Morgunblaðið - 18.12.2012, Síða 32
32 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2012
Slappa af með fjölskyldunni,“ segir Valdimar Þór Skarphéðins-son bensínafgreiðslumaður aðspurður hvað hann hyggistgera í tilefni þrítugsafmælis síns í dag og bætir við að hann
hafi um liðna helgi haldið fjölskylduboð í tilefni af afmælinu. Spurð-
ur hversu margir hafi verið viðstaddir fjölskylduboðið um helgina
segir Valdimar Þór að þar hafi verið nánustu systkini foreldra hans
sem og hans eigin systkini. „Ég er ekkert að stressa mig á þessu,
það er stutt í jól og stutt í áramót þannig að það verður djammað um
áramótin,“ segir Valdimar Þór.
Þá segist hann eiga von á afmælisgjöfum þrátt fyrir að farið sé að
styttast í jólin. „Ég fékk nokkra pakka í gær og fæ eitthvað af þeim
á morgun en ég held ekkert rosalega mikið upp á þetta,“ segir
Valdimar Þór. Aðspurður hvort hann kvíði því að komast á fertugs-
aldurinn segir Valdimar Þór svo ekki vera.
Að sögn Valdimars Þórs ætlar hann að taka það rólega í dag
ásamt fjölskyldu sinni. „Þetta er ekki dagurinn til að vera að
djamma, þetta er virkur dagur, það væri annað ef þetta væri um
helgi,“ segir Valdimar Þór að lokum.
Valdimar Þ. Skarphéðinsson er 30 ára í dag
Valdimar Þór er ekkert að stressa sig á afmælinu, því stutt er bæði í
jól og áramót, en um áramótin ætlar hann að sinna afmælisdjammi.
Slappar af með
fjölskyldunni
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Selfoss Ísak Freyr fæddist 18. nóv-
ember kl. 2.01. Hann vó 3.780 g og var
51 cm langur. Foreldrar hans eru
Rebekka Lea Te Maiharoa og Elvar
Freyr Jónsteinsson.
Nýir borgarar
Reykjavík Sunna Margrét fæddist 12.
ágúst kl. 16.45. Hún vó 3.674 g og var
51 cm löng. Foreldrar hennar eru Ingi-
björg Ebba Benediktsdóttir og Arnar
Elísson.
V
ilhjálmur fæddist á Sauð-
árkróki og ólst þar upp.
Hann lauk stúdentsprófi
frá MA 1972, prófi í við-
skiptafræði frá HÍ 1977,
MA-prófi í hagfræði frá University of
Southern California í Los Angeles
1980 og doktorsprófi í hagfræði frá
sama skóla 1982.
Vilhjálmur var hagfræðingur VSÍ
1982-87, var framkvæmdastjóri
Verslunarráðs Íslands 1987-2003,
alþm. fyrir Sjálfstæðisflokkinn í
Norðurlandskjördæmi vestra 1991-
2003, var fulltrúi í framkvæmda-
stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í
Washington 2003-2004 þar sem hann
stýrði skrifstofu á vegum Norður-
landanna og Eystrasaltsríkjanna, var
ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðu-
neytinu 2004-2006 og hefur verið
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins frá 2006.
Vilhjálmur sat í stjórn SUS 1975-
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA – 60 ára
Morgunblaðið/Eggert
Í Þjóðleikhúsinu Vilhjálmur Egilsson og kona hans, Ragnhildur Pála, á söngleiknum Ólíver, fyrir þremur árum.
Einlægur og kankvís
kjarasamningamaður
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tvær í taki Vilhjálmur hefur alltaf verið vinsæll af fólki úr öllum flokkum
og af báðum kynjum. Hér er hann með fyrrum pólitískum mótherjum, Þór-
unni Sveinbjarnardóttur og Kolbrúnu Halldórsdóttur, á aðalfundi SA.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Skeifunni 3 - Sími: 588 5080 - dynjandi.is
ÖRUGGLEGA FYRIR ÞIG!
HEYRNARHLÍ
FAR
eru góð gjöf og ger
a
vinnuna skemmtilegr
i