Morgunblaðið - 04.12.2012, Side 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2012
Eftirréttir Sollu
bbbbn
Eftir Sólveigu Eiríksdóttur
Ljósmyndir: Matthías Árni Ingimarsson
JPV 2012. 180 bls.
Unnendur hráfæðis, sem og þeir sem kynn-
ast vilja slíkri matargerð, ættu ekki að láta nýj-
ustu bók Sólveigar Eiríksdóttur framhjá sér
fara. Hún geymir m.a. hráfæðisuppskriftir að
brownies, bökum,
hnallþórum, konfekt-
kúlum, ís og múffum. Í
fyrsta kafla bók-
arinnar fer Sólveig
nokkrum orðum um
helstu hráefni og
grunnaðferðir við
matseldina sem koma
að góðum notum.
Einnig minnir hún á
hversu stórt hlutverk
matvinnsluvélin og blandarinn leika við gerð
hráfæðisrétta. Þó að sumar uppskriftirnar
byggist á langri upptalningu eru leiðbeiningar
skýrar og því engin ástæða til þess að fallast
hendur fyrirfram þó réttirnir kalli á dálitla
vinnu.
Bókin er fallega hönnuð í litlu broti sem fer
vel í hendi og myndirnar eru mikið fyrir augað.
Höfundur minnir réttilega á að eftirréttir eru
lúxus og þó að hráfæðiseftirréttir séu næring-
arríkir og seðjandi komi þeir ekki í staðinn fyr-
ir grænmeti og annan hollan mat. En hráfæð-
isuppskriftirnar eru líka lúxusmatur í öðrum
skilningi því þær kalla yfirleitt á hráefni sem er
dýrara en ýmsir hefðbundnari eftirréttir.
Múffur í hvert mál
bbbbn
Texti og myndir eftir Nönnu Rögnvaldardóttur
Iðunn 2012. 112 bls.
Matgæðingurinn Nanna Rögvaldardóttir
hefur sent frá sér enn eina gæðabókina. Að
þessu sinni deilir hún
með lesendum 42 fjöl-
breyttum múffuupp-
skriftum sem henta
jafnt að morgni sem
kvöldi. Flestir eru
sennilega vanir því að
múffur séu sætar og
því gætu uppskriftir á
borð við t.d. hangi-
kjötsmúffur, spínat- og
fetamúffur eða gráða-
osts- og rósmarínmúffur hljómað frekar fram-
andi. En eins og Nanna bendir réttilega á geta
múffur hentað afbragðsvel sem kvöldmatur
eða kryddað brauðmeti með súpunni. Af sæt-
um múffuuppskriftum sem óhætt er að mæla
með eru Toblerone-múffur og trönuberja- og
graskersfræjamúffur.
Í inngangi bókarinnar segir Nanna að múff-
ur séu hennar uppáhaldsbakkelsi sökum þess
hversu einfaldar, fljótlegar, góðar og ótrúlega
fjölbreyttar þær geta verið. Óhætt er að taka
undir með Nönnu, því eftir að hafa bakað ófáar
uppskriftir bókarinnar má ljóst vera að það
tekur enga stund að skella í gómsætar múffur
sem reyndar eru bestar nýbakaðar og rjúkandi
heitar. Eitt helsta einkennið á bók Nönnu er
hversu afslappað viðhorf höfundur hefur til
matseldar og er það afar þakklátt. Sem dæmi
leggur Nanna áherslu á að líta beri á upp-
skriftir hennar sem grunnuppskriftir sem
breyta megi á ýmsa vegu allt eftir smekk les-
enda, því hvað sé til eða hvað pyngjan leyfi.
Eldað með Ebbu í Latabæ
bbbbm
Eftir Ebbu Guðnýju
Guðmundsdóttur
Ljósmyndir: Árni
Torfason
Sögur 2012. 227 bls.
Eldað með Ebbu í
Latabæ er yndisleg
bók í alla staði. Hún er
stútfull af einföldum,
fljótlegum og ekki síst
girnilegum upp-
skriftum sem henta
vel allri fjölskyldunni. Bókin spannar allar
helstu máltíðir dagsins, s.s. grauta og orku-
drykki í morgunmat, brauð og álegg í drekku-
tímanum, súpur, aðalrétti og meðlæti í kvöld-
matinn og loks bæði sæta og salta eftirrétti.
Markmið höfundar var að búa til bók sem
höfðað gæti til allrar fjölskyldunnar jafnframt
því að sýna fram á að það er miklu einfaldara og
mun minni nákvæmnisvinna en margir halda að
útbúa frá grunni hollan og góðan mat. Óhætt er
að segja að höfundi takist þetta ætlunarverk sitt
með glæsibrag, því bókin er frábær leiðarvísir
fyrir börn sem eru að stíga sín fyrstu skref í eld-
húsinu undir góðri leiðsögn fullorðna fólksins.
Þannig má í bókinni t.d. finna greinargóðar leið-
beiningar um það hvernig eigi að gera hafra-
graut, sjóða egg, fisk, kartöflur og hrísgrjón.
Bókin er sérlega litrík og með fallegum mynd-
um sem oft og tíðum veita lesendum nýjar hug-
myndir um skemmtilega framreiðslu á einföldu
hráefni. Á víð og dreif um bókina má síðan finna
ýmis gullkorn og góð ráð frá höfundi sem oftar
en ekki framkalla bros.
Vissulega má deila um hversu æskilegt það sé
að halda tilteknum vörumerkjum að börnum, en
hins vegar verður ekki um það deilt að Latibær
hefur ávallt staðið fyrir heilbrigðan lífsstíl og
virðist höfða vel til ungviðisins. Ef hægt er að
nýta þann áhuga til góðs þá er það hið besta mál.
Matreiðslubækur
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Yfirlit yfir nýútkomnar íslenskar
matreiðslubækur
Sýning á verkum Ragnheiðar Jóns-
dóttur myndlistarkonu var opnuð á
vegum Listvinafélags Hallgríms-
kirkju í fordyri kirkjunnar á sunnu-
dag. Ragnheiður, sem er fædd árið
1933, sýnir röð stórra kolateikn-
inga sem hún kallar „Slóð“ en verk-
in vann hún á árunum 2006 til 2012.
Sýning Ragnheiðar í Hallgríms-
kirkju kallast á við yfirlitssýningu á
verkum hennar sem nú stendur yfir
á Kjarvalsstöðum, en ferill Ragn-
heiðar í myndlist spannar um 50 ár.
Menntun sína sótti Ragnheiður í
Myndlistaskólann í Reykjavík og
Myndlista- og handíðaskóla Íslands
en fyrstu sýninguna opnaði hún í
Casa Nova árið 1968. Ragnheiður
tók virkan þátt í að endurvekja fé-
lagið Íslensk Grafík árið 1969 og
kvaddi sér eftirminnilega hljóðs á
7. áratugnum með róttækum graf-
íkverkum um stöðu konunnar.
Sýnir í Hallgrímskirkju
Morgunblaðið/Einar Falur
Ragnheiður Stórar teikningar
hennar eru í fordyri kirkjunnar.
TILBOÐSDAGUR
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR
ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR
–BARA LÚXUS
www.laugarasbio.is
KILLING THEM SOFTLY Sýndkl.8-10
NIKO 2: BRÆÐURNIR FLJÚGANDI Sýndkl.6
SKYFALL Sýndkl.6-9
PITCH PERFECT Sýndkl.8-10:15
WRECK-IT RALPH 3D Sýndkl.5:40
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
12
12
Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð
16
L
L
,,Sú besta í allri seríunni”
T.V - Kvikmyndir.is
,,Fyrsta flokks 007”
J.A.Ó - MBL
,,Þrælspennandi og skemmtileg
frá upphafi til enda”
H.V.A - FBL
Þ.Þ - FBL
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
J. A. Ó. - MBL
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
ÍSLENSKT TAL
NÁNAR Á MIÐI.IS
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
KILLING THEM SOFTLY KL. 8 - 10.15 16
SILVER LININGS PLAYBOOK KL. 5.20 - 8 - 10.40 16
HERE COMES THE BOOM KL. 5.40 - 8 - 10.20 7
NIKO 2 KL. 4 - 6 L
HOTEL TRANSYLVANIA ÍSL. TEXTI KL. 3.30 7
SKYFALL KL. 5 - 8 12
SKYFALL LÚXUS KL. 5 - 8 12
ARFUR NÓBELS KL. 5.50 - 8 - 10.10 16
SILVER LININGS PLAYBOOK KL. 5.20 - 8 16
SNABBA CASH 2 KL. 10.40 16
CLOUD ATLAS KL. 5.30 - 8 - 9 16
DJÚPIÐ KL. 5.50 10
KILLING THEM SOFTLY KL. 8 - 10 16
HERE COMES THE BOOM KL. 8 7
SILVER LININGS PLAYBOOK KL. 5.40 - 10 12
SKYFALL KL. 5.20 12
“GEÐVEIK RÓMANTÍK”
-S.G.S., MBL