Morgunblaðið - 07.01.2013, Síða 1
M Á N U D A G U R 7. J A N Ú A R 2 0 1 3
Stofnað 1913 4. tölublað 101. árgangur
BORGARNES
FRÁ NÝJU
SJÓNARHORNI
ÞRÍR MARK-
MENN Í
HÓPNUM
EINBLÍNIR Á
ÆVINTÝRI SEM
ENDA VEL
ARON VALDI 17 LEIKMENN ÍÞRÓTTIR SOSSA MÁLAR 26TOLLI MYNDAR 10
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Vélaverkstæði Hjalta Einarssonar
ehf. (VHE) hyggst auka umsvif sín í
útflutningi tækja og tækni fyrir ál-
iðju og olíuiðnað. Nú koma um 10-
15% af veltu fyrirtækisins frá út-
flutningi tækja og tækni til álvera,
að sögn Inga Borgþórs Rútssonar,
yfirmanns sölu- og markaðsmála
hjá VHE. Fyrirtækið er einnig að
hasla sér völl í smíði tækja til olíu-
vinnslu. Nýlega fékk VHE sam-
þykki sem birgir hjá öflugu þjón-
ustufyrirtæki sem vinnur fyrir
olíuiðnaðinn í Noregi.
„Þetta er eitt af þeim verkefnum
sem við höfum verið að vinna í og
vonum að við getum haft töluvert
að gera á þessu sviði,“ sagði Ingi.
„Við erum komnir með pantanir frá
þeim í smíði á búnaði fyrir borpalla
til prufu.“ Hann vildi ekki greina
frá nafni norska þjónustufyrirtæk-
isins að svo stöddu.
Ingi sagði að útflutningur tækni
og tækja til álvera hefði farið sívax-
andi. Í fyrra seldi VHE m.a. tæki til
sænska álversins Kubal, sem er í
eigu Russal, eins stærsta álfram-
leiðanda í heimi. VHE er komið
með þjónustusamning við álver í
Katar og hefur selt þangað vélar og
eins búnað til álversins Dubal í
Dubai og fleiri álvera við Persaflóa
þar sem mikil uppbygging er í ál-
iðnaði. Einnig var seld vél til ál-
versins Alro í Rúmeníu.
Þá hefur VHE selt töluvert af
sérhæfðum mælibúnaði fyrir álver
sem var þróaður og hannaður hjá
fyrirtækinu. Skömmu fyrir jól var
búnaðurinn kynntur hjá Hydro Al-
uminium í Noregi. »4
Flytja út tæki til áliðju og olíuvinnslu
Skautkrabbi VHE smíðaði tækið.
VHE í Hafnarfirði stefnir á að auka mjög útflutning tækja og tækni til iðnaðar
Vel á annað þúsund manns tók þátt í skrúðgöngu
og var við þrettándabrennu á Ægisíðu í Reykjavík
í gærkvöldi. Aðsóknin var með besta móti, að sögn
Harðar H. Guðbjörnssonar, íþrótta- og tómstunda-
ráðgjafa í þjónustumiðstöð Vesturbæjar.
Hátíðin hófst með skrúðgöngu frá KR-heimilinu
kl. 18 og leiddu ungmenni úr Hagaskóla gönguna
og héldu á kyndlum. Fólk tók vel undir fjöldasöng
og dvaldi sumt við brennuna þar til slökkt var í
henni um hálfníuleytið.
Morgunblaðið/Kristinn
Jólin voru kært kvödd á Ægisíðu
Á annað þúsund manns tók þátt í þrettándahátíð í Vesturbæ Reykjavíkur
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Það þarf að spyrja fólkið sem tekur laun eftir
kjarasamningum hvað það vill gera,“ sagði
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðs-
félags Akraness (VLFA). Hann mætir ásamt
fleirum á formannafund ASÍ í dag þar sem
rætt verður um endurskoðun kjarasamninga
frá því í maí 2011.
„Það er ár eftir af
þessum samningi og
það voru gerð stórfelld
mistök að mínu mati
við gerð hans,“ sagði
Vilhjálmur. Hann
kvaðst hafa haldið því
fram þá að fyrirtæki í
útgerð og fiskvinnslu
væru að skila sögu-
legum hagnaði. „Ég
vildi að menn næðu í
einhvers konar leið-
réttingu gagnvart
fiskvinnslufólki vegna
þess svigrúms sem út-
gerðin hefði. Því mið-
ur var ekki farið eftir því. Við gagnrýndum
harðlega þessa samræmdu launastefnu.“
Vilhjálmur sagði að VLFA hefði sagt sig úr
samfloti ASÍ gagnvart samningsumboði fyrir
sína félagsmenn. „Okkur tókst að ná umtals-
vert meiri hækkun gagnvart starfsfólki í stór-
iðjunum. Okkur tókst það ekki með fisk-
vinnslufólkið. Nú er kannski gullið tækifæri
til þess að útgerðin skili einhverju af miklum
ávinningi sínum til fiskvinnslufólks,“ sagði
Vilhjálmur.
Hann nefndi til dæmis að Samherji hefði
greitt yfir 800 þúsund króna kaupauka til
hvers starfsmanns síns í fiskvinnslu frá því
kjarasamningurinn var gerður 5. maí 2011.
Sama ætti alls ekki við um öll önnur útgerð-
arfyrirtæki og sagði Vilhjálmur að HB Grandi
hefði t.d. ekki greitt sínu fiskvinnslufólki neitt
aukalega á sama tíma.
Stórfelld
mistök
voru gerð
Rætt um kjaramál á
formannafundi ASÍ
Samningar
» Viðræðu-
nefnd ASÍ og
SA fundaði
um endur-
skoðun kjara-
samninga á
föstudag.
» Annar for-
mannafundur
ASÍ verður
haldinn í dag.
MTekist á um kaupmáttinn »6
Guðrún Marta Jónsdóttir er góð-
hjörtuð þriggja ára hnáta. Nýverið
arkaði hún með plastfötu fulla af
klinki í Íslandsbanka á Ísafirði og
vildi fá „bréfpening“ í staðinn.
Upphæðina, sem nam 1.700 krón-
um, mun hún afhenda kirkjunni.
Samskotaféð er ætlað „börnum
sem eiga ekki mat“ eins og hún
orðar það sjálf. Hún hafði heyrt
sögur af svöngum börnum í leik-
skólanum.
Peningunum hefur hún safnað
samviskusamlega í forláta plastfötu
heima hjá afa sínum á Ísafirði. Sjálf
er hún búsett í Hafnarfirði.
„Þetta hefur verið hennar bauk-
ur í langan tíma. Hún hefur alltaf
ætlað að gera þetta. Þegar hún kom
í heimsókn var þetta það fyrsta sem
við gerðum, að fara með aurinn í
bankann,“ segir Páll Guðjónsson,
afi Guðrúnar.
Guðrún gerði tilraun til að af-
henda prestinum sjálfum fjár-
munina en hann hefur ekki verið í
bænum til að taka á móti gjöfinni.
Hún ætlar að bíða þar til hann kem-
ur í bæinn til að afhenda aurana.
thorunn@mbl.is
Kom með
klink fyrir
bréfpeninga
Þriggja ára hnáta
safnaði fyrir kirkjuna
Söfnun Guðrún Marta, þriggja ára,
á leið í bankann með peningafötuna.
Meiri umferð
var um Hval-
fjarðargöng í
fyrra en reiknað
hafði verið með
að hún yrði. Allt
árið 2012 fóru
um 1.839 þúsund
ökutæki um
göngin. Árið
2011 voru þau 1.858 þúsund og
dróst umferðin á milli ára saman
um 1%. Spalarmenn höfðu reiknað
með að hún myndi dragast saman
um 2,5% á milli ára.
Frá því fyrir hrun hefur umferð-
in um Hvalfjarðargöngin dregist
saman um 8,3%. »9
Umferðin hefur
minnkað um 8,3%