Morgunblaðið - 07.01.2013, Side 12

Morgunblaðið - 07.01.2013, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2013 –– Meira fyrir lesendur SÉRBLAÐ : Katrín Theódórsdóttir Sími 569 1105 kata@mbl.is NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 12, mánudaginn 21. janúar. Þetta sérblað verður með ýmislegt sem tengist þorranum s.s: Matur, menning, hefðir, söngur, bjór, sögur og viðtöl Þann 25. janúar gefur Morgunblaðið út sérblað tileinkað Þorranum Hverafold 1-3 | Grettisgötu 3 | Smáralind | Langholtsvegi 113 | Turninn Höfðatorgi 511 1710 | svanhvit@svanhvit.is | svanhvit.is LÁTTU OKKUR SJÁ UMHEIMILISÞVOTTINN! LÍTIL VÉL 7 KG. 1.790 KR. STÓR VÉL 15 KG. 3.290 KR. Efnalaug - Þvottahús SVANHVÍT EFNALAUG - NÚ Á FIMM STÖÐUM Hverafold 1-3, 112 Reykjavík Langholtsvegi 113, 104 Reykjavík Grettisgötu 3, 101 Reykjavík Smáralind, 201 Kópavogur Turninn Höfðatorgi, 105 Reykjavík Um 250 þúsund eldislaxar drápust í Kaldfjord í Noregi í upphafi árs eft- ir að síld gekk inn í fjörðinn. Við það féll súrefnismettun í sjónum úr 80-90% niður í um 30%, sem gerði það að verkum að laxarnir drápust. Með því að flytja hluta af löxunum á annan stað í firðinum náðist að bjarga um 200 þúsund löxum. Svipaðar aðstæður komu upp hér á landi fyrir skömmu þegar tugþús- undir tonna af síld drápust í Kol- grafafirði vegna súrefnisskorts. Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri nytjastofnasviðs Hafrannsókna- stofnunar, bendir þó á að munur sé á atvikunum þar sem laxinn í Nor- egi hafi drepist vegna komu síld- arinnar inn í fjörðinn. „Í Noregi drapst laxinn vegna þess að síldin kom inn í fjörðinn og við það minnkaði súrefnismagnið. Síldin getur lifað í minna súrefni en lax- inn, því var enn minna súrefnis- magn í Kolgrafafirði,“ segir Þor- steinn. Hann telur að meiri líkindi séu á milli þessa tilviks og þess þegar þorskur drapst í kvíum í Grund- arfirði árið 2007. „Þá kom mikil síld inn í Grundarfjörð og þorskurinn drapst líkt og gerðist í Noregi,“ segir Þorsteinn. Hann bætir við að þetta sé ekki algengt fyrirbrigði. „Það er athyglisvert að náttúran skuli haga málum þannig að síldin þoli minna súrefnismagn inni í fjörðum. Hún gengur svo nærri súr- efnismagninu að aðrir fiskar komast ekki inn á firðina til að éta hana,“ segir Þorsteinn. vidar@mbl.is 250 þúsund laxar dráp- ust í Kaldfjord í Noregi Ljósmynd/Róbert Arnar Stefánsson Síld Tugþúsundir tonna af síld drápust í Kolgrafafirði fyrir skömmu.  Súrefnisskorti um að kenna eins og í Kolgrafafirði Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Fyrstu ellefu mánuði síðasta árs voru hátt í eitt þúsund fyrirtæki tek- in til gjaldþrotaskipta, að því er fram kemur í nýjum tölum Hagstofunnar. Er það fækkun um 32% á milli ára, ef miðað er við sama tímabil árið 2011 þegar um 1.400 fyrirtæki urðu gjaldþrota. Í nóvember sl. voru 66 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta, flest í flokknum heild- og smásöluverslun og í viðgerðum á vélknúnum öku- tækjum. Af þeim tæplega 1.000 fyr- irtækjum sem urðu gjaldþrota fyrstu ellefu mánuðina 2012 voru flest í byggingarstarfsemi og mann- virkjagerð, eða nærri 200 talsins. Í þeim geira höfðu 305 fyrirtæki orðið gjaldþrota á sama tíma 2011 og 230 árið 2010. Af öðrum einstökum greinum hafa þó hvergi orðið fleiri gjaldþrot en hjá heild- og smásöluverslunum og verkstæðum, eða um 950 frá árinu 2008. Um 560 fasteignasölur hafa orðið gjaldþrota á þeim tíma, um 460 fjármála- og tryggingafélög og 360 gististaðir og veitingahús. Á öllu árinu 2011 urðu um 1.600 fyrirtæki gjaldþrota hér á landi, voru um 980 árið 2010, 910 árið 2009 og um 750 hrunárið 2008. Nýskráningum fjölgar Hagstofan hefur einnig birt tölur um nýskráningar fyrirtækja. Í nóv- ember voru skráð 132 ný einkahluta- félög, flest í fasteignaviðskiptum og fjármála- og vátryggingastarfsemi. Í sama mánuði 2011 voru skráð 165 ný félög. Á fyrstu ellefu mánuðum árs- ins 2012 var fjöldi nýskráninga 1.605, sem er um 3% aukning frá sama tímabili árið áður. Gjaldþrot fyrirtækja eftir mánuðum 2010-2012 250 200 150 100 50 0 Jan. Feb. Mars Apr. Maí Júní Júlí Ág. Sept. Okt. Nóv. Des. 2010 2011 2012 Heimild: Hagstofa ÍslandsBráðabirgðatölur fyrir nóvember 2012. Samkvæmt Íslenskri atvinnugreinaflokkun ÍSAT2008. Hátt í eitt þúsund fyrirtæki gjald- þrota hér á landi Morgunblaðið/Ómar Gjaldþrot Mörg verktaka- og bygg- ingafyrirtæki hafa orðið gjaldþrota. Nýsköpunarsmiðjan Fab Lab var formlega opnuð í Menntaskólanum á Ísafirði fyrir helgi. Smiðjan ber nafnið Guðmund- arsmiðja eftir Guðmundi Þór Krist- jánssyni, vélstjóra og vélstjórn- arkennara við Menntaskólann á Ísafirði. Á vef Bæjarins besta kem- ur jafnframt fram að hann var frumkvöðull að stofnun Fab Lab- smiðju á Ísafirði, en hann lést árið 2010, langt fyrir aldur fram. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, ávarpaði samkomuna í gegnum samskipta- forritið Skype. Hún lýsti yfir ánægju sinni með stofnun smiðj- unnar og sagði hana vera framtíð- ina í kennslu- og frumkvöðlastarfi. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir er verkefnastjóri smiðjunnar. Guðmundarsmiðja formlega opnuð Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.