Morgunblaðið - 07.01.2013, Qupperneq 11
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2013
Á nýju ári hefjast mörg spennandi
námskeið hjá ýmsum aðilum sem
vert er að kynna sér. Hjá Endur-
menntun Háskóla Íslands er margt á
dagskrá en meðal námskeiða má
nefna námskeiðið Spuni í tónlistar-
kennslu en þar verður fjallað almennt
um möguleika á notkun spuna sem
eins námsþáttar af mörgum í námi
almennra tónlistarnema.
Á námskeiðinu verður farið í
grunnatriði og leiðir til að hefja
spunakennslu. Auk þessa verður
fjallað um notkun undirleiks í
kennslu af þessu tagi, bæði fyrirfram
hljóðritaðs sem og undirleiks kenn-
ara. Gert er ráð fyrir að allir spili á
námskeiðinu, en efnið gerir alls ekki
kröfur um að þátttakendur séu sér-
lega flinkir eða í góðu formi. Nálgun-
in er aðgengileg fyrir alla og áhersla
er lögð á afslappað og vingjarnlegt
andrúmsloft. Síðasti skráningar-
dagur er í dag en nánari upplýsingar
má nálgast á vefsíðunni www.endur-
menntun.is.
Endurmenntun Háskóla Íslands
Morgunblaðið/Ernir
Spuni Sigurður Flosason, yfirkennari jazzdeildar Tónlistarskóla FÍH, kennir.
Spuni í tónlistarkennslu
Borgarnes Skemmtilegt sjónarhorn yfir gamla bæinn, nýbyggingar og eldri í bland og kirkjan gnæfir yfir.
úrumyndir. Einn og einn köttur eða
hestur slæðist inn á myndirnar en
Tolli segist lítið sem ekkert gera af
því að mynda fólk. Hann leyfir
myndunum að halda sér í uppruna-
legri útgáfu og notar litla Olympus-
myndavél.
„Ég vinn helst ekki mikið í
myndunum og er ekki með stóra
flotta vél hangandi framan á mér.
Ég vil að vélin komist í vasann því
ég fer daglega í gönguferðir og
veðrið er alla vega. Því er skilyrði
að vélin sé lítil og hægt að taka hana
upp við hvaða skilyrði sem er. Ég
hef mikið myndað þar sem er kallað
Skallagrímsdalur niðri í gamla
bænum. Enda tók ég þar mín
fyrstu skref og því kannski
ekkert skrýtið að maður
leiðist þangað. Ég upp-
götvaði mér einmitt til
skelfingar þegar
ég var að tína til efn-
ið í dagatalið fyrir
2013 og orðinn
nokkuð ánægður að Bjargslandið
hafði orðið útundan. En ég bjargaði
mér fyrir horn með því að hafa
forsíðumyndina úr nýja hverfinu,“
segir Tolli.
Myndskreytt dagatal
Dagatalið átti sér þann aðdrag-
anda að Tolli ákvað að senda nokkr-
um góðum vinum dagatal og lét
prenta í takmörkuðu upplagi í
fyrsta skipti. Þetta spurðist síðan út
í Borgarnesi og fólk fór að spyrja
hvar það gæti fengið slíkt dagatal
keypt. Hann gefur það nú út í þriðja
sinn fyrir árið 2013.
„Ég hef tekið eftir því að þeir
Borgnesingar sem kaupa dagatalið
eru gjarnan að kaupa þetta handa
vinum og ættingjum sem búa ekki
hérna lengur,“ segir Tolli en daga-
talið fæst í Upplýsingamiðstöð Vest-
urlands og Landnámssetri Íslands.
Þá má skoða myndirnar á vefsíð-
unni www.hvitatravel.is/borgarnes-
today.
Ef marka má nýja skoðanakönnun
bókaútgáfunnar Parragon, sem
gefur út uppskriftabækur, hafa
Bretar meiri áhuga á að horfa á
Nigellu, Gordon og fleiri þekkta
kokka elda mat en að gera það
sjálfir. Alls svöruðu 2.000 manns
könnuninni en þriðjungur þeirra
eyðir aðeins 40 mínútum í eldhús-
inu á viku. Þetta kemur fram í
frétt á vefsíðu breska dagblaðsins
The Independent en þar segir um
leið að ekki þurfi að örvænta því
vel megi gera ágætis máltíð úr
bökuðum baunum, en þær má telja
ómissandi hráefni í breskum eld-
húsum. Er gefin hugmynd að því
að gera súpu úr baununum en
einnig má fylgja eftir uppskrift
Michelin-stjörnukokksins Chris
Galvins. Hann býr til kássu úr
baununum en bætir reyndar við
sex pylsum og niðursoðnum anda-
legg. Kannski þessar hugmyndir
auki mataráhuga Breta, það er
aldrei að vita.
Skoðanakönnun bókaútgáfunnar Parragon
Fljótlegt Bakaðar baunir bornar fram
á ristuðu brauði með smjöri.
Bretar nenna ekki að elda
Bókarhöfundar Ulrika Davidsson og Ola Lauritzson eru kampakát og
kunna allra best við sig í eldhúsinu. Þau luma líka á ýmsum hollusturáðum.
Tolli hefur síðastliðin ár starfað
sem leiðsögumaður á sumrin og
rekur fyrirtækið Hvítá travel.
Hann lauk leiðsögumannsprófi
árið 2005 frá Leiðsögumana-
skóla Íslands og hefur m.a. boð-
ið ferðamönnum ferð er kallast
Sex brúa ferðin. Í henni er farið
yfir allar sex brýr Hvítár og áð
bæði í Mýra- og Borgarfjarð-
arsýslu. Hann segist vilja
sinna ferðum á sínum
heimaslóðum enda heilli
hann ekki lengri fjarvera frá
fjölskyldunni eftir að hafa ver-
ið á sjó.
Á ferð um
Borgarfjörð
LEIÐSÖGUMANNSSTARF
Berjaterta
4 skammtar
Botninn:
100 g möndlur
2 msk fljótandi hunang
1 egg
Fylling:
2 dl þeyttur rjómi
2 tsk jarðarberjasulta
(sykurlaus)
5 dl jarðarber
1 dl hindber
1 dl bláber
Hitið ofinn í 175°C. Saxið möndlurnar og setjið
í skál. Bætið hunangi og eggi út í og hrærið sam-
an. Þrýstið deiginu í kökuform með lausum botni.
Bakið í miðjum ofni í 10-15 mínútur. Látið kólna.
Þeytið rjómann og blandið sultunni saman við.
Dreifið rjómanum yfir kökubotninn. Skolið jarð-
arberin, skerið í bita og dreifið yfir tertuna ásamt
hindberjum og bláberjum.
Opnunartilboð
Verkfæri
Tangarhöfði 2
og Skeifan 11d
TVÆR NÝJAR
VERSLANIR
Opnunartilboðin gilda
eingöngu í Tangarhöfða 2
og Skeifan 11d.
G
ild
is
tí
m
it
ilb
oð
s:
7.
ja
nú
ar
ti
lo
g
m
eð
11
.j
an
úa
r.
Stilling hf. | Sími 520 8000 | www.stilling.is | stilling@stilling.is
af völdum verkfærum
afsláttur
eð
11
.j
an
úa
r. 30-40%