Morgunblaðið - 07.01.2013, Page 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2013
H
a
u
ku
r
1
0
.1
2
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
lögg. verðbr.- og fasteignasali,
brynhildur@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Jens Ingólfsson
rekstrarhagfræðingur,
jens@kontakt.is
Sigurður A.
Þóroddsson hrl.
sigurdur@kontakt.is
Forgangslisti er nýjung fyrir kaupendur og fjárfesta.
Skráning á www.kontakt.is
Skráðu þig á forgangslista og við sendum þér reglulega upplýsingar í•
tölvupósti um tækifæri sem við getum ekki sett í auglýsingar.
Upplýsingar og skráning á www.kontakt.is.
Fyrirtæki í innflutningi á sérhæfðum efna- og tæknivörum til notkunar í•
fyrirtækjum. Fyrirtækið nýtur álits á markaði og hefur trygga
viðskiptavini. Ársvelta 100 mkr.
Heildverslun með heilsutengdar vörur. Þekkt merki og sterk staða á•
markaði. Ársvelta 150 mkr. EBITDA 25 mkr.
Gott fjárfestingatækfæri. Lykilstarfsmenn eru að kaupa spennandi•
fyrirtæki sem hefur mikla vaxtamöguleika. Fjárfestir óskast til að leggja
fram 20 mkr. sem er um 25% hlutafjár. Í boði er örugg og góð
lágmarksávöxtun á láni eða hlut með sölurétti eftir 3 ár.
Þekkt tískufataverslun í Kringlunni. Góð umboð.•
Heildverslun með tæknivörur fyrir matvælaiðnaðinn. Ársvelta 80 mkr.•
Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki tengt byggingariðnaði. Stöðug•
ársvelta um 150 mkr. og rúmlega 20 mkr. EBITDA.
Þekktur skyndibitastaður. Ársvelta 70 mkr.•
Innflutningsfyrirtæki með tæknivörur á vaxandi markaði. Ársvelta 60•
mkr. og yfir 100% álagning.
Lítil en rótgróin bókaútgáfa sem sérhæfir sig á ákveðnu sviði. Stöðug•
velta allt árið.
FRÉTTASKÝRING
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Það hefur varla farið framhjá les-
endum að fjárlagaþverhnípið svo-
kallaða hefur verið mál málanna í
Bandaríkjunum síðustu vikurnar.
Undanfarna daga hefur áhugaverð
hugmynd skotið upp kollinum í um-
ræðunni: að Bandaríkjaþing leysi
fjárlagavandann með því að gefa út
trilljón dollara platínumynt.
Hugmyndin á fyrst að hafa birst
á bloggi sumarið 2011 þar sem hún
mallaði lengi vel þar til nýlega að
alls kyns áhrifamiklir menn og kon-
ur fóru að ræða platínu-töframynt-
ina af fullri alvöru. Það var síðast á
miðvikudag að stjörnuhagfræðing-
urinn Paul Krugman skrifaði um
málið á bloggi sínu.
En hvaða galdrar eru þetta sem
búa í platínumyntinni?
Sá vandi sem Bandaríkjaþing
stendur frammi fyrir felst m.a. í því
að lög setja þak á það hversu mik-
illa skulda ríkið getur stofnað til.
Sú skoðun ræður ríkjum á þinginu
þessa dagana að það verði að auka
útgjöld og beita keynesískum að-
ferðum til að halda hjólum atvinnu-
lífsins gangandi – en hvað er til
ráða þegar hirslur ríkissjóðs eru
tómar og búið að fullnýta skulda-
heimildir?
Peningaprentun er svarið, nema
hvað það er seðlabankinn, Federal
Reserve, sem stýrir prentvélunum
og fjárþörf ríkisins er langt um-
fram það sem seðlabankinn er fáan-
legur til að galdra fram.
Í bandarísku lagabókunum
leynist hins vegar lítil klausa sem
gefur fjármálaráðuneytinu leyfi til
að gefa út platínumynt og nafnvirði
myntarinnar má vera eins hátt og
ráðuneytinu sýnist.
Krugman bendir á að þessi heim-
ild í lögunum hafi aðallega verið
hugsuð fyrir útgáfu hátíðarmyntar
en lögin eru skýr og myntin sem
ráðuneytið myndi láta slá væri full-
komlega löglegur gjaldmiðill.
Það sem þingið getur þá gert er
að fara með eins og tvær sérsmíð-
aðar trilljón dollara myntir niður í
seðlabanka, leggja þær inn á reikn-
ing og taka til við að eyða eins og
hjartað lystir, sama hvað skulda-
þakið segir og sama hvað prent-
vélastjóra seðlabankans finnst.
Spil uppi í erminni?
Hvort hugmyndin um platínu-
myntina verður að veruleika er hins
vegar alls óvíst. Krugman afskrifar
ekki þessa lausn og segir hann að-
stæður í efnahagslífinu réttlæta að
beita nokkurn veginn hvaða brögð-
um sem er. Spekingar á Wall
Street eru sumir á öðru máli og
þykir hugmyndin ýmist hættuleg
eða hreinlega fáránleg. Enn aðrir
sjá platínumyntina sem verðmætt
spil sem Obama getur geymt uppi í
erminni til að knýja fram, eftir
hefðbundnum ferlum, það aukna
svigrúm sem hann vill fá í ríkis-
rekstrinum.
AFP
Frumlegt Bygging bandaríska fjármálaráðuneytisins í Washingtonborg. Sumum þykir hugmyndin um trilljón doll-
ara platínumynt fáránleg, öðrum finnst hún vel koma til greina sem neyðarúrræði og enn aðrir efast um lögmætið.
Svindla á reglunum
með platínumynt
Mikið rætt um óvenjulega lagatæknilega leið sem nota
mætti til að fara í kringum skuldaþak Bandaríkjastjórnar
Þýskir bílaframleiðendur drottn-
uðu yfir bandaríska lúxusbílamark-
aðinum á liðnu ári. Að sögn frétta-
stofu Bloomberg var það BMW sem
seldi flesta bíla, samtals um 281.460
farartæki. Nemur aukningin 14%
milli ára og hefur BMW ekki selt
fleiri bíla vestanhafs síðan árið
2007.
Í öðru sæti var Mercedes-Benz
sem seldi 274.100 bifreiðar á liðnu
ári. Lexus var með þriðju sölu-
hæstu bílalínuna með 244.166 far-
artæki seld. Lexus hafði trónað á
toppi lúxusbílamarkaðarins í 11 ár
þar til árið 2011 að þýsku framleið-
endurnir ruddu sér leið upp í efstu
sæti sölulistans.
Besta salan í fimm ár
Keppnin á lúxusbílamarkaðinum
var mjög tvísýn allt fram á síðustu
metrana en í desember náði BMW
að auka söluna um 39% miðað við
sama tímabil árið áður og þannig
skríða fram úr Mercedes-Benz.
Sala á nýjum bílum var almennt
góð vestanhafs á liðnu ári. Jókst
salan um 13,4% milli ára og hefur
ekki verið betri í fimm ár. Sölu-
hæsti bílaframleiðandinn heilt yfir
var General Motors sem seldi 2,5
milljónir einkabíla og sendibíla á
árinu, að því er BBC greinir frá.
Hástökkvari ársins var Volkswa-
gen sem bætti söluna um 35% milli
ára. Þar á eftir kemur Toyota sem
óx um 27% og Honda sem óx um
24%.
Útlit virðist vera fyrir frekari
vöxt á árinu framundan. Á árinu
2012 voru seldar samtals um 14,5
milljónir nýrra bifreiða. Ford
reiknar með að heildarsalan nemi
15-16 milljónum bíla á þessu ári en
General Motors spáir 15-15,5 millj-
óna heildarsölu.
ai@mbl.is
BMW konungur bandaríska
lúxusbílamarkaðarins 2012
AFP
Lokaskrefið Starfsmaður BMW handfjatlar skjöld með merki bílaframleið-
andans sem festur er á sinn stað á síðustu skrefum framleiðsluferlisins.
Mjótt var á mununum hjá lúxusbílaframleiðendunum í Bandaríkjunum.
General Motors söluhæsti framleiðandinn og Volkswagen hástökkvari ársins
Óttast er um afdrif Vittorio Missoni
og fimm annarra farþega og flug-
manna lítillar flugvélar sem hvarf
undan ströndum Venesúela á föstu-
dag. WSJ segir að Vittorio hafi ver-
ið á ferðalagi ásamt konu sinni og
tveimur vinum þeirra hjóna.
Vittorio stýrir ítalska tískufyr-
irtækinu Missoni sem faðir hans Ot-
tavio stofnaði árið 1953. Vittorio er
eignaður heiðurinn af að hafa gert
Missoni að alþjóðlegu stórfyrirtæki
en auk þess að framleiða tískufatn-
að fæst Missoni m.a. við hót-
elrekstur og framleiðslu ýmissa
húsmuna. ai@mbl.is
AFP
Iðnaður Vittorio Missoni á mynd úr
safni frá árinu 2003 ásamt móður
sinni Rositu og systur Angelu.
Framkvæmda-
stjóri Missoni
talinn af