Morgunblaðið - 18.12.2012, Page 21
ins eftir Spitzer. „Obama er í aðstöðu
til að hafa forgöngu í málinu en ég tel
mjög ólíklegt að nýja þingið setji ný
byssulög.“
Repúblikanar eru í meirihluta í
fulltrúadeild þingsins og margir
þingmanna flokksins eru andvígir því
að löggjöfin verði hert. Einn þeirra
sagði um helgina að hægt væri að af-
stýra slíkum blóðsúthellingum í skól-
um með því að vopna starfsmenn
þeirra til að gera þeim kleift að verja
sig og börnin, að því er fram kemur í
frétt The Telegraph.
Því fer þó fjarri að vandamálið sé
skortur á byssum því hlutfall þeirra
sem eiga byssur er miklu hærra í
Bandaríkjunum en öðrum löndum.
Áætlað er að um 270 milljónir skot-
vopna séu í eigu almennra borgara í
Bandaríkjunum, þar af er um þriðj-
ungur skammbyssur.
AFP
Klökkur Barack Obama forseti viknaði þegar hann minntist fórnarlamb-
anna við minningarathöfn í Sandy Hook-skólanum í Newton.
Bushmaster .223
Heimild: Bushmaster Firearms International/Budsgunshop.com
Aðalvopn árásarmannsins sem varð 20 börnum og sex fullorðnum
að bana í Sandy Hook-barnaskólanum í bænum Newton í
Bandaríkjunum á föstudaginn var
Öll fórnarlömbin urðu fyrir þremur til 11 skotum
Útgáfa af M4-herriffli og ætluð fyrir almennan markað
Stærð skothylkis: 30 skot
Lögreglumenn fundu nokkur
skothylki í Sandy Hook-skólanum
Sjálfhlaðandi
Byssan var í eigu móður árásarmannsins, sem hafði keypt hana með
löglegum hætti. Hann skaut móður sína til bana áður en hann fór
í skólann
Tvær skammbyssur fundust einnig á staðnum
Lengd: 100,3 cm
Þyngd: um 3,3 kg (án skothylkis)
Verð: 700$-1,000$
(89.000-127.000 kr.)
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2012
37 ára kona sem var ákærð fyrir að
geyma höfuðkúpur og mannabein í
íbúð sinni var í gær látin laus gegn
skilorði og dæmd til að gangast
undir meðferð hjá geðlækni.
Saksóknarar sögðu að konan
hefði notað beinin „í ýmsar kyn-
ferðislegar athafnir“ en héraðs-
dómstóll í Gautaborg hafnaði þeirri
ásökun.
Dómstóllinn sagði að konan hefði
gerst sek um lögbrot með því að
„raska ró látinna“, safna höfuð-
kúpum og beinum og geyma þau á
heimili sínu. Hún var einnig dæmd
sek um ólöglega byssueign, en það
var eina ákæruatriðið sem hún ját-
aði.
SVÍÞJÓÐ
Dæmd fyrir að geyma höfuðkúpur
23 ára gömul námskona liggur nú á sjúkrahúsi í Delhí, höfuðborg Indlands,
eftir líkamsárás og hópnauðgun í strætisvagni. Konan var á ferð ásamt
karlkyns vini sínum í fyrrakvöld þegar ráðist var á þau. Árásarmennirnir
rifu fötin utan af þeim, börðu þau og hentu þeim út úr vagninum.
Bæði voru lögð inn á sjúkrahús og er konan sögð í lífshættu.
INDLAND
Í lífshættu eftir hópnauðgun
Innanríkisráðuneyti Ísraels kvaðst í
gær hafa heimilað verktökum að hefj-
ast handa við undirbúning umdeildra
áforma um að
reisa 1.500 íbúðir í
landtökubyggð
gyðinga í Austur-
Jerúsalem. Tals-
maður ráðuneytis-
ins sagði að skipu-
lagsnefnd þess
hefði sagt verk-
tökunum að þeir
gætu reist 1.500
íbúðir en ekki 1.600 eins og gert hafði
verið ráð fyrir. Liðið gætu mánuðir
eða ár þar til framkvæmdirnar yrðu
samþykktar endanlega, að sögn
fréttaveitunnar AFP.
Áformin ollu deilu milli Benjamins
Netanyahus, forsætisráðherra Ísra-
els, og Bandaríkjastjórnar þegar þau
voru fyrst tilkynnt árið 2010. Reisa á
íbúðirnar í Ramat Shlomo, land-
tökubyggð gyðinga í Austur-
Jerúsalem sem Ísraelar náðu á sitt
vald árið 1967.
ÍSRAEL
Heimila 1.500 íbúðir
í Austur-Jerúsalem
Hundruð þúsunda Norður-Kóreu-
manna söfnuðust saman í miðborg
Pjongjang í gær til að minnast þess
að ár er liðið frá dauða Kim Jong-Il,
sem stjórnaði Norður-Kóreu frá
árinu 1994 og tók við af föður sínum,
Kim Il-Sung, fyrsta leiðtoga komm-
únistaríkisins. Ártíðarinnar var
minnst með þriggja mínútna þögn í
öllu landinu. Norðurkóreska ríkis-
sjónvarpið sýndi minningarathöfn-
ina í Pjongjang í beinni útsendingu.
Myndir sem teknar voru af eigin-
konu Kim Ung-Un, sonar og eftir-
manns Kim Jong-Il, þóttu benda til
þess að hún væri barnshafandi.
Kim fjórði á leið í heiminn?
AFP
Ártíð Blóm lögð að styttum af Kim-Il Sung og Kim Jong-Il í Pjongjang.
Fossaleyni 2, 112 Reykjavík, sími 586 1000
husgogn.is
Heill heimur
af ævintýrum
Nilfisk hrein snilld fyrir jólin
Hátúni 6a • 105 Rvk • Sími 552 4420 • fonix.is
Power P40 blá, 2000w, hepasía
Listaverð 49.900
Tilboð 44.900
Power ECO hvít, 1250w, hepasía
Listaverð 45.900
Tilboð 39.900
Bravo Parquet, silfur 2000w, hepasía
Listaverð 39.400
Tilboð 29.900
Bravo rauð, 2000w, Hepasía
Listaverð 36.400
Tilboð 27.600
Extreme Hygienic blá, 2000w, hepasía
Listaverð 68.900
Tilboð 58.900
Extreme Complete, 2100w, Hepasía
Listaverð 79.900
Tilboð 69.900
Handy 2in1, kremuð, ljós 12v
Listaverð 24.200
Tilboð 19.700
Handy 2 in 1, 25v lithium, rauð
Listaverð 31.200
Tilboð 25.900
Handy 2in1, 18v lithium, Svört
Listaverð 27.500
Tilboð 22.800
Coupe NEO parquet silfur, 2000w,
Hepasía
Listaverð 28.800
Tilboð 24.400
Coupe NEO rauð, 2000w, Hepasía
Listaverð 24.800
Tilboð 21.400