Morgunblaðið - 18.12.2012, Síða 12

Morgunblaðið - 18.12.2012, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2012 Samanlagt var áhætta Glitnis vegna lánveitinga til Fons án viðunandi trygginga komin í liðlega 24,5 milljarða króna í lok apríl 2008. Saksókn- ari segir að Lárus og Magnús Arnar hafi árið 2008 samþykkt lánveitingu upp á sex milljarða króna utan reglulegs fundar áhættunefndar bankans og það að ástæðulausu. Hlutur Fons í Aurum Holdings Limited var settur að veði. En saksóknari bendir á að staða Aurum hafi verið afar léleg, upplýs- ingar um verðmæti hlutarins hafa byggst á mati sem nánir samstarfs- menn Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, helsta áhrifamanns hjá Glitni og við- skiptafélaga Pálma Haraldssonar, aðaleiganda Fons, lögðu fram. Capacent mat nettóverðmæti Aurum á um 52 milljónir punda í árslok 2007 en Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs Group hf., taldi 6. maí að það væri um 100 milljónir punda. Bankinn hafi fyrr á árinu 2008 ítrekað þurft að veita Fons greiðslufrest á gjaldföllnum afborgunum. Í júní 2008 var samanlögð áhætta Glitnis vegna Fons komin í um 24,5 milljarða króna. Ítrekaður greiðslufrestur Hluti af fléttu þeirra Jóns Ásgeirs og Pálma gekk út á að hinn fyrrnefndi fengi inn á sinn reikning einn milljarð af sex milljarða króna láninu til Fons. Myndi Jón Ásgeir meðal annars nýta þetta fé til að greiða ótryggða yfirdráttarskuld sína hjá Glitni upp á tæpar 705 milljónir króna. Jón Ásgeir bað í febrúar 2008 bankann um yfirdrátt upp á 220 millj- ónir króna. Starfsmenn voru tregir til þess enda engar tryggingar til staðar. Fór Jón Ásgeir þá fram á að bankinn veitti Fons lán upp á 1.000- 1.500 milljónir króna. Gæti Fons þá gert upp skuld við Jón Ásgeir. Í febr- úar fékk viðskiptastjóri bankans heimild til að veita Jóni Ásgeiri yfirdrátt upp á 250 milljónir króna, í júlí var yfirdrátturinn fyrst hækkaður í 566 milljónir og loks í 720 milljónir, aftur án trygginga. Aurum Holdings Limited var breskt móðurfélag skartgripakeðjanna Goldsmiths, Mappin & Wepp og WOS. Aurum hét áður Goldsmiths en nafninu var breytt 2007. Fons átti frá 2008 25,7% hlut í Aurum en stærsti hluthafinn var BG Holdings ehf., dótturfélag Baugs Group í Bret- landi. Sá hlutur er talinn hafa numið allt frá 41,9% upp í 49,9%. Fram kemur í gögnum málsins að starfsmaður Glitnis sagði á minnis- blaði frá apríl 2008 að afkoma Aurum væri undir væntingum og félagið væri flokkað ógjaldfært. Það væri á athugunarlista bankans. Minnis- blaðið var lagt fram á fundi fyrirtækjalánanefndar Glitnis í byrjun júní ár- ið 2008. Vegna taps á rekstri Aurum hafði Fons fært niður eignarhlut sinn 1. janúar 2008 úr liðlega 2.855 milljónum króna í tæplega 1.468 milljónir. Fyrirtækin sem komu við sögu í þessum viðskiptum voru mýmörg. Þú blá- sól ehf. var einkahlutafélag í eigu Jóns Ásgeirs. Sagði hann í júlí 2010 að milljarðurinn frá Fons hefði farið í að greiða skuld félagsins við hann per- sónulega upp á tæpar 535 milljónir króna en einnig hefði hann sjálfur ætl- að að borga, fyrir hönd Blásólar, hluta af byggingarkostnaði við skíðahótel í Frakklandi. Þegar milljarðurinn var millifærður af reikningi Fons samþykkti Pálmi Haraldsson, aðaleigandi Fons og viðskiptafélagi Jóns Ásgeirs í ýmsum fé- lögum, færsluna með þeirri athugasemd að þeir hefðu verið að kaupa skuldabréf af Þú blásól ehf. fyrir sömu fjárhæð. Sex milljarða lánið frá Glitni var greitt til Fons 21. júlí 2008 en Fons milli- færði daginn eftir einn milljarð af reikningi sínum hjá Glitni yfir á reikning sinn í Kaupþingi banka í Lúxemborg. Þaðan var fjárhæðin með vöxtum flutt í apríl 2009 á reikning enn eins félagsins, Talden Holding SA, vegna þess að Fons hafði árið 2003 ábyrgst milljarðaskuld Talden við Kaupþing. Skíðahótel og Þú blásól ehf. Kristján Jónsson kjon@mbl.is Mikið er í húfi í málinu sem sérstak- ur saksóknari hefur nú höfðað gegn fjórum mönnum í hinu svokallaða Aurum-máli. Um er að ræða þá Lár- us Welding, fyrrverandi bankastjóra Glitnis, Magnús Arnar Ásgrímsson, framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs bankans, Jón Ásgeir Jóhannesson, einn af aðaleigendum bankans og Bjarna Jóhannesson, fyrrverandi viðskiptastjóra bankans. Málið er kennt við Aurum, breska skartgripakeðju sem var að meiri- hluta í eigu íslenskra aðila, Baugs Group og Fons. Hlutabréf Fons í Aurum voru notuð sem helsta trygg- ingin vegna sex milljarða láns Glitnis til Fons 2008, hluti af því fé hafnaði á reikningi Jóns Ásgeirs. Er Jón Ás- geir sagður hafa á árinu 2008 í krafti áhrifa sinna í Glitni „beitt Lárus og Bjarna fortölum og þrýstingi og hvatt til þess, persónulega og með liðsinni Jóns Sigurðssonar, varafor- manns stjórnar Glitnis Banka hf., og Gunnars Sigurðssonar, forstjóra Baugs Group,“ að yfirmenn Glitnis samþykktu lánveitinguna. Matið á Aurum Við mat á verðmæti Aurum var m.a. notast við persónulega skoðun Gunnars Sigurðssonar hjá Baugi Group. Gunnar gekk þar út frá því að FS38 myndi selja hlut sinn í Aurum til Damas, félags í Dubai. Sendi hann Glitni skjal um viljayfirlýsingu vegna fyrirhugaðra viðskipta. En fram kemur í ákærunni að aðeins hafi verið um óskuldbindandi yfirlýs- ingu af hendi Damas að ræða. Fram kemur í ákærunni að Jón Ásgeir hafi gefið Lárusi Welding ástæðu til að óttast um stöðu sína ef hann neitaði að hlýða. Milljarður króna af lánsfé sem umrætt félag í eigu Fons hreppti fór síðan inn á reikning Jóns Ásgeirs sjálfs. „Honum [Jóni Ásgeiri] gat ekki dulist að með lánveitingunni væru ákærðu Lárus og Magnús Arnar að misnota aðstöðu sína og valda bank- anum verulegri fjártjónshættu en að undirlagi ákærða Jóns Ásgeirs heim- ilaði Fons hf. ráðstöfun á 1.000.000.000 króna af lánsfjárhæð- inni inn á reikning ákærða Jóns Ás- geirs sem hann tók við og nýtti í eig- in þágu, meðal annars til að greiða 704.916.008 króna ótryggða yfir- dráttarskuld sína hjá Glitni banka hf.,“ segir í ákæru sérstaks saksókn- ara. „Fékk ákærði Jón Ásgeir þann- ig hlut í ávinningi af brotinu og naut hagnaðarins.“ Lárus og Magnús Arnar eru ákærðir fyrir umboðssvik með því að hafa í júlí 2008 misnotað aðstöðu sína og stefnt fjármunum bankans í veru- lega hættu þegar þeir samþykktu í sameiningu að veita einkahlutafélag- inu FS38, „eignalausu félagi með takmarkaða ábyrgð“, sex milljarða króna lán án fullnægjandi trygginga fyrir endurgreiðslu. Lánið var form- lega veitt til að fjármagna kaup FS38 á 25,7% hlut Fons hf. í Aurum. Fons skuldaði Glitni 24,5 milljarða Pálmi Haraldsson, aðaleigandi Fons og Jón Ásgeir höfðu um árabil verið nánir viðskiptafélagar og varð Fons stór hluthafi í FL Group í apríl 2007. Jón Ásgeir var sem kunnugt er maðurinn á bak við Fl Group, aðal- eiganda Glitnis. Fram kemur í ákær- unni að í nóvember sama ár fékk Fons 2,5 milljarða króna að láni hjá Glitni án trygginga og aftur sömu fjárhæð í desember. Samanlagt var áhætta bankans vegna Fons komin í 24,5 milljarða króna í lok apríl 2008. Sakaðir um að misnota Glitni Morgunblaðið/Kristinn Umsvifamikill Jón Ásgeir Jóhannesson fór fyrir eigendahópnum á bak við Glitni sem hrundi ásamt hinum bönkunum haustið 2008.  Jón Ásgeir Jóhannesson greiddi yfir 700 milljóna yfirdrátt sinn hjá Glitni með fé sem Pálmi Haralds- son í Fons fékk að láni hjá bankanum vegna leikfléttu með hlutabréf í Aurum sem tryggingu Allt að 6 ára fangelsi? » Jón Ásgeir er ákærður fyrir hlutdeild í umboðssvikum Lár- usar og Magnúsar Arnars en til vara fyrir hylmingu og til þrautavara fyrir peningaþvætti. » Sérstakur saksóknari segir að við broti hinna ákærðu liggi allt að sex ára fangelsi. Morgunblaðið/Golli Glóandi Goldsmiths-skartgripafyrirtækið er breskt og hluti af keðjunni sem kennir sig við Aurum. Nafnið er latína og merkir gull. Álitu Aurum „ógjaldfært“ VAFASÖM LÁNATRYGGING Í BRESKRI SKARTGRIPAKEÐJU Yfirdráttur Jóns bólgnar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.