Morgunblaðið - 18.12.2012, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 18.12.2012, Blaðsíða 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2012 In the Silence bbmnn Breiðskífa Gretu Salóme. Lög og textar eftir Gretu. Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson stýrði upptökum. Sena gefur út. Greta Salóme fiðluleikari sýndi það með þátttöku sinni í Evróvisjón að hún er ágæt söngkona og svell- köld á sviði. Þau Jónsi komust vel frá sínu þótt framlag Ís- lendinga, „Mundu eft- ir mér“, hafi ekki fallið vel í kramið hjá Evrópu- búum. Það lag er nú að finna, á ís- lensku og ensku, á fyrstu breiðskífu Gretu sem hefur að geyma lög og texta eftir hana. Í samtali við Morgunblaðið snemma í desember sagði Greta m.a. að mikið væri af öllu á plötunni, m.a. strengjasveit, stúlknakór, fjöldi söngvara og mik- ið af slagverki. Það eru orð að sönnu og stundum er fullmikið í lagt, of mikið af öllu. Þetta er dramatískt popp, e.k. bræðingur af poppi og klassík og mörg laganna myndu eflaust ganga vel í Evró- visjón þar sem dramatíkinni er iðu- lega tekið fagnandi. Lagasmíðarnar eru upp og ofan hjá Gretu, sum lög- in ágætlega grípandi og vel útsett en önnur flöt og þunglamaleg. Greta er með fallega söngrödd sem heyrist einna best í einu besta lagi plötunnar, „If You Wanna Go“, lík- lega vegna þess að henni er ekki drekkt í strengjum, slagverki og bakröddum. Fín frumraun hjá Gretu en fyrir næstu plötu mætti hún íhuga það hvort minna sé ekki stundum meira. Moment bbbnn Breiðskífa Láru Rúnars. Lög eftir Láru og textar eftir hana og Matt- hew Sever. Sena gefur út. Þema fjórðu breiðskífu Láru Rúnars er endurfæðing og úr- vinnsla á tilfinningum áður en nýtt líf byrjar, eins og hún orðaði það í samtali við Morgun- blaðið í nóv- ember sl. Ekki lítið þema þar á ferð en maður verður þó ekki bein- línis var við það þegar maður hlust- ar á plötuna. En hvað um það. Plat- an hefst á hinu ágæta lagi „Beast“ sem hefur verið leikið þónokkuð í útvarpi og á eftir fylgja misjöfn popplög, sum ágæt en önnur heldur slök og maður freistast til að sleppa þeim, hoppa yfir í næsta lag. Lögin útsetti Lára í samvinnu við hljóm- sveit sína og eru útsetningar marg- ar hverjar skemmtilegar, dálítið gamaldags (níundi áratugurinn?) en aðrar öllu frumlegri. Það vantar þó einhvern kraft í þessa plötu og eitthvað sem bindur hana saman í eina heild. Hún virkar brotakennd á mann, einhverra hluta vegna. Og ljósmyndin á umslaginu … hvað á maður að lesa út úr henni? Lára endurfædd? Heimþrá bbbmn Breiðskífa Elízu Newman. Lög eftir Elízu og textar eftir hana o.fl. Geimsteinn gefur út. Það er öllu léttara að skilja hvað Elíza er að fara en hún Lára. Plat- an heitir Heimþrá af því hún fylltist heimþrá þegar hún bjó í útlöndum, langaði heim til Íslands. Elíza ákvað að semja tónlist til að komast yfir heimþrána. Einfalt og gott. Heimþrá er líka fyrsta sólóplata Elízu á íslensku, enda varla annað hægt ef maður ætlar að flytja ætt- jörðinni óð. Þetta er hlýleg og fal- leg plata en jafnframt hressandi. Lagið „Stjörnu- ryk“ er fínn danssmellur, sungið um sumarið, að lífið sé stutt og því beri að njóta þess. Það er ekkert verið að finna upp hjólið í útsetningum; gítar, pí- anó, trommur, smá harpa jafnvel og ukulele þegar sóst er eftir auka- skammti af krúttlegheitum. Þetta er innileg og einlæg plata hjá Elízu en eyrnaormana svonefndu vantar hins vegar, þ.e. lögin sem festast í bollanum á manni. Dramatík, endur- fæðing og innileiki Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Yfirlit yfir nýjar íslenskar plötur Hljómþýð Greta er með fallega söngrödd sem heyrist einna best í einu besta lagi plötunnar, „If You Wanna Go“. „Á dimmri nóttu“ nefnast jólatón- leikar sem Anna Sigríður Helgadótt- ir söngkona og Aðalheiður Þor- steinsdóttir píanóleikari halda áttunda árið í röð. Síðustu ár hafa tónleikarnir verið í Fríkirkjunni, en í ár verða þeir í Dómkirkjunni í Reykjavík og fara fram í kvöld kl. 20.30. „Að vanda verður þetta allt á rólegu nótunum. Við reynum að skapa nokkurs konar torfkofastemn- ingu, dempum lýsinguna og flytjum íslenska sálma og jólalög,“ segir Anna Sigríður og tekur fram að tón- leikarnir séu hugsaðir sem tilvalin leið til þess að hjálpa fólki að slaka aðeins á í öllu jólastressinu. „Fólki er þannig velkomið að taka með sér púða og leggja sig eða slaka á,“ segir Anna Sigríður og tekur fram að að- gangur sé ókeypis. Tvíeyki Aðalheiður Þorsteinsdóttir og Anna Sigríður Helgadóttir. Aðventustundin Á dimmri nóttu í DómkirkjunniTILBOÐSDAGUR TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR –BARA LÚXUS www.laugarasbio.is SO UNDERCOVER Sýndkl.6-8 GOÐSAGNIRNAR FIMM 3D Sýndkl.6 KILLING THEM SOFTLY Sýndkl.10 SKYFALL Sýndkl.6-9 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Bráðskemmtileg gamanmynd í anda MISS CONGENIALITY 12 7 16 L -bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR ,,Sú besta í allri seríunni” T.V - Kvikmyndir.is ,,Fyrsta flokks 007” J.A.Ó - MBL ,,Þrælspennandi og skemmtileg frá upphafi til enda” H.V.A - FBL Þ.Þ - FBL ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS ÍSLENSKT TAL NÁNAR Á MIÐI.IS ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIN GILDA EKKI Í BORGARBÍÓ -S.G.S., MBL -H.V.A., FBL SO UNDERCOVER KL. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 7 GOÐSAGNIRNAR FIMM 3D KL. 3.40 7 GOÐSAGNIRNAR FIMM 2D KL. 3.40 - 5.50 7 KILLING THEM SOFTLY KL. 8 - 10.15 16 SILVER LININGS PLAYBOOK KL. 10.20 16 HERE COMES THE BOOM KL. 5.40 - 8 7 NIKO 2 KL. 3.40 L SKYFALL KL. 6 - 9 12 SKYFALL LÚXUS KL. 6 - 9 12 SO UNDERCOVER KL. 8 - 10 L KILLING THEM SOFTLY KL. 8 - 10 16 HERE COMES THE BOOM KL. 5.50 7 SKYFALL KL. 5.20 12 JACKPOT KL. 6 - 8 - 10 16 SILVER LININGS PLAYBOOK KL. 5.20 - 8 - 10.40 16 CLOUD ATLAS KL. 5.30 - 8 - 9 16 DJÚPIÐ KL. 5.50 10

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.