Morgunblaðið - 07.01.2013, Síða 19

Morgunblaðið - 07.01.2013, Síða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2013 �irðin��eynsla � Þ�ónusta �l�an �ólarhrin�inn www.kvedja.is 571 8222 · 82o 3939 svafar · 82o 3938 hermann N�út�ararsto�a�yggð á traustum �runni´ ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓSKAR GUNNAR SAMPSTED prentari, Hraunbæ 70, lést föstudaginn 28. desember. Jarðarförin fer fram frá Árbæjarkirkju þriðjudaginn 8. janúar kl. 13.00. Bryndís Óskarsdóttir, Gunnhildur Amelía Óskarsdóttir, Gunnar Antonsson, Elísabet Stefanía Albertsdóttir, Hörður S. Friðriksson, Viktoría Dröfn og Albert Óskar. ✝ Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, ÁRNI INGVARSSON, Skipalóni 22, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum, Fossvogi, að morgni mánudagsins 24. desember. Útförin fer fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 8. janúar kl. 13.00. Gerða T. Garðarsdóttir, Elsa Aðalsteinsdóttir, Björn Árnason, Auðunn Gísli Árnason, Fríða J. Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Jósef Krist-jánsson fæddist á Meyjarhóli á Svalbarðsströnd 3. október 1924. Hann andaðist á Kristnesspítala 14. desember 2012. Foreldrar hans voru hjónin Ingi- ríður Jósefsdóttir, f. 3. september 1895, d. 6. sept- ember 1978, húsmóðir og verkakona og Kristján Tryggvason, f. 11. mars 1882, d. 12. nóvember 1946, búfræð- ingur og smiður. Bróðir Friðrik Kristjánsson, f. 20. janúar 1920, skrifstofumaður á Akureyri. Jósef kvæntist 19. júlí 1957 Björgu Ólafsdóttur, f. 3. nóv- ember 1930, handavinnukenn- ara, f. á Arndísarstöðum í Bárð- ardal. Foreldrar hennar voru hjónin Arnbjörg Halldórsdóttir, f. 4. október 1903, d. 13. maí 1990, húsmóðir, og Ólafur Tryggvason, f. 2. ágúst 1900, d. 27. febrúar 1975, huglæknir. Börn Jósefs og Bjargar eru 1) Guðbjörg Inga Jósefsdóttir, f. 6. febrúar 1958, gift Sigmundi Rafni Einarssyni, f. 15. febrúar 28. apríl 1963. Börn: Birna Ósk, f. 22. febrúar 1995, Tinna Björg, f. 26. júní 1998, Ólafur Níels, f. 9. október 2001. Fyrstu árin ólst Jósef upp á Meyjarhóli en síðar fluttu for- eldrar hans í Viðarholt í Gler- árþorpi við Akureyri. Eftir að faðir hans lést árið 1946 bjuggu bræðurnir ásamt móður sinni áfram í Viðarholti. Björg og Jósef hófu sinn bú- skap þar en árið 1963 fluttu þau í Vanabyggð 7, hús sem þau höfðu byggt í félagi við vinafólk sitt og hafa búið þar síðan. Jósef stundaði hefðbundið barnaskólanám þess tíma og vann ýmis störf svo sem rútu- og leigubílaakstur einnig vann hann á verksmiðjunum á Gler- áreyrum þar til hann hóf nám í bifvélavirkjun á Þórshamri og Iðnskólanum á Akureyri. Vann hann við þá iðn alla tíð. Hann stofnaði ásamt öðrum bifreiða- verkstæðið Baug og starfaði þar til ársins 1979. Þá stofnaði hann ásamt öðrum bifreiða- verkstæðið Baugsbrot og starf- aði þar þangað til hann veiktist í ágúst 1998. Síðustu árin dvaldi hann á Kristnesspítala þar sem hann andaðist 14. desember 2012. Útför Jósefs fer fram frá Ak- ureyrarkirkju í dag, 7. janúar 2013, og hefst athöfnin kl 10.30. 1948. Synir: Jósef Þeyr, f. 6. júní 1979, kvæntur Ey- rúnu Linnet, f. 7. júní 1979, börn þeirra Ásdís, f. 2. júní 2005, Birkir, f. 2. júní 2005, Gísli f. 29. október 2009, Hólmar, f. 13. maí 1986, sambýliskona Guðrún Ósk Þor- björnsdóttir, f. 1. október 1986, dóttir þeirra Ylfa Dís, f. 12. júní 2010. 2) Ólafur Jósefsson, f. 17. febrúar 1963. 3) Jóhanna Elín Jósefsdóttir, f. 14. október 1965, fyrrverandi eiginmaður Sigfús Ólafur Helgason, f. 29. sept- ember 1963. Stjúpdóttir Jó- hönnu: Petra Þórunn Sigfús- dóttir, f. 2. janúar 1986, sambýlismaður Hreinn Hrings- son, f. 20. júní 1974. Dóttir þeirra Andrea Líf, f. 12. febrúar 2011. Dætur: Helga Björg, f. 6. maí 1992, og Margrét Sylvía, f. 15. júní 1995. Sambýlismaður Björn Leifsson, f. 1. desember 1953. Sonur: Ívar Smári, f. 5. janúar 2002. 4) Ragnhildur Björg Jósefsdóttir, f. 15. apríl 1969, gift Gunnari Níelssyni, f. Elsku pabbi minn, þá er kveðjustundin upprunnin, stundin sem við höfum átt von á svo lengi en er samt svo óvænt og sár. Þú varst ekki maður margra orða en hlýjan í augum þínum og þétta handtakið þitt sögðu allt sem segja þurfti. Þú vannst þín störf af samvisku- semi, dugnaði og áreynslulaust og segja mér fróðir menn að enginn hafi þekkt Land- rover-bíla jafnvel og þú, enda varstu oft kallaður „afi“ Landroveranna. Bifvélavirkjun var ævistarfið þitt, ásamt því að ala okkur systkinin upp og þeg- ar við rifjum upp æskuárin munum við varla eftir því að þú hafir skipt skapi og skammað okkur en í þau fáu skipti sem það gerðist var sannarlega þörf á því og við skömmuðumst okk- ar. Þú varst ávallt heilsuhraustur og því er það svo sárt, að ein- mitt þegar þú þurftir á lækn- isþjónustu að halda varð mis- brestur á. Því mun verslunarmannahelgin 1998 ekki gleymast en þá kenndir þú þér meins sem ranglega var greint og því fór sem fór. Blóðtappi var það eins og þú varst hrædd- ur um, þú lamaðist hægra meg- in og misstir málið að mestu. En ekki kvartaðir þú, heldur tóku við æfingar og endurhæfing, þannig að þú gast búið áfram í Vanabyggðinni á annarri hæð og þegar mamma hélt að nú gæti þetta ekki gengið lengur og best væri að flytja á jarðhæð sagðir þú „nei, ég get gengið“ og upp stigann komstu og ekki var flutt. Síðustu árin dvaldir þú á Kristnesspítala en þar bjugguð þið bræður saman í herbergi. Það var notalegt að vita af ykk- ur saman þar, deila herbergi eins og í æsku þó tjáskipti hafi ekki verið mikil milli ykkar, þar sem þú gast lítið talað en frændi, þessi mikli bókamaður, orðinn blindur. Það var falleg sjón að sjá ykkur bræður sitja saman við matarborðið og hald- ast í hendur, það sýndi svo vel væntumþykju ykkar en þið vor- uð bara tveir bræðurnir. Síðasta árið varstu að mestu rúmfastur og þegar ein yndislega starfs- stúlkan sagði þér í sumar að hún hefði komið á fornbílnum sínum í vinnuna og spurði hvort þú vildir skoða hann, hélstu það nú og út fórstu í hjólastólnum. Þetta sýnir ekki bara áhuga þinn á bílum, heldur einnig um- hyggju starfsfólksins í þinn garð. Síðasta ferðalagið þitt í hjólastólnum var skömmu fyrir andlátið en þá höfðuð þið bræð- ur fengið eins manns herbergi og þú fórst að heilsa upp á bróð- ur þinn. Elsku pabbi, það var einnig ómetanlegt fyrir Jobba minn að fá að alast upp hjá ykkur mömmu fyrstu árin en þú barst hann á höndum þér alla tíð og ég gleymi aldrei hvað þú bauðst hann fallega velkominn heim til ykkar, þegar við komum heim af fæðingardeildinni. Strákarnir mínir eru svo heppnir að muna þig frískan og nutu þess að þú dekraðir við þá og fræddir, þess vegna eru þeir ríkir af góðum minningum um þig. Elsku pabbi minn, á þessum tímamótum finnst mér ég enn vera litla stelpan þín, mig lang- ar að setjast í hlýja faðminn þinn, halda í hlýju vinnulúnu höndina þína og finna milda ol- íu- og bensínlykt sem mér finnst ennþá svo góð. Hafðu þökk fyrir allt og allt, þar til við sjáumst, þegar minn tími er kominn. Þín elsta dóttir, Guðbjörg Inga. Jósef KristjánssonLöngumýrinni þegar ég rölti tilykkar Gísla eftir skóla og við spil- uðum Hornafjarðarmanna langt fram eftir degi og fengum okkur friggasí í matinn. Það var mitt uppáhalds. Eftir að ég flutti til Kaupmannahafnar fækkaði heim- sóknunum en í hvert skipti sem við komum heim varstu mætt upp í Melhæð til að taka á móti okkur frá flugvellinum. Ég hlakkaði allt- af svo til að koma til Íslands og kíkja í heimsókn til þín í kaffibolla með molasykri og spjall. Það var svo gaman að sitja við eldhúsborð- ið og hlusta á þig segja frá hinum og þessum sögum, þú sagðir svo skemmtilega frá og alltaf með húmorinn í lagi. Seinast þegar ég talaði við þig spjölluðum við um þegar þú komst í heimsókn til okkar til Kaup- mannahafnar og hve ánægð þú varst með ferðina. Það var svo gaman hjá okkur, gengum um bæ- inn, fengum okkur smørrebrød og eyddum kvöldunum upp á svölun- um hjá Pétri og horfðum á bátana sigla í kanalnum á Christians- havn. Þarna nutum við okkur öll saman í blíðviðrinu. Mikið er ég ánægð með allar þessar stundir sem við áttum saman, nærvera þín var svo góð, alltaf svo góð- hjörtuð og hlý. Þú tókst öllum með opnum örmum og vildir alltaf allt fyrir alla gera. Þú varst svo stolt af fjölskyldunni þinni og mundir afmælisdagana hjá öllum sem mér fannst alltaf svo merkilegt þar sem fjölskyldan var orðin ansi stór. Okkur þykir svo vænt um þig og þín verður sárt saknað. Ég vona að ég nái á minni lífsleið að vera eins góð manneskja og þú varst. Takk fyrir allt amma mín, ég mun geyma minninguna um þig í hjarta mínu og segja stelp- unum mínum frá hve yndisleg manneskja þú varst. Ég elska þig, amma mín. Þín Elísabet Björt. Um daginn sendi amma Lóló mér með póstinum gamlar mynd- ir. Þar heldur hún á mér nokkurra daga gömlum og við glottum hvort framan í annað. „Fyrsta brosið“ stendur skrifað yfir myndina með hennar auðþekkjanlegu rithönd. Síðan þá höfum við verið bestu vinir. Það eru mörg afmæliskortin og bréfin sem hún skrifaði til mín, fyllt út í kant, með góðum orðum sem alltaf áttu greiða leið inn að hjarta, sama hvar maður var staddur í lífinu. Ég lærði það snemma frá henni að missa ekki sjónar á draumum mínum og fylgja ávallt hjartanu í því sem ég geri. Það er dýrmæt gjöf sem ég er þakklátur fyrir og vonandi get gefið áfram til barnanna minna. Heimili ömmu Lóló og Gísla í Löngumýri stóð okkur börnunum alltaf opið. Hver heimsókn var há- tíð. Alltaf var öllu tjaldað til og þá í hvert einasta skipti, amma að gera sig fína með rúllur í hárinu og ég veit ekki hvað. Þessu bara vippað fram úr erminni eins og ekkert væri. Okkur þótti ævinlega svo gaman að koma í heimsókn. Alltaf var andrúmsloftið svo hlý- legt og gott. Man ég ófá skiptin þar sem við áttum góðar stundir saman í eld- húsinu, leggjandi kapal yfir kaffi og kræsingum. Slúðrað um allt og ekkert. Einnig sem strákur kom ég oft við niðrí Löngumýri eftir skóla, þá var amma alltaf búin að fylla ískápinn af engjaþykkni og Ora fiskibollum því það var uppá- halds þá. Amma alltaf undirlögð af ást til okkar allra og bjó ætíð svo vel um okkur. Og hvort sem það var fyrir nokkrum mánuðum síðan eða fyr- ir tuttugu árum, þá voru heim- sóknirnar til ömmu og Gísla alltaf umluktar sömu notalegu stemn- ingunni og hlýleika. Þetta fundu allir sem komu í heimsókn til þeirra enda var oft mikill gestagangur hjá þeim hjú- um. Hún amma Lóló var yndislega hjartnæm kona, hlý og umhyggju- söm, og hafði hugann ætíð hjá börnunum sínum og fylgdist vel með því sem fólkið hennar var að gera. Veggirnir í Löngumýrinni bera líka þá sögu. Með tímanum hafa þeir fyllst af myndum af börnun- um hennar, barnabörnum og barnabarnabörnum sem hún var svo stolt af og bar það ávallt utan á sér. Amma hafði alltaf hlýjan vanga að bjóða og hún tók alltaf vel á móti þeim sem komu nýir inn í fjölskylduna. Elín Ösp var engin undantekning og leið ekki á löngu þar til amma var búin að taka af henni mál og vippa upp einni ull- arpeysu. Ég fékk líka ófáar peys- urnar. Ég man að eftir mikla notkun fór að sjá eilítið á peysunni og þegar amma sá þetta vildi hún endilega fá hana til lagfæringar. Stuttu seinna fékk ég peysuna til baka, en þá hafði hún tekið sig til og bara rakið hana alla upp og prjónað nýja úr garninu. Sú var mikið notuð, fékk seinna einnig bætur á olnbogana og liggur núna heima í varðveislu, notuð við sparitækifæri. Hún hugsaði líka svo vel um nýjustu fjölskyldumeðlimina. Þeim gaf hún listilega saumuð sængurföt og sængur sem eru í notkun á hverjum degi. Þetta gerði hún af svo mikilli al- úð og ást. Ég kveð þig amma mín og mun ávallt minnast þín sem konu sem stóð fyrir allt það góða í lífinu. Við erum öll svo lánsöm að hafa átt þig að. Ástarkveðjur, vinurinn þinn. Pétur Örn. Systraminning Það varð stutt á milli andláts þessara systra minna, Guðlaugar og Matthildar og langar mig til þess að rita nokkur orð í minningu þeirra. Þar sem 16 og 17 ára ald- ursmunur er á okkur kynntist ég þeim ekki fyrr en þær voru orðnar ungar konur og Stellu ekki fyrr en ég var orðinn 15 ára þar sem hún flutti ung til Bandaríkjanna en kom til baka árið 1962. Lóló var hér heima en báðar voru þær ung- ar þegar þær hittu eiginmenn sína, þá Árna Ólafsson og Jóhann B. Eyjólfsson, sem báðir eru látn- ir. Það hef ég heyrt að þegar þær voru ungar og bjuggu á Brekku- stígnum voru margir ungir menn sem stigu í vænginn við þær syst- ur enda báðar gullfallegar, skemmtilegar og voru þá eins og alla sína ævi greiðviknar, góð- hjartaðar og vildu öllum vel. Þær lögðu sig allar fram í að hlúa að heimilum sínum, eiginmönnum, börnum, barnabörnum og lang- ömmubörnum þegar þau fæddust. Þeim þótti yndislegt að fylgjast með öllu þessu fólki, sjá hópinn stækka og dafna og tóku virkan þátt í því sem þau voru að gera bæði í starfi og leik. Mér er það minnisstætt hvað þær hugsuðu vel um móður okkar þegar faðir okkar lést skyndilega árið 1963 og voru þær alltaf boðnar og búnar til að gera henni lífið léttbærara. Þá eru mér ógleymanleg matar- boðin hjá þeim systrum sem voru ósjaldan en báðar voru þær mikl- ar húsmæður. Stella kom með margar nýjungar í matargerð frá dvöl sinni í Ameríku sem voru mér mjög framandi og Lóló eldaði mat eins og ég hafði fengið í foreldra- húsum. Þá eru mér minnisstæðar ferðir út á land en báðar áttu þær flotta bíla með mökum sínum og var ég oft tekinn með í sveitina, hvort sem farið var í veiði, sum- arhús, berjamó eða bara Þing- vallahringinn. Það var svolítið grobbinn gutti þegar hann sat í Ford 5́8 og Chevy 5́7 sem voru sko alvöru bílar. Þegar þær voru bún- ar að koma börnum sínum til manns fóru þær báðar að læra. Stella fór í háskólann og lærði bókasafnsfræði en Lóló fór í sjúkraliðaskólann og störfuðu þær báðar við Borgarspítalann til starfsloka. Stella bjó síðustu árin í nágrenni við sitt æskuheimili í vesturbænum en Guðlaug var í sambúð með Gísla Ferdínands- syni og bjuggu þau í Garða- bænum. Báðar létust þær eftir stutta legu á sínum gamla vinnu- stað og var vel hugsað um þær síð- ustu daga ævi þeirra. Mig langar til þess að ljúka þessum minning- arorðum um þær systur með ljóði eftir Sigurbjörn Þorkelsson sem mér finnst eiga vel við þær sóma systur. Boðberar kærleikans eru jarðneskir englar sem leiddir eru í veg fyrir fólk til að veita umhyggju, miðla ást, fylla nútíðina innihaldi og tilgangi, veita framtíðarsýn vegna tilveru sinnar og kærleiksríkrar nærveru. Þeir eru jákvæðir, styðja, uppörva og hvetja. Þeir sýna hluttekningu, umvefja og faðma, sýna nærgætni og raunverulega umhyggju, í hvaða kringumstæðum sem er án þess að spyrja um endurgjald. Blessuð sé minning þeirra. Jónas Marteinsson. Elsku amma Lóló er fallin frá og hennar verður sárt saknað. Hún var ein indælasta mann- eskja sem ég hef fengið að kynn- ast. Amma Lóló tók vel á móti mér þegar ég kom inn í fjölskylduna og það þótti mér vænt um. Ég naut ekki þeirrar gæfu að kynnast mín- um eigin ömmum og fannst ég alltaf eiga pínulítið í henni líka. Kræsingar og knús voru ávallt á boðstólum í Löngumýrinni þegar við komum í heimsókn, og hún spurði alltaf hvort við vildum eitt- hvað sérstakt og hafði það þá til. Hvort sem það var plokkfiskur, kjötbollur eða kaffi og Svali. Þegar fjölskyldan stækkaði og börnin fæddust fengu þau eins og aðrir falleg orð og elskulegheit í veganesti. Svo ekki sé minnst á sængurgjafirnar, en barnabarna- börnin fengu hvert á fætur öðru listilega saumuð sængur- og koddaver, og var á tímabili erill í saumaskapnum þar sem börnun- um fjölgaði mikið á stuttum tíma. Lopapeysurnar frá henni eru líka orðnar víðfrægar, enda held ég að ég sé ekkert að ýkja þegar ég segi að allir í fjölskyldunni eigi í það minnsta eina slíka. Mér fannst það vera ákveðin upphefð og innlimun í fjölskylduna þegar amma Lóló vatt sér upp að mér í einni heim- sókninni í Melhæðinni og spurði hvort ég vildi ekki lopapeysu. Svo mældi hún mig í bak og fyrir og á næsta afmælisdegi fékk ég send- an mjúkan pakka út til Kaup- mannahafnar. Ég minnist sérstaklega heim- sóknar hennar til okkar hingað fyrir rúmum fjórum árum, en þá kom hún með okkur um bæinn þveran og endilangan, upp kræk- lóttan hringstiga á þakverönd í grillveislu, á karnival í Fælledparken og að bekkjum Christianshavn í nestisferðir. Þetta ferðalag og myndirnar það- an voru uppspretta samtala í heimsóknum til hennar lengi á eft- ir, og eru dýrmætar minningar. Ég kveð ömmu Lóló döpur í bragði en þakklát í hjarta fyrir að hafa kynnst góðri og hjartahlýrri konu. Amma Lóló sagði nágranna sinn eitt sinn hafa undrast stöð- ugar heimsóknir unga fólksins til hennar og sagði: „Eitthvað hlýt- urðu að hafa gert rétt, Lóló mín.“ Það gerði hún svo sannarlega. Ég votta börnum Lóló, Gísla, barnabörnum og öðrum ættingj- um og vinum, mína innilegustu samúð. Elín Ösp.  Fleiri minningargreinar um Guðlaugu Marteins- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.