Morgunblaðið - 07.01.2013, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2013
Forseti Íslands nefndi að yrðiríkisráð lagt niður, eins og til-
lögur um hvernig kollvarpa megi
stjórnarskránni frá 17. júní 1944
gera ráð fyrir, þá yrði eini form-
legi samráðsvettvangur forseta og
ríkisstjórnar lagður af. Í Noregi
fara slíkir fundir fram allt að því
vikulega.
Snúið hefur veriðút úr orðum
forseta og bent á að
ekkert raunveru-
legt samráð eigi sér
stað á ríkisráðs-
fundum. Það er að
vísu að mestu rétt.
En vettvangurinn
er þó fyrir hendi. Og ef menn taka
stjórnarskrána hátíðlega og túlka
hana í samræmi við niðurstöðu
sjálfs Landsdóms verða afgreiðslur
verkefna ríkisráðs utan þess fram-
vegis að heyra til undantekninga.
En svo er hið undarlega ástandsem verklag núverandi for-
sætisráðherra hefur skapað. For-
seti og forsætisráðherra hittust að
jafnaði einu sinni í viku, í um hálf-
tíma í senn, á meðan báðir höfðu
skrifstofu í sama húsi. Eftir það
fækkaði fundum en þeir lengdust
og stóðu oftast í rúma tvo tíma og
efnismiklir eftir því. Það mun hafa
breyst.
Núverandi forsætisráðherra,Jóhanna Sigurðardóttir, hef-
ur aldrei rætt einstakar breytingar
á stjórnarskrá opinberlega. Hún
las ekki fyrsta Icesave-samninginn
upp á hundruð milljarða króna og
heimtaði að þingflokkar sam-
þykktu hann líka ólesinn. Forstjóri
Icelandair segist í Viðskipta-
blaðinu aldrei fá fund með Jó-
hönnu.
Auðvitað er þetta stórundarlegtog sjaldæft, en við slíkar að-
stæður gilda þó formreglurnar.
Jóhanna
Sigurðardótir
Undarlegt ástand
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 6.1., kl. 18.00
Reykjavík 5 skýjað
Bolungarvík 0 alskýjað
Akureyri 2 skýjað
Kirkjubæjarkl. 5 rigning
Vestmannaeyjar 6 alskýjað
Nuuk -8 skýjað
Þórshöfn 7 þoka
Ósló -1 skýjað
Kaupmannahöfn 5 skýjað
Stokkhólmur -2 heiðskírt
Helsinki -6 skýjað
Lúxemborg 7 skýjað
Brussel 8 þoka
Dublin 11 skýjað
Glasgow 10 skúrir
London 7 skýjað
París 7 alskýjað
Amsterdam 7 léttskýjað
Hamborg 7 þoka
Berlín 7 súld
Vín 6 skúrir
Moskva -3 snjókoma
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 11 heiðskírt
Barcelona 17 heiðskírt
Mallorca 17 heiðskírt
Róm 12 léttskýjað
Aþena 6 skúrir
Winnipeg -11 snjókoma
Montreal -10 snjókoma
New York 3 heiðskírt
Chicago -3 alskýjað
Orlando 22 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
7. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:11 15:58
ÍSAFJÖRÐUR 11:49 15:31
SIGLUFJÖRÐUR 11:33 15:12
DJÚPIVOGUR 10:48 15:20
Báturinn Fríða Dagmar ÍS-103
skemmdist í óveðrinu sem geisaði á
Vestfjörðum um áramótin. Slitnaði
báturinn frá bryggju og rak upp í
fjöru í aftakaveðri í Bolungarvík.
„Þegar við skoðuðum bátinn um
nóttina var í lagi með hann. Vindur
var stöðugur upp á 43-45 metra og
fór í 65 metra á sekúndu í verstu
hviðunum. Svo þegar farið var að
skoða hann hálfsjö um morguninn
hafði hann rekið upp í fjöruna og lá
við grjótkant. Við það skemmdist
botninn á bátnum auk þess sem rör
bognuðu,“ segir Sigurgeir Þór-
arinsson skipstjóri. Báturinn fór til
Hafnarfjarðar í viðgerð en fór til
sjós á ný í gær. Sigurgeir segir tjón-
ið nokkurt, bæði vegna viðgerð-
arinnar svo og fjögurra daga veiði-
taps. vidar@mbl.is
Nokkurt tjón þegar
Fríða fauk á land
Ljósmynd/Vikari.is Baldur Smári Einarsson.
Skemmdist Fríða Dagmar ÍS 103 fauk upp
í fjöru í óveðri í Bolungarvík.
Talsvert voru til-
kynnt innbrot og
skemmdarverk eft-
ir hádegi í gær á
höfuðborgarsvæð-
inu, samkvæmt
upplýsingum frá
lögreglunni.
Þannig var tilkynnt veggjakrot á
húsgafl við Smiðjuveg í Kópavogi
skömmu eftir hádegi en ekki lá fyr-
ir hverjir voru þar að verki. Um
þrjúleytið var síðan tilkynnt rúðu-
brot í húsi við Iðufell í Reykjavík og
skömmu síðar skemmdarverk á bif-
reið við Tjarnarbraut á Seltjarn-
arnesi.
Tilkynnt var að sama skapi inn-
brot í bifreið í Reykjavík þegar
klukkan var að verða hálftvö og
innbrot á heimili í Reykjavík
skömmu síðar eða um klukkan tvö.
Mikið um innbrot
og skemmdarverk