Morgunblaðið - 07.01.2013, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2013
Trjáklippingar
Trjáfellingar
Stubbatæting
Vandvirk og snögg þjónusta
Sími 571 2000 | hreinirgardar.is
HB Grandi stendur nú í stórframkvæmdum á
svæði fyrirtækisins á Granda. Verið er að reisa
2.600 fermetra frystigeymslu en hægt verður að
geyma fimm til sex þúsund tonn af fiski í henni.
Framkvæmdir hófust í nóvember og stefnt er á
að þeim ljúki í lok maí á þessu ári. „Þetta er um
1.100 milljóna fjárfesting,“ segir Vilhjálmur Vil-
hjálmsson, forstjóri HB Granda. „Við vorum með
gamla frystigeymslu á leigu sem var nokkuð
fjarri höfninni. Við töldum mikið hagræði felast í
að hafa frystigeymslu á okkar svæði. Nú getum
við lestað skip við hafnarkantinn hjá okkur.“
HB Grandi byggir 2.600 fermetra frystigeymslu sem tekur allt að 6.000 tonn af fiski
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjárfesting upp á 1.100 milljónir króna
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Annar formannafundur Alþýðusam-
bands Íslands (ASÍ) vegna endur-
skoðunar kjarasamninga verður
haldinn í dag. Þar á að fara yfir við-
brögð Samtaka atvinnulífsins (SA)
við kröfu ASÍ um að staðið verði við
þann kaupmátt sem samið var um í
kjarasamningum í maí 2011.
Horfurnar ekki bjartar
Viðræðunefnd ASÍ og SA fundaði
um endurskoðun kjarasamninga á
föstudaginn var. Gylfi Arnbjörnsson,
forseti ASÍ, sagði að hún hefði einnig
haldið fund rétt fyrir jólin. Farið var
yfir stöðuna á fundinum á föstudag,
að sögn Gylfa. Hann vildi ekki greina
nánar frá efni fundarins fyrr en eftir
formannafundinn í dag. Hann sagði
ASÍ ekki vera sátt við þróun kaup-
máttar launafólks.
„Við höfum viljað finna leiðir til að
rétta þann hlut,“ sagði Gylfi. En á
umrædd þróun kaupmáttar við um
alla launþega? „Það er eitthvert
launaskrið hjá hluta okkar fé-
lagsmanna. Það er ekki mjög víð-
tækt eða almennt, en það er einhvers
staðar. Það er líka ljóst að þeir sem
hafa fengið þessar almennu hækk-
anir hafa ekki búið að þeim heldur
þvert á móti. Kaupmáttur þeirra fór
lækkandi á síðasta ári og fer lækk-
andi á þessu ári miðað við spár. Það
er verið að gera ráð fyrir verðbólgu
hér upp á 4,5% og jafnvel allt upp í
5%. Það er hægt að tryggja kaup-
máttinn með því að ná tökum á verð-
bólgunni. Við hefðum viljað nálgast
þetta sem viðfangsefni um kaup-
máttinn og munum fara yfir það með
okkar gagnaðilum hvernig það verð-
ur hægt,“ sagði Gylfi.
Erfitt hjá fyrirtækjunum
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri SA, sagði að málin
hefðu verið reifuð á fundinum á
föstudaginn var og sú umræða tæki
sinn tíma.
„Það eru ekki komnar neinar nið-
urstöður en við höfum lýst okkar
sjónarmiðum og þeir sínum. Við höf-
um sagt að kaupmáttarforsendan
sem gefin var í kjarasamningnum
haldi,“ sagði Vilhjálmur. „Það eru
fjölmargir sem hafa fengið viðbótar
kaupmátt, en það er ákveðinn og af-
markaður hópur sem hefur lækkað í
kaupmætti og við berum ekki á móti
því að það hafi gerst. Hins vegar höf-
um við sagt að staða fyrirtækjanna
til að hækka laun hafi einnig versn-
að. Forsendubresturinn bitnar
miklu frekar á fyrirtækjunum held-
ur en starfsfólkinu að okkar mati.
Við höfum engu að síður sagt að við
ætlum ekki að eiga frumkvæði að því
að opna kjarasamninginn.“
Tekist á um kaupmáttinn
Formannafundur ASÍ í dag Viðræðunefnd ASÍ og SA fundaði á föstudag
ASÍ er ósátt við þróun kaupmáttar launafólks Staða fyrirtækja hefur versnað
Gylfi
Arnbjörnsson
Vilhjálmur
Egilsson
Áætlunarflug til Sauðárkróks gæti
hafist að nýju, ef samningar nást
milli innanríkisráðuneytisins, sveit-
arfélagsins Skagafjarðar og Eyja-
flugs. Áætlunarflugið var lagt af
um næstsíðustu áramót. „Við von-
umst til að þetta gangi upp. Enn er
of snemmt að segja til um hvort af
þessu verður,“ segir Stefán Vagn
Stefánsson, formaður byggðarráðs
Skagafjarðar.
Byggðarráðið óskaði eftir fundi
með innanríkisráðuneytinu þar sem
farið yrði þess á leit að það tæki
þátt í kostnaðinum við áætl-
unarflugið. „Við þurfum að fá að
vita sem fyrst, hvort ráðuneytið er
tilbúið að taka þátt í þessu með okk-
ur eða ekki. Gagnkvæmur skiln-
ingur hefur ríkt í þeim efnum,“ seg-
ir Stefán Vagn.
Hann bendir á að flugið sé mik-
ilvægt fyrir Skagafjörð og Norður-
land vestra.
Ekki er gert ráð fyrir fjár-
framlögum til flugsins í fjárlaga-
frumvarpinu. thorunn@mbl.is
Áætlunarflug til
Sauðárkróks gæti
hafist að nýju
Flug Flugfélagið Eyjaflug hefur sýnt áhuga
á að fljúga áætlunarflug á Sauðárkrók.
Ákæra gegn Lárusi Welding, Jóni
Ásgeiri Jóhannessyni og tveimur
öðrum fyrrverandi starfsmönnum
Glitnis verður þingfest í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í dag. Um er að
ræða svokallað Aurum-mál.
Ákæra var gefin út á hendur
þeim um miðjan síðasta mánuð
fyrir umboðssvik sem eru sögð
hafa átt sér stað þegar Glitnir
veitti félaginu FS38 sex milljarða
króna lán til kaupa á félaginu
Aurum Holding. Þetta er annað
málið sem rekið er gegn Lárusi
Welding fyrir Héraðsdómi Reykja-
víkur.
Ákæra þingfest í
Aurum-málinu í dag
Lárus
Welding
Jón Ásgeir
Jóhannesson
Samninganefnd ASÍ og fram-
kvæmdastjórn SA þurfa hvor
um sig að tilkynna niðurstöðu
varðandi framlengingu kjara-
samninga fyrir klukkan 16.00
þann 21. janúar 2013.
Kjarasamningurinn var gerð-
ur í maí 2011 og gildir til 31. jan-
úar 2014. Kveðið var á um end-
urskoðun samningsins í janúar
2012 og í janúar 2013.
Skipuð var sérstök for-
sendunefnd fulltrúa ASÍ og SA.
Hlutverk hennar er að fjalla um
þróun kjara-, efnahags-, at-
vinnu- og félagsmála á samn-
ingstímanum og eftir atvikum
að leita eftir samstarfi við
stjórnvöld um að stuðla að því
að markmið samningsins, m.a.
um lága verðbólgu og aukinn
kaupmátt, nái fram að ganga.
Fylgst með
forsendum
KJARASAMNINGURINN
GILDIR TIL 31. JANÚAR 2014