Morgunblaðið - 07.01.2013, Side 29

Morgunblaðið - 07.01.2013, Side 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JANÚAR 2013 Hvað ertu að hlusta á um þessar mundir? Ásgeir Trausta, Nat King Cole og Elvis (jólalög). Hvaða plata er sú besta sem nokk- urn tíma hefur verið gerð að þínu mati? Rapphundurinn í mér verður að fá að tjá sig hér líka. Þannig að ég segi Straight Out of Compton með NWA. Tímamótaverk í rappsög- unni. Þarna voru menn sem þurftu að hleypa út mikilli uppsafnaðri reiði og höfðu margt að segja. Hver var fyrsta platan sem þú keyptir og hvar keyptirðu hana? Ísbjarnarblús Bubba. Held ég hafi verið sex eða sjö ára og minn- ir að ég hafi keypt hana í Hreða- vatnsskála þegar ég var í sum- arbústað í Borgarfirðinum. Hvaða íslensku plötu þykir þér vænst um? Fyrrgreindan Ísbjarnarblús, af því að hún var fyrst í röðinni. Svo klikkar „Þorparinn“ ekki á Gamli góði vinur með Mannakornum. Hvaða tónlistarmaður værir þú mest til í að vera? Ég er nú nokkuð sáttur í eigin skinni, en hefði verið til í að vera Elvis sjálfur, af því að hann var breyskur, flottur og kunni að syngja. Náði eflaust að prófa töluvert af tilfinningaskalanum á annars tiltölulega stuttri ævi. Hvað syngur þú í sturtunni? Það fer eftir ýmsu. Ef mað- ur er á góðum stað í te- stósteron-hringnum reynir maður á bassann með því að taka Hauk Morthens, en stundum er maður minni í sér og fer í Backstreet Boys. Hvað fær að hljóma villt og galið á föstu- dagskvöldum? Getur verið allt frá Rihönnu og J-Lo yfir í ís- lenskt 80’s. Veltur á stemn- ingunni hverju sinni. En hvað yljar þér svo á sunnudagsmorgnum? Nat King Cole, Ro- berta Flack eða Elv- is. Í mínum eyrum Sölvi Tryggvason fjölmiðlamaður „Þorparinn“ klikkar ekki Rapphundur Straight Out of Comp- ton með NWA er tímamótaverk í rappsögunni, að mati Sölva. Ljósmynd/Jónas Hallgrímsson Nýjasta kvikmyndin um njósn- arann James Bond, Skyfall, er ein af tíu sem samtök breskra kvik- myndaframleiðenda tilnefna til Darryl F. Zanuck verðlaunanna fyrir framúrskarandi kvikmynda- framleiðslu. Þykir þetta auka lík- urnar á því að myndin verði til- nefnd til Óskarsverðlauna í ár því myndir tilnefndar af samtökunum hafa jafnan gert það gott á Ósk- arnum. Samtökin hafa ekki til- nefnt Bond-mynd áður og er þetta því mikið fagnaðarefni fyrir Bond-unnendur. Af öðrum kvik- myndum á listanum má nefna Argo, Les Miserables, Lincoln og Silver Linings Playbook sem hafa hlotið mikið lof gagnrýnenda, líkt og Skyfall. Óskarsverðlaunin verða afhent í Los Angeles, 24. febrúar nk. 007 Daniel Craig þungur á brún í hlutverki James Bond í Skyfall. Bond-mynd tilnefnd í fyrsta sinn Austurríski kvikmyndaleikstjórinn Michael Haneke hefur ákveðið að draga kvikmynd sína Amour úr keppni um austurrísku kvikmynda- verðlaunin. Amour hlaut Gull- pálmann á síðasta ári, aðalverðlaun kvikmyndahátíðarinnar í Cannes og er framlag Austurríkismanna í keppninni um bestu erlendu myndina á Óskarsverðlaununum í ár. Ástæða þessarar ákvörðunar Haneke er að kvikmyndin er ekki hæf til tilnefn- inga í nokkrum mikilvægum flokk- um, m.a. af því hún er á frönsku og framleidd utan Austurríkis. Því er aðeins hægt að tilnefna hana fyrir leikstjórn, handrit og klippingu. Haneke dregur Amour úr keppni AFP Ekki með Michael Haneke. JÓLAMYND2012 FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR OG NAOMI WATTS TILNEFND TIL GOLDEN GLOBE VERÐLAUNA BESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI 100/100 „Fer beint í efsta sæti yfir þær myndir sem fólk verður að sjá á árinu.“ 100/100 „Ógnvænlega vel gerð.“ JÓLAMYND 2012 -V.J.V., SVARTHÖFÐI.IS  -EMPIRE  JÓLATEIKNIMYNDIN Í ÁR! Í 2D OG 3D MEÐ ÍSLENSKU TALI -SÉÐ & HEYRT/VIKAN Gleðilegt Nýtt Ár! EGILSHÖLLÁLFABAKKA VIP SINISTER KL. 8 - 10:20 HOBBIT: UNEXPECTED JOURNEY3D KL. 8 HOBBIT: UNEXPECTED JOURNEY KL. 6 - 10 HOBBIT: AN UNEXPECTED JOURNEY VIP KL. 6 - 10 THE IMPOSSIBLE KL. 5:50 - 8 - 8:20 - 10:30 SAMMY 2 ÍSLTAL KL. 5:50 SAMMY 2 ÍSLTAL3D KL. 5:50 RED DAWN KL. 10:50 RISE OF GUARDIANS ÍSLTALI KL. 5:50 AKUREYRI SINISTER KL. 10:20 THE IMPOSSIBLE KL. 8 - 10:20 RED DAWN KL. 8 RISE OF THE GUARDIANS ÍSLTAL3D KL. 6 SAMMY 2 ÍSLTAL KL. 6 KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI SINISTER KL. 5:40 - 8 - 10:20 THE IMPOSSIBLE KL. 5:30 - 8 - 10:30 LIFE OF PI 3D KL. 8 SAMMY 2 ÍSLTAL KL. 5:50 SKYFALL KL. 10:40 KEFLAVÍK THE IMPOSSIBLE KL. 8 - 10:20 HOBBIT: AN UNEXPECTED JOURNEY 3D KL. 8 SINISTER KL. 10:40 HOBBIT: AN UNEXPECTED JOURNEY 3D KL. 4:40 - 8 HOBBIT: UNEXPECTED JOURNEY 2D KL.7-10:20 LIFE OF PI 3D KL. 5:20- 8 THE IMPOSSIBLE KL. 5:30 - 8 - 10:30 SAMMY 2 ÍSLTAL3D KL. 5 FRÁ FRAMLEIÐENDUM “PARANORMAL ACTIVITY” OG “INSIDIOUS” 80/100 VARIETY 75/100 R. EBERT STRANGLEGA BÖNNUÐ BÖRNUM TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á F Y R I R Þ I G O G Þ Á S E M Þ É R Þ Y K I R V Æ N S T U M ! KRINGLUNNISími: 5513200 ERUM AÐ TAKA UPP NÝJAR VÖRUR FYRIR HERRA!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.