Morgunblaðið - 18.12.2012, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2012
Skipholti 3 - Sími: 552 0775 - www.erna.isERNA GULL- OG SILFURSMIÐJA
Fallega
jólaskeiðin
frá Ernu
Jólaskeiðin 2012
er hönnuð af
Sóleyju Þórisdóttur.
Skeiðin er smíðuð á
Íslandi úr ósviknu silfri.
Verð: 18.500.- stgr.
Silfurmunir og skartgripir síðan 1924
Peysujakki
11.900 kr.
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is Ríta tískuverslun
Str. M-XXXL
Fjölskylduhjálp Íslands
ENGINN ÁN MATAR
Á ÍSLANDI
Söfnunarreikningur
Fjölskylduhjálpar Íslands
101 - 26 - 66090, kt 660903-2590.
Kringlan s. 568 1822 • Smáralind s. 564 1822
Jólaföt • Jólagjafir • Náttföt
Gæða föt fyrir káta krakka
á aldrinum 0-12 ára
JÓLAGJAFIR KONUNNAR
LOÐSKINNSHÚFUR - SKINNKRAGAR
KASMÍRTREFLAR - SPARIBOLIR
PEYSUÚRVAL - BLÚSSUÚRVAL
HÁGÆÐA ÍTALSKAR ULLARKÁPUR
Laugavegi 63 • S: 551 4422
SKOÐAÐU YFIRHAFNIR Á LAXDAL.IS
Vertu vinur á
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Hlýleg jólagjöf
Póstsendum
Ullar- og silki
nærföt frá jklæ
70% ull, 30% silki
Hæstiréttur hefur staðfest 4 vikna
gæsluvarðhald yfir manni á fertugs-
aldri sem sakaður er um mjög alvar-
lega líkamsárás á hendur 18 ára
stúlku, sem enn liggur á sjúkrahúsi
eftir árásina. Maðurinn hefur ítrek-
að hlotið dóma og er til rannsóknar
vegna fleiri brota, þar á meðal of-
beldisbrota og nauðgunar.
Að mati lögreglu þykir ljóst að
maðurinn hafi einbeittan brotavilja,
ekkert lát hafi verið á brotum hans
sem séu ósvífin og tengist oft ofbeldi
gegn ungum konum.
Maðurinn var handtekinn aðfara-
nótt fimmtudags eftir að lögreglu
barst tilkynning um ofbeldi á gisti-
húsi þar sem hann dvaldi ásamt
stúlkunni. Fram kemur í greinar-
gerð lögreglustjórans á höfuðborg-
arsvæðinu að þegar lögregla kom á
staðinn hafi maðurinn verið blóðug-
ur á líkama og á höndum. Stúlkan
hafi setið grátandi á rúminu, stokk-
bólgin og blóðug. Greinileg ummerki
hafi verið um átök í herberginu, blóð
á veggjum, gólfi og húsgögnum. Þá
heyrði starfsmaður gistiheimilisins
manninn hóta stúlkunni lífláti.
Maðurinn hefur margsinnis komið
við sögu lögreglu og á langan saka-
feril. Frá árinu 2002 hefur hann 15
sinnum hlotið dóm, m.a. vegna auðg-
unarbrota, fíkniefnalagabrota og
umferðarlagabrota. Í árslok 2003 var
hann dæmdur í 7 ára fangelsi fyrir
manndrápstilraun.
Til rannsóknar hjá lögreglu er
fjöldi annarra brota sem maðurinn
er sakaður um á tímabilinu frá ágúst
fram í október. Í október var hann
jafnframt úrskurðaður í nálgunar-
bann í 6 mánuði gagnvart fyrrver-
andi unnustu sinni sem hann er
grunaður um að hafa beitt ofbeldi.
Með marga dóma á bakinu
Gæsluvarðhald staðfest yfir manni á fertugsaldri sem sak-
aður er um mjög alvarlega líkamsárás á hendur 18 ára stúlku
Fjölskylduhjálp
Íslands segir
mikla neyð ríkja
hjá þúsundum
manna, en nú um
jólin muni um
6.000 manns
njóta aðstoðar
samtakanna.
Í tilkynningu
sem barst frá
Fjölskylduhjálp
Íslands síðdegis í gær segir að fjöldi
manna hafi bæst í hóp þeirra er hafi
sótt um aðstoð síðustu tvær vik-
urnar.
Sækja um á síðustu stundu
„Fólk sem taldi sig geta fjár-
magnað jólahaldið sækir nú um á
síðustu stundu þar sem um algjört
peningaleysi er að ræða. Það er
stöðugt verið að skrá niður fólk fyrir
jólaaðastoð og verður skráningu
haldið áfram á morgun og næstu
daga ef þörf krefur,“ segir í tilkynn-
ingunni.
Mikil neyð
hjá þúsund-
um manna
6.000 fá aðstoð hjá
Fjölskylduhjálpinni
mbl.is