Morgunblaðið - 07.01.2013, Side 9

Morgunblaðið - 07.01.2013, Side 9
Morgunblaðið/Júlíus Hvalfjarðargöng Umferðin um göngin dróst saman um 1% í fyrra og Spölur gerir ráð fyrir svipuðum samdrætti á þessu ári. Göngin verða 15 ára í ár. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Umferð um Hvalfjarðargöngin í ný- liðnum desembermánuði jókst um rúm 5%, miðað við sama mánuð árið 2011. Þá fóru um 119 þúsund öku- tæki um göngin en voru ríflega 113 þúsund í desember 2011. Að sögn Gylfa Þórðarsonar, fram- kvæmdastjóra Spalar, er um bráða- birgðatölu að ræða fyrir desember en nokkuð nærri lagi. Á öllu árinu fóru um 1.839 þúsund ökutæki um Hvalfjarðargöng, borið saman við 1.858 þúsund árið 2011. Minnkunin milli ára er um 1% en Gylfi segir þá Spalarmenn hafa í upphafi ársins 2012 reiknað með samdrætti í um- ferð um 2,5% það árið. Það hefur ekki gengið eftir og gera áætlanir nú ráð fyrir um 1% samdrætti á þessu ári. Miða þær spár m.a. við umferð- artalningu Vegagerðarinnar á nokkrum helstu stofnleiðum suðvestanlands. Ef farið er aftur til hrunársins 2008 hefur umferð um göngin dreg- ist saman um 8,3% en það ár fóru ríf- lega 2 milljónir ökutækja undir Hvalfjörðinn. Göngin voru tekin í gagnið fyrir bráðum 15 árum og gjaldtaka mun standa yfir á meðan Spölur er að greiða upp lánin. Gylfi segir að mið- að við núverandi áætlun muni það gerast í lok september 2018, eða eftir rúm fimm ár. Hvort ákveðið verði að ráðast í frekari stórframkvæmdir í göngunum, eins og tvöföldun þeirra, segir Gylfi engar áætlanir uppi um slíkt, enda hafi umferð dregist sam- an frá góðærinu fyrir hrun. Á þessu ári mun Spölur verja um 75 milljónum til framkvæmda og við- halds í göngunum. Eru það síðustu framkvæmdir til að uppfylla kröfur ESB um öryggi í jarðgöngum. Umferð um göngin 2012 var meiri en búist var við Umferð um Hvalfjarðargöngin 2011-2012 Fjöldi ökutækja í hverjum mánuði jan-des 250.000 200.000 150.000 100.000 50.000 0 Jan . Feb . Ma rs Apr íl Ma í Jún í Júl í Ágú st Sep t. Okt . Nóv . Des . 100.044 229.397 119.000114.938 244.053 113.104 2011 2012 Des. 2012 er bráðabirgðatala. Heimild: Spölur  Eftir hrunið 2008 hefur umferðin dregist saman um 8,3% Heildarumferð 2008-2012 Heimild: Spölur 2,5 m 2,0 m 1,5 m 1,0 m 0,5 m 0 200 8 200 9 201 0 201 1 201 2 2. 0 0 6. 0 90 1. 97 1. 51 6 1. 95 2. 28 3 1. 85 8. 29 1 1. 83 9. 70 0 FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2013 Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir býður sig fram í 3.-6. sæti Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs í Norðvestur- kjördæmi. Þóra hefur setið í stjórn Ungra vinstri grænna (UVG) frá árinu 2010, var for- maður UVG frá 2011-2012, for- maður VG í Borgarbyggð árin 2011-2012 auk þess að sitja í flokksráði Vg. „Ég tel mikilvægt að áfram séu við völd þau öfl sem stuðla að réttlátu samfélagi, sem ekki er stjórnað af gróðahyggju. Síðasta kjörtímabil dugði engan veginn til þess að byggja það upp sem eyðilagt var, og mun það næsta einkennast af áframhaldandi upp- byggingarstarfi,“ segir Þóra í til- kynningu. Stefnir á 3.-6. sæti hjá Vinstri-grænum Talsvert tjón varð á Gjögri í óveðr- inu í lok desember. Þetta sást þegar var farið að athuga um hús á Gjögri, að því er fram kemur á fréttavefnum litlihjalli.is. Sjór hafði brotið upp hurð á báta- skýli við Karlshöfn, en skýlið til- heyrir svonefndu Regínu- og Kalla- húsi sem börn Regínu og Karls Thorarensen nota nú sem sum- arhús. Hilmar F. Thorarensen geymdi þar bátinn Hönnu ST 49 sem hann rær á yfir sumarið. Einn- ig voru tveir aðrir bátar þarna inni. Hilmar segir í viðtali við vefinn að hann sé ánægður með að bát- urinn hans hafi sloppið því hann lét gera hann upp í fyrra og hitteð- fyrra, skipti um vél og öll sigl- ingatæki og reri fyrst á honum sl. sumar eftir breytingar. Einn stór steinn úr hleðslunni í sjóvarnar- garðinum hafði reist upp í briminu. Annars virðist garðurinn hafa sloppið. Brotsjór á bátaskýli á Gjögri í óveðrinu Ljósmynd/Jón G. Guðjónsson Gjögur Björgunarsveitin Strandasól gerði við bátaskýlið eftir óveðrið. Sólskálar -sælureitur innan seilingar Hentar mjög vel íslenskri veðráttu Við höfum framleitt viðhaldsfría glugga og hurðir í 28 ár Nánari upplýsingar á www.solskalar.is Frábært skjól gegn vindi og regni Yfir 40 litir í boði! Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187 Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is Komdu með í gott form Frír prufutími Opnir tímar: Ketilbjöllur þriðjud. og fimmtud. kl 12:00 Eykur samhæfingu vöðva og gefur þér styrk og úthald Kross fitt þriðjud. og fimmtud. kl 17:15 og laugardaga, kl. 10:00 Styrkir alla vöðva líkamans Spinning mánudaga, miðvikudaga og föstudaga, kl 12:00 og 17:15 Mikill hraði og brennsla LEIÐRÉTT Röng vefslóð Með frétt í sunnudagsblaði Morg- unblaðsins um helgina, um Elmar Johnson, fyrirsætu og læknanema, fylgdi röng vefslóð á fyrirtæki hans, Guide to Iceland. Rétt slóð síðunnar er guidetoiceland.is.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.