Morgunblaðið - 04.12.2012, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 04.12.2012, Qupperneq 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2012 Blásarakvintett Reykjavíkur og fé- lagar halda sína árlegu tónleika und- ir heitinu „Kvöldlokkur á jólaföstu“ í Fríkirkjunni í Reykjavík í kvöld, þriðjudaginn, klukkan 20. Að venju býður kvintettinn upp á klassískar blásaraserenöður, fagrar og lokkandi, eins og heiti tón- leikanna gefur til kynna. Tónskáldin Mozart, Beethoven og Gounod leggja til kvöldlokkur að þessu sinni. Í lok tónleikanna leika þeir félagar hina fögru mótettu Moz- arts „Ave verum corpus“. Þetta er í 33. skipti sem Blásara- kvintettinn heldur þessa kvöld- lokkutónleika á aðventu. „Snýst ekki aðventan um hefðir?“ spyr Einar Jó- hannesson klarinettuleikari. „Það vill enginn breyta til og þetta er okk- ar hefð. Og það er líka orðin hefð margra að koma og hlusta á okkur. Þá heyrist hin gullvæga setning: Nú finnst mér aðventan geta byrjað!“ Einar segir þá félagana hafa afar gaman af því að leika á þessum ár- legu tónleikum og að þeim loknum halda þeir einskonar árshátíð kvin- tettsins. Serenöðurnar eru yfirleitt alltaf fyrir átta blásara og því fær kvin- tettinn til sín gesti til að fylla töluna. „Þessi hefð þróaðist í Vínarborg á tímum Mozarts,“ segir Einar. „Það eru til allmörg verk fyrir þennan hóp en það er ekki bara hefðin að spila alltaf á sama tíma, heldur erum við líka nokkuð íhaldssamir í vali á verk- um. Yfirleitt leikum við serenöður Mozarts aftur og aftur, á nokkurra ára fresti, enda vill fólk heyra þessi góðu verk. Mozart var toppurinn, serenöður hans slá eiginlega allt annað út.“ efi@mbl.is Árlegar kvöldlokkur blásaranna Morgunblaðið/Golli Íhaldssamir Félagarnir í Blásarakvintett Reykjavíkur leika í kvöld.  Jólaföstutónleikar í Fríkirkjunni í kvöld Meistari hinna blindu,fyrsta skáldsaga ElísFreyssonar, komskemmtilega á óvart á síðasta ári, myrk ævintýrasaga upp full með þrekraunum, bardögum og illsku. Í bókinn var sagt frá ferð Mikaels til að mæta örlögum sínum í heimi sem er í sárum eftir Sundr- unguna þegar gamli heimurinn var brenndur og lagður í rúst. Leið Mikaels liggur meðal annars til borgarinnar Rauðu rótar sem glæpagengi hafa skipt með sér og þar kemst hann í kynni við harðjaxl- inn Kody Black sem leggur honum lið og um leið Skuggunum, leyni- reglu sem glímir við ill öfl. Í Ógnarmána er Kody Black í aðalhlutverki, sannkallaður harðhaus sem er fljótur að grípa til sverðsins, eða ax- arinnar, og aldrei fljótari en þegar glíma þarf við óréttlæti eða frelsa sakleysingja. Mikael var dreginn áfram af öflum sem hann skildi ekki fyrr undir lok bókarinnar, en réttlætiskenndin rekur Kody áfram og fær hann til að taka áhættu sem aðrir myndu telja óðs manns æði. Framan af bókinni er sagan nokk- uð sjálfstæð, en svo birtast persónur úr fyrri bókinni og smám saman rennur upp fyrir lesanda hve þær tengjast, að hér er aðeins verið að sýna aðra hlið á baráttunni sem rak- in er í Meistara hinna blindu, önnur orrusta en sama stríðið. Fyrri bókin var einkar skemmti- leg fyrir það að maður var að kynn- ast sögusviðinu, heiminum, í fyrsta sinn, og þessi er ekki eins hrífandi nú þegar það kemur ekki eins margt á óvart. Hún er þó þrælskemmtileg, mikið af bardögum og blóði og vo- veiflegum örlögum. Kody Black er kannski ekki aðlaðandi persóna, maður myndi ekki vilja mæta honum á rökkvuðu stræti, en maður finnur þó til með honum og stendur ekki á sama um örlög hans. Sem stendur er bókin aðeins fáan- leg sem rafbók hjá emma.is. Undir Ógnarmána Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Höfundurinn Saga hans er „þræl- skemmtileg, mikið af bardögum og blóði og voveiflegum örlögum.“ Skáldsaga Ógnarmáni bbbnn Eftir Elí Freysson. 428 bls., innb. Höf- undur gefur út. ÁRNI MATTHÍASSON BÆKUR raestivorur.is Stangarhyl 4, 110 Reykjavík, Sími: 520 7700 Við erum grænni og elskum að þjónusta Rétt magn af hreinlætisvörum sparar pening – láttu okkur sjá um það Hafðu samband og fáðu tilboð Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Mýs og Menn (Stóra svið) Lau 29/12 kl. 20:00 Frums Mið 16/1 kl. 20:00 7.k Sun 27/1 kl. 20:00 12.k Fös 4/1 kl. 20:00 2.k Fim 17/1 kl. 20:00 8.k Fim 31/1 kl. 20:00 13.k. Sun 6/1 kl. 20:00 3.k Fös 18/1 kl. 20:00 aukas Fös 1/2 kl. 20:00 14.k Mið 9/1 kl. 20:00 4.k Lau 19/1 kl. 20:00 9.k Fös 8/2 kl. 20:00 Fim 10/1 kl. 20:00 aukas Sun 20/1 kl. 20:00 10.k Lau 9/2 kl. 20:00 Fös 11/1 kl. 20:00 5.k Fim 24/1 kl. 20:00 11.k Lau 16/2 kl. 20:00 Lau 12/1 kl. 20:00 aukas Fös 25/1 kl. 20:00 aukas Sun 17/2 kl. 20:00 Sun 13/1 kl. 20:00 6.k Lau 26/1 kl. 20:00 aukas Mið 27/2 kl. 20:00 Jólasýningin 2012. Saga um gildi manneskjunnar, drauma hennar og þrár Á sama tíma að ári (Stóra sviðið) Lau 8/12 kl. 20:00 Sun 30/12 kl. 20:00 Lau 5/1 kl. 20:00 Rómantískur gamanleikur í leikstjórn Sigga Sigurjóns og Bjarna Hauks Gulleyjan (Stóra sviðið) Sun 9/12 kl. 14:00 Mið 26/12 kl. 14:00 Sun 6/1 kl. 14:00 Sun 16/12 kl. 14:00 Sun 30/12 kl. 14:00 Sun 13/1 kl. 14:00 Ævintýralegasta fjársjóðsleit allra tíma. Örfáar aukasýningar í janúar! Gullregn (Nýja sviðið) Fös 7/12 kl. 20:00 15.k Lau 29/12 kl. 20:00 Fim 17/1 kl. 20:00 Lau 8/12 kl. 20:00 16.k Sun 30/12 kl. 20:00 Fös 18/1 kl. 20:00 Fös 14/12 kl. 20:00 17.k Fim 3/1 kl. 20:00 Lau 19/1 kl. 20:00 Lau 15/12 kl. 20:00 aukas Fös 4/1 kl. 20:00 Mið 23/1 kl. 20:00 Sun 16/12 kl. 20:00 aukas Lau 12/1 kl. 20:00 Fim 24/1 kl. 20:00 Fim 27/12 kl. 20:00 Sun 13/1 kl. 20:00 Fös 25/1 kl. 20:00 Fös 28/12 kl. 20:00 Mið 16/1 kl. 20:00 Lau 26/1 kl. 20:00 Mannlegt verk um íslenskt fólk og útlenskt tré Saga Þjóðar (Litla sviðið) Fös 7/12 kl. 20:00 14.k Fös 4/1 kl. 20:00 Lau 19/1 kl. 20:00 Lau 8/12 kl. 20:00 15.k Fös 11/1 kl. 20:00 Lau 26/1 kl. 20:00 Fös 14/12 kl. 20:00 16.k Lau 12/1 kl. 20:00 Sun 27/1 kl. 20:00 Lau 15/12 kl. 20:00 Fös 18/1 kl. 20:00 Íslandssagan á hundavaði í tónsjónleik með Hundi í óskilum. Jesús litli (Litla svið) Þri 4/12 kl. 20:00 1.k Þri 11/12 kl. 20:00 4.k Fim 20/12 kl. 20:00 8.k Mið 5/12 kl. 20:00 2.k Mið 12/12 kl. 20:00 5.k Fös 21/12 kl. 19:00 Fim 6/12 kl. 18:30 3.k Fim 13/12 kl. 20:00 6.k Fös 21/12 kl. 21:00 Sun 9/12 kl. 20:00 aukas Mið 19/12 kl. 20:00 7.k Mannbætandi upplifun! Grímusýning ársins 2010 Hinn eini sanni jólaandi (Litla sviðið) Lau 8/12 kl. 14:00 Lau 15/12 kl. 16:00 Sun 9/12 kl. 16:00 Sun 16/12 kl. 14:00 Notaleg sögustund fyrir alla fjölskylduna með Góa og Þresti Leó Íslenski Dansflokkurinn: Á nýju sviði (Nýja sviðið) Fim 6/12 kl. 20:00 Sun 9/12 kl. 20:00 Þri 18/12 kl. 20:00 lokas Fjögur spennandi og ólík dansverk eftir dansara Íslenska dansflokksins Gefðu töfrandi stundir í jólapakkann Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið) Lau 8/12 kl. 14:00 Aukas. Sun 30/12 kl. 14:00 31.sýn Sun 13/1 kl. 13:00 35.sýn Lau 8/12 kl. 17:00 Aukas. Sun 30/12 kl. 17:00 32.sýn Sun 13/1 kl. 16:00 36.sýn Sun 9/12 kl. 14:00 27.sýn Lau 5/1 kl. 13:00 Aukas. Sun 20/1 kl. 13:00 37.sýn Sun 9/12 kl. 17:00 28.sýn Lau 5/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 20/1 kl. 16:00 38.sýn Lau 29/12 kl. 14:00 29.sýn Sun 6/1 kl. 13:00 33.sýn Sun 27/1 kl. 13:00 39.sýn Lau 29/12 kl. 17:00 30.sýn Sun 6/1 kl. 16:00 34.sýn Sun 27/1 kl. 16:00 40.sýn Sýningar í janúar komnar í sölu! Macbeth (Stóra sviðið) Sun 23/12 kl. 14:00 Fors Fös 28/12 kl. 19:30 3.sýn Fim 10/1 kl. 19:30 6.sýn Mið 26/12 kl. 19:30 Frums. Fim 3/1 kl. 19:30 4.sýn Fös 11/1 kl. 19:30 7.sýn Fim 27/12 kl. 19:30 2.sýn Fös 4/1 kl. 19:30 5.sýn Miðasala hafin á jólasýningu Þjóðleikhússins! Tryggðu þér sæti! Jónsmessunótt (Kassinn) Fim 6/12 kl. 19:30 23.sýn Fös 7/12 kl. 19:30 24.sýn Lau 12/1 kl. 19:30 25.sýn Meinfyndið nýtt íslenskt verk, svört kómedía beint úr íslenskum samtíma. Karíus og Baktus (Kúlan) Lau 29/12 kl. 13:30 Frums. Lau 5/1 kl. 13:30 5.sýn Lau 12/1 kl. 13:30 9.sýn Lau 29/12 kl. 15:00 2.sýn Lau 5/1 kl. 15:00 6.sýn Lau 12/1 kl. 15:00 10.sýn Sun 30/12 kl. 13:30 3.sýn Sun 6/1 kl. 13:30 7.sýn Sun 13/1 kl. 13:30 11.sýn Sun 30/12 kl. 15:00 4.sýn Sun 6/1 kl. 15:00 8.sýn Sun 13/1 kl. 15:00 12.sýn Frábært leikrit sem á erindi við alla krakka! Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið) Lau 8/12 kl. 11:00 Lau 15/12 kl. 13:00 Lau 22/12 kl. 11:00 Lau 8/12 kl. 13:00 Lau 15/12 kl. 14:30 Lau 22/12 kl. 13:00 Sun 9/12 kl. 11:00 Sun 16/12 kl. 11:00 Lau 22/12 kl. 14:30 Sun 9/12 kl. 12:30 Sun 16/12 kl. 13:00 Sun 23/12 kl. 11:00 Lau 15/12 kl. 11:00 Sun 16/12 kl. 14:30 Sun 23/12 kl. 13:00 Sívinsælt aðventuævintýri Þjóðleikhússins - áttunda árið í röð! Með fulla vasa af grjóti (Stóra sviðið ) Fim 31/1 kl. 20:30 19.sýn Fös 8/2 kl. 20:30 21.sýn Sun 3/2 kl. 20:30 20.sýn Sun 10/2 kl. 20:30 Nýtt sýningatímabil hefst eftir áramót - miðasala í fullum gangi!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.