Morgunblaðið - 04.12.2012, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 04.12.2012, Qupperneq 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2012 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Sú áætlun sem menn ætla þér að fylgja er of áhættusöm fyrir þig. Þú ættir að skella þér í jólagjafainnkaup fyrr en seinna. Þú færð upplýsingar sem kæta þig mjög. 20. apríl - 20. maí  Naut Bjóddu vinunum heim í kvöld og skemmtu þér. Þér finnst erfitt að vakna á morgnana, farðu því fyrr að sofa. Fall er far- arheill. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það verður enginn hlutur að veru- leika bara vegna þess að þú óskar eftir því. Makinn gerir allt fyrir þig með glöðu geði þessa dagana. Launaðu honum með kossi. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það myndi létta af þér miklum áhyggjum ef þú gæfir þér tíma til þess að koma fjármálunum á hreint. Ef þú þarft að láta í minni pokann skaltu gera það með reisn. Ekki er allt gull sem glóir. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert ekki í miðju eldsins en þú skynjar hitann mjög vel. Beindu athyglinni að fjár- útlátum og taktu hugmyndir þínar alvarlega. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Allt gengur sinn vanagang, en virðist samt öðruvísi. Ástvinur vill vita meira, sjá meira og upplifa meira. Þú ættir að hlusta meira á þína innri rödd. 23. sept. - 22. okt.  Vog Spennandi tilboð gætu borist þér til eyrna í dag. Kannski þú ættir að byrja átakið þitt í dag? 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú hefur svo mörg járn í eldinum að þú kemur eiginlega engu í verk. Ekki sýna linkind í vissu máli. Jólin koma þótt þú takir ekki allt í gegn. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Einhver reynir að gera þér lífið leitt svo nú reynir verulega á þolinmæðina. Fólk sem ýtir undir vellíðan er uppáhalds fé- lagsskapurinn þinn. 22. des. - 19. janúar Steingeit Reyndu að láta afbrýðisemina ekki ná tökum á þér í samskiptum við ástvini. Hafðu þetta í huga er þú eyðir deginum í að gefa öðrum það sem þeir þarfnast. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það vantar ekki mikið upp á að þér takist að klára það verkefni sem þér hef- ur verið falið. Ekki gera ráð fyrir því að fóllk heyri það sem þú ert að segja. 19. feb. - 20. mars Fiskar Margskonar möguleikar blasa við. Láttu stoltið ekki hindra þig í framtíðinni. Samstarfsmennirnir eru glaðir í bragði og þú kemur miklu til leiðar. Þér hættir til að taka hlutina of alvarlega. Sigurður Sigurðarson dýralæknir sendi umsjónarmanni póst með leið- réttingu á vísum, sem birtust í tven- nupistli hans í Stuðlabergi og teknar voru upp í Vísnahorni: „Þar var far- ið bræðravillt og fleira var rangt. Vísur þessar átti ég skrifaðar eftir öruggri heimild að ég taldi, sem ekki reyndist vera. Rétt mun sagan og vísurnar vera svona: Leifur Auðunsson í Dalsseli og Markús Jónsson, Borgareyrum á Hólmabæjumí V-Eyjafjallahreppi, frændur og vinir, voru í gleðskap fram eftir laugardagsnóttu. Leifur vaknaði snemma á sunnudags- morgni og gekk að Borgareyrum, sem ekki er langt. Markús svaf þá fast og varð ekki vakinn. Leifur skildi eftir þessa vísu: Á sunnudögum sefur vært í syndafleti af honum geta aðrir lært aðeins leti. Þegar Markús fékk vísuna orti hann: Latur skrifar letingja við litla snilli. Latur hefur litla hylli, latur flækist bæja milli.“ Jónas Ragnarsson benti umsjón- armanni á forvitnilegan ritdóm Kristjáns frá Djúpalæk í Verka- manninum um Limrur Þorsteins Valdimarssonar, en það var fyrsta íslenska limrubókin og kom hún út árið 1965. Þar segir Kristján að limran sé „algjör hliðstæða íslenzku ferskeytlunnar, og var notað á kúg- unartímum til að skamma yfirvöld undir rós um allt Bretaveldi og Ír- land þá meðtalið. Vísurnar flugu nafnlausar og hárbeittar og gerðu sitt gagn eins og okkar.“ Hann tiltekur Sköpunarsögu Þor- steins: Guð varp handfylli af sandi út í hyl. Þá var heimurinn orðinn til með sandi af gæðum — nema seðlum og kvæðum. Þar kom satan og andvakan til. Og Kristján bætir við: „Lái mér hver sem vill. En þetta þykir mér af- skaplega skemmtilegur skáldskapur og ég býð hiklaust limruna vel- komna endanlega í flokk íslenzkra braghátta.“ Og það er sjálfsagt að klykkja út með þessari sorgmóðugu haust- mynd Þorsteins: Enn falla í þagnar ljúfa löð ljóðin glöð og út í móunum dvína. Reynirinn fellir sín rauðu blöð og ríkisstjórn krónuna sína. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af tvennum, limrum og Sköpunarsögu Þorsteins eftir Jim Unger „HVAÐ MEINARÐU MEÐ AÐ ÖSKRA EKKI Á HANN? HANN KEYPTI DEMANTSHÁLS- FESTI FYRIR KÆRUSTUNA SÍNA MEÐ GREIÐSLUKORTINU MÍNU!“ HermannÍ klípu „VIÐ VILJUM HORFA Á KOSTI, FREKAR EN GALLA. Í ÞÍNU TILFELLI SJÁUM VIÐ HVORUGT.“ eftir Mike Baldwin Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að finnast þú ríkari en lottóvinningshafi. EITTHVERT ÞEKKT LYFJAOFNÆMI? ÉG HÉLT AÐ ÞETTA YRÐI GAMAN. ÚTI Í NÁTTÚRUNNI ... SÆKJA OKKUR JÓLATRÉ ... ÞÚ MEINAR SÍMASTAUR? VIÐ ÆTTUM AÐ FARA NÚNA.Víkverji fékk sér bát á skyndibita-staðnum Subway á dögunum. Svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að af- greiðslustúlkan kom honum í opna skjöldu. Brauðið var nýkomið úr ofn- inum og vakti stúlkan, sem var örugglega innan við tvítugt, athygli Víkverja á því. Hvað haldið þið að hún hafi sagt: „Brauðið er geðveikt mjúkt,“ giska örugglega flestir á. Nei, ekki aldeilis. Hún sagði: „Brauðið er lungamjúkt.“ Lunga- mjúkt, segir Víkverji og skrifar. Hún sagði lungamjúkt. Minnstu munaði að Víkverji táraðist yfir orðfærinu. Enn er von fyrir æsku þessa lands! x x x Á dögunum rifjaðist upp fyrir Vík-verja skondin saga af þremur erlendum sambýlismönnum hans á stúdentagörðum Háskóla Íslands fyrir um tveimur áratugum. Þeir voru þá nýkomnir til landsins frá fyrrverandi lýðveldum Sovétríkj- anna og langaði að kynna sér nætur- lífið í Reykjavík. Höfðu heyrt að það væri með því besta sem gerðist á byggðu bóli. Fengu þeir ýmsar upp- lýsingar frá okkur, íslensku sambýl- ingunum, um staði og annað slíkt. Loks rann upp föstudagur og var að vonum hugur í okkar mönnum. Mikið lagt í undirbúning og ætluðu þeir aldeilis að mála bæinn rauðan. Í þessu ljósi var grunsamlega dauft yfir þeim þegar þeir komu og hlömmuðu sér niður í sjónvarps- herberginu á Garði um níuleytið um kvöldið. Við spurðum hvort ekki lægi vel á þeim. „Við látum það alveg vera,“ var svarið. Hvers vegna? var spurt á móti enda æsilegt kvöld á næturlífinu framundan. „Þetta var hundfúlt,“ upplýsti þá einn, Litháinn í hópnum. „Hvað meinarðu? Var?“ spurðum við Íslendingarnir. „Eruð þið búnir að fara?“ „Já,“ sagði Eistinn. „Við fórum um sjöleytið niður í bæ og það var ekki nokkur kjaftur inni á skemmti- stöðunum. Þegar við vorum ennþá einir klukkan hálf níu drifum við okkur bara heim. Það er vonlaust næturlíf í Reykjavík!“ víkverji@mbl.is Víkverji Orð dagsins: Hver er sá, er mun gjöra yður illt, ef þér kappkostið það sem gott er? (1Pt. 3, 13.) Salome Þorkelsdóttir framkvæmdastjóri - Þetta er minn staður! E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.