til hamingju með daginn
30 ára Ólafur stundar nú
nám við Fræðslumiðstöð
Vestfjarða og er bifvéla-
virki á Ísafirði.
Maki: Hrund Sæmunds-
dóttir, f. 1983, versl-
unarmaður.
Börn: Kristján Darri,
f. 2008, og Karen Drífa,
f. 2010.
Foreldrar: Kristján Ólafs-
son, f. 1962, verkstjóri á
Ísafirði, og Hulda Valdís
Steinarsdóttir, f. 1963,
skrifstofumaður á Ísafirði.
Ólafur S.
Kristjánsson
40 ára Ásta lauk dokt-
orsprófi í viðskiptafræði
við Viðskiptaháskólann í
Kaupmannahöfn og er
framkvæmdastjóri Frí-
hafnarinnar.
Maki: Jakob Bjarnason,
f. 1960, starfsmaður við
skilanefnd Landsbankans.
Dætur: Jóhanna Helga,
f. 1996, og Þuríður Anna,
f. 2005.
Foreldrar: Óli H. Þórð-
arson, og Þuríður Stein-
grímsdóttir.
Ásta Dís
Óladóttir
40 ára Sigurður lauk
prófi í viðskiptafræði
og er viðskiptaráðgjafi
hjá Norvik hf.
Maki: Eyrún Harpa Har-
aldsdóttir, f. 1973, nemi.
Börn: Sindri Steinn,
f. 2000; Thelma Rán,
f. 1997, og Aldís Eva,
f. 1998.
Foreldrar: Steinar Magn-
ússon, f. 1927, d. 2001,
bóndi í Árnagerði, og
Sjöfn Guðjónsdóttir,
f. 1930, húsfreyja.
Sigurður
Steinarsson
Hægt er að senda
mynd og texta af
nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Börn og
brúðhjón
th
or
ri@
12
og
3.
is
/3
1.
31
3
...sem þola álagið!
TRAUSTAR VÖRUR...
VIFTUR
Í MIKLU ÚRVALI
Það borgar sig að nota það besta!
www.falkinn.is
• Bor›viftur
• Gluggaviftur
• I›na›arviftur
• Loftviftur
• Rörablásarar
• Ba›viftur
• Veggviftur