Morgunblaðið - 18.12.2012, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2012
slík löggjöf byggist á „ríkum al-
mannahagsmunum“ og „félagslegri
stefnumörkun hins opinbera“.
Arnór telur það ekki jafn auðvelt
og gefið er í skyn að gera málefnalega
aðgreiningu milli aðila og réttlæta
takmarkanir við fjárfestingu með vís-
an til þessara sjónarmiða.
Þá bendir hann á að með þessu fari
frumvarpið í bága við stefnu stjórn-
valda vegna ESB-viðræðnanna, enda
hafi verið samstaða um að halda í
möguleikann til að takmarka fjárfest-
ingar erlendra aðila í íslenskum
sjávarútvegi og orkuiðnaði.
Arnór víkur einnig að 4. málsgrein-
inni sem er svohljóðandi:
„Stjórnvöld bera, ásamt þeim sem
nýta auðlindirnar, ábyrgð á vernd
þeirra. Stjórnvöld geta á grundvelli
laga veitt leyfi til afnota eða hagnýt-
ingar auðlinda eða annarra takmark-
aðra almannagæða, gegn fullu gjaldi
og til tiltekins hóflegs tíma í senn.
Slík leyfi skal veita á jafnræðis-
grundvelli og þau leiða aldrei til eign-
arréttar eða óafturkallanlegs for-
ræðis yfir auðlindunum.“
Miðist við markaðsverð
Arnór bendir á að skv. skýringum
við frumvarpið ber að skilja tilvísun
til „fulls gjalds“ þannig að „átt sé við
markaðsverð, þ.e. hæsta gjald sem
nokkur er fús að greiða, t.d. á mark-
aði eða uppboði eða í samningum við
ríkið“ og að frumvarpið afmarkist við
„tiltekinn hóflegan tíma“.
Arnór telur þessa tillögu óskýra.
„Í heildina verður að telja tillöguna
óljósa að efni til, ekki síst á sviði fisk-
veiðistjórnar. Þess má reyndar geta
að einn af sýnilegri fulltrúum í stjórn-
lagaráði hefur nýlega komist svo að
orði í Skírni að með tillögunni „sé
gengið á hólm við gildandi skipulag“
við stjórn fiskveiða,“ skrifar Arnór en
höfundur greinarinnar er Þorvaldur
Gylfason, hagfræðiprófessor við HÍ.
Þá telur Arnór að hugtökin „fullt
gjald“, „hóflegur tími“ og „jafnræð-
isgrundvöllur“ séu „ekki sett í sam-
hengi við stefnumótun um auðlinda-
mál á síðustu árum“.
Hann vísar þannig til ýmissa
skýrslna nefnda og vinnuhópa á veg-
um stjórnvalda á síðustu árum en þar
sé því m.a. haldið til haga hversu ólík-
ar auðlindir í eigu opinberra aðila séu
í eðli sínu. Þar komi fram að „ólík lög-
mál gildi um auðlindir hafsins, vatns-
aflsvirkjanir, jarðvarmavirkjanir og
námur á hafsbotni, hvað snertir t.d.
leigu- eða leyfistíma, fyrirkomulag
leyfisveitingar og gjaldtöku“.
Arnór skrifar að draga megi í efa
að ný lög um veiðigjöld samrýmist
kröfu stjórnlagaráðs um „fullt verð“
fyrir auðlindir og að tilvísun ráðsins í
eignarnámsbætur í því samhengi sé
„óskiljanleg“. Þá verði að spyrja
hvort tímabinding núverandi afla-
hlutdeilda að mestu leyti, í upphafi til
20 ára en að liðnum fimm árum til 15
ára í senn, eins og lagt var til í frum-
varpi um fiskveiðistjórn á síðasta
þingi verði talið samrýmast kröfunni.
Telja verði þessi ákvæði stjórn-
arskrárfrumvarpsins hafa „óljóst efn-
isinntak“. Skýringar við þau séu
„ófullkomnar og virðast að mestu
leyti hugsaðar í tengslum við eina
auðlind, þ.e. nytjastofna sjávar.“ Með
því sé líklegt að „ákvæðin ýti undir
ágreining og skapi óvissu“.
Ákvæði stjórnlagaráðs um
auðlindir ýti undir óvissu
Morgunblaðið/Golli
Drög að stjórnarskrá Frá einum funda stórnlagaráðs. Vinna þess er umdeild.
Umsögn lögmanns hjá ráðuneyti
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Tillaga stjórnlagaráðs um að fella
brott 2. málsgrein 72. greinar stjórn-
arskrárinnar, sem kveður á um heim-
ild löggjafans til að takmarka rétt er-
lendra aðila til að eiga fasteignir eða
hlut í fyrirtækjum hér á landi, er rök-
studd með skýr-
ingum sem eru
„reistar á hæpn-
um eða villandi
forsendum“.
Þetta er mat
Arnórs Snæ-
björnssonar, lög-
fræðings auð-
lindaskrifstofu
sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðu-
neytisins, nú at-
vinnuvega- og nýsköpunarráðuneyt-
inu, sem skilað hefur ítarlegri
umsögn til Alþingis samkvæmt beiðni
atvinnuveganefndar, vegna frum-
varps að nýrri stjórnarskrá.
Málsgreinin, eða heimildin, sem
stjórnlagaráð vill að felld verði út er
svohljóðandi: „Með lögum má tak-
marka rétt erlendra aðila til að eiga
fasteignaréttindi eða hlut í atvinnu-
fyrirtæki hér á landi.“
Skv. skýringum við frumvarpið var
það skoðun fulltrúa stjórnlagaráðs að
heimildin „þyki stangast á við jafn-
ræðisreglu stjórnarskrárinnar og al-
þjóðasamninga sem Ísland er aðili að
og heimila Íslendingum hindrunar-
laust að eiga fasteignaréttindi og
hluti í atvinnufyrirtækjum erlendis“.
Breytingin ekki rökstudd
Telur Arnór stjórnlagaráðið ekki
færa nein rök fyrir því að áðurnefnd
heimild stangist á við jafnræðisreglu
stjórnarskrárinnar eða alþjóðasamn-
inga sem Ísland er aðili að. En með
jafnræðisreglu er vísað til 65. greinar
stjórnarskrárinnar þar sem segir að
„Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og
njóta mannréttinda án tillits til kyn-
ferðis, trúarbragða, skoðana, þjóð-
ernisuppruna, kynþáttar, litarháttar,
efnahags, ætternis og stöðu að öðru
leyti.“ Stjórnlagaráðsmenn telji að
þrátt fyrir að heimildin sé felld brott
megi setja skorður við þátttöku er-
lendra aðila í íslensku atvinnulífi ef
Arnór
Snæbjörnsson
Óljóst er hvernig fara á með
aflaheimildir og hver staða
handhafa þessara réttinda
verður ef stjórnlaga-
frumvarpið verður samþykkt.
Alger réttaróvissa er um
stöðu þessara réttinda. Þetta
má lesa út úr álitsgerð sem
lögmannsstofan Lex vann fyrir
Landssamband íslenskra út-
vegsmanna vegna stjórnlaga-
ráðsfrumvarpsins. Í frumvarp-
inu eru allar náttúruauðlindir
á Íslandi lýstar þjóðareign og
þykir sérfræðingum Lex sem
lagaleg merking þess sé
óskýr. Handhafar aflaheimilda
í dag njóti verndar stjórnar-
skrárinnar þar sem aflaheim-
ildir séu verndaðar af 72. gr.
stjórnarskrárinnar sem at-
vinnuréttindi. Samkvæmt 72.
greininni er eignarrétturinn
friðhelgur og skal koma fullt
verð fyrir. Sérfræðingar Lex
telja óvíst hvort stjórnlaga-
frumvarpið feli í sér brott-
hvarf frá þessu þannig að ætl-
unin sé að svipta handhafa
aflaheimilda réttindum án til-
lits til þeirrar verndar sem
eignarréttarákvæði stjórnar-
skrárinnar veitir. Stjórnlaga-
frumvarpið virðist fela í sér
miðlægt fyrirkomulag án þess
að útfærslan og áhrif fyrir nú-
verandi handhafa liggi fyrir.
Veldur algerri
réttaróvissu
GREINING LEX
•
verð frá 37.000,-
Hugljúfar gjafir
Kimmidoll á Íslandi | Ármúla 38 | Sími 588 5011
NOBUKO „Believe”
My spirit gives direction
and brings purpose