Morgunblaðið - 18.12.2012, Síða 34
34 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú gerir daglega tilveru að nokkurs
konar listformi, hvort sem þú raðar púðum
á sófa eða tekur þátt í líflegum samræðum
við vin. Forðastu að ofreyna þig.
20. apríl - 20. maí
Naut Ferðaáætlanir þínar virðast óraunhæf-
ar þar sem þú virðist hreinlega ekki hafa
efni á að fara þangað sem þú hafðir hugsað
þér. Eitthvað kemur í leitirnar sem þú hefur
saknað lengi.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það gagnast þér lítið að vera stöð-
ugt að líta um öxl og kvelja þig með gerðum
hlutum. Fjölskyldumeðlimir sem þú hefur
ekki séð í háa herrans tíð láta senn á sér
kræla.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Yngri manneskja véfengir skoðanir
þínar. Eitthvað er að brjótast um í þér og
nauðsynlegt er að þú fáir málin á hreint
sem fyrst.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Fjölskyldan kemur saman til að tala
um erfiðleika fortíðarinnar. Einhver þér ná-
inn dettur í lukkupottinn.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú þarft fyrr eða síðar að horfast í
augu við staðreyndir. Ekki þreyta vinnufélag-
ana með endalausum sögum af einkahögum
þínum. Þú ert eins og lurkum laminn eftir
jólahreingerninguna.
23. sept. - 22. okt.
Vog Gefðu þér tíma til að eiga samveru-
stundir með fjölskyldunni. Þú brýtur erfitt
mál til mergjar. Ekki steypa alla í sama mót.
Þú hittir naglann á höfuðið í deilumáli.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert í fínu formi og átt hik-
laust að nota það bæði í leik og starfi. Til-
litssemi og umburðarlyndi eru stikkorðin.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Láttu vera að taka áhættu í pen-
ingamálum í dag, slíkt er líklegra til að
hefna sín frekar en hitt. Hvar vilt þú vera
eftir tíu ár og hvað getur þú gert til að ná
því marki?
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú ert með hreint mjöl í poka-
horninu og getur því brosað framan í heim-
inn. Þú ert potturinn og pannan í jólaboðum
fjölskyldunnar.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú heldur dauðahaldi í eitthvað á
svipaðan hátt og þú gerðir þegar þú varst
barn. Taktu eitt fyrir í einu og mundu svo að
lofa ekki upp í ermina á þér í framtíðinni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Neikvæðni er viðhorf sem sýgur
ánægjuna úr líðandi stundu. Segðu stopp
við meðlimi fjölskyldunnar.
Pétur Pétursson skrifar umsjón-armanni skemmtilegan pistil
en fundum þeirra bar saman um
helgina í höfuðstað Norðurlands:
„Eftir samtal okkar komst ég að því
að ég hef sárafáar limrur ort á síð-
ustu árum og gríp ógjarnan til
þeirra á hagyrðingamótum. Mér
líkar samt ágætlega við formið en
trúlega finnst mér ég hafa á mér
einhverja kvöð um absúrd efnistök,
sem ég hef svosem litla rækt lagt
við. Á árunum 1996-2003 stundaði
ég nám í lýðheilsufræðum í Gauta-
borg, 2-4 vikur í senn. Þá var limru-
formið það eina sem ég notaði við
yrkingar á erlendum málum. Einn
mánuðinn gerði ég það að reglu að
yrkja eina limru á dag og var þar
auðvitað mesta bull innanum. Sendi
þér til gamans þennan limruflokk.“
Hér eru limrur úr þeim sarpi Pét-
urs:
Það er hjartanu kært, sem að tungunni
er tamt,
bæði tóbak og pillur og brennivín
rammt.
Samt hún undarleg er
þessi alhæfing hér,
að oft leiti dópistinn langt yfir skammt.
…
Ljóst er það flestum, að vorkoman
tekur sinn tíma,
en tíðarfar batnandi kveikir í hjörtunum
bríma.
En sparaðu hljóð,
þótt spáin sé góð,
því oft veður-fræðingur elginn í villu og
svíma.
Hjálmar Freysteinsson var beð-
inn um vísu „til að skreyta fyrir-
lestur um umönnun aldraðra eða
eitthvað því líkt“. Og smíðaði þessa:
Þeir sem vilja hjúkra og hugga
huga mættu að því vel
að sigrað getur svartan skugga
sólskinsbros og vinarþel.
Ármann Þorgrímsson er í öðrum
hugleiðingum:
Bylgjan þegar brotnar há
og bátinn rekur upp á sker
að rifa seglin eftirá
ósköp lítið gagnast mér.
Jóhannes úr Meðallandi sendir
Vísnahorninu kveðju, en hann
„dreypti aðeins of mikið á bjór, rak
svo augun í eitthvað fallegt og varð
þá hugsað til málvinar síns:
Ofurljóskur eru þar
ósköp báðar fallegar;
sannlega eru systurnar
sýslumanni boðlegar“.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af absúrd limrum, sól-
skinsbrosi og vinarþeli
Í klípu
„DANNI HÆTTI VIÐ. HANN VAR MEÐ
BRJÓSTVERK OG ÁTTI ERFITT MEÐ
AÐ ANDA. ÞEIR HALDA AÐ HANN SÉ MEÐ
HJARTAKVEISU Á KEPPNISSTIGI.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞÚ HEFUR ÞAÐ FÍNT, EN ÉG?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... dagar víns og rósa.
MAMMA, EF ÞÚ FENGIR ANNAÐ
TÆKIFÆRI, MYNDIRÐU GERA
EITTHVAÐ ÖÐRUVÍSI Í LÍFINU?
ÉG MUNDI SENNILEGA
HINKRA AÐEINS LENGUR.
ÉG ÞARF BARA AÐ VERA
GÓÐUR Í EINA VIKU Í
VIÐBÓT FYRIR JÓL! JÓLAPOLKI! ÞAÐVERÐUREKKI
AUÐVELT.
SNJÓKORN
FALLA...!
Víkverji var með næturgest ádögunum, þriggja ára gamla
sonardóttur sína. Mikill viðbúnaður
var á heimilinu vegna komu jóla-
sveinsins, sem þá nóttina var Stúf-
ur. Eitthvað hefur smæð sveinka
verið mikluð fyrir blessuðu barninu
því það fullyrti að Stúfur væri svo
lítill að hann væri með bleiu. Það
voru ný tíðindi fyrir Víkverja.
Áður en sú stutta fór í háttinn
var skórinn reglum samkvæmt sett-
ur út í glugga. Þá kom hins vegar
babb í bátinn, henni þótti glugginn í
svefnherberginu of hátt uppi til að
raunhæft væri að Stúfur næði
þangað með glaðninginn handa
henni. Var nú gerð æðisgengin leit
að glugga sem væri viðráðanlegur
fyrir kappann. Fannst hann í stof-
unni, þar sem nokkrir gluggar ná
svo að segja frá lofti niður í gólf.
Þóttist sú stutta hafa himin hönd-
um tekið þegar hún áttaði sig á
þessu og kom skónum vandlega
fyrir í téðum glugga. Truflaði það
hana ekkert að glugginn er ekki
opnanlegur.
Stúfur litli skilaði sér að sjálf-
sögðu um nóttina og Víkverji getur
ímyndað sér að hann hafi verið
hæstánægður með þessa tillitssemi.
Ófært að láta hann príla upp um
alla veggi – með bleiuna á rassinum
Borgaði Stúfur ríkulega fyrir sig
með forláta póníhesti og vakti hann
mikla lukku.
x x x
Einhver kann að segja að það sébjartsýni, jafnvel fífldirska, að
setja upp margra mannhæða hátt
jólatré utan dyra á Kjalarnesi. Það
hafa menn eigi að síður gert, á ber-
angri framan við félagsheimilið
Fólkvang.
Ekki var hið fjallmyndarlega tré
búið að standa lengi er Kári gamli
gerði atlögu og skellti því marflötu
með hælkrók. Upp fór tréð aftur,
enda Kjalnesingar ólseigir að upp-
lagi og ýmsu vanir. Tveimur eða
þremur dögum síðar lá tréð aftur í
valnum – og Kári glotti við tönn.
Þá kom krókur á móti bragði,
Kjalnesingar víruðu tréð niður með
nokkrum stálvírum allt í kring.
Stendur það nú keikt á velli og Kári
hefur séð sæng sína upp reidda.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn birtist honum úr fjarlægð:
Með ævarandi elsku hef ég elskað þig,
fyrir því hef ég látið náð mína haldast
við þig. (Jeremía 31:3)