Morgunblaðið - 21.01.2013, Page 12

Morgunblaðið - 21.01.2013, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2013 BAKSVIÐ Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Opinberum störfum í Skagafirði hefur frá árinu 2008 fækkað um tæplega 50, talið í stöðugildum, og er það hlutfallslega mun meira en í öðrum landshlutum. Árið 2008 voru stöðugildin alls um 330 en voru á síðasta ári komin niður í 282. Munar þar mest um nið- urskurð á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki, auk þess sem stöðu- gildum hefur fækkað í Fjölbrauta- skóla Norðurlands vestra á Sauð- árkróki og Háskólanum á Hólum. Störfum hefur einnig fækkað hjá ýmsum öðrum stofnunum á vegum hins opinbera, eins og hjá lögreglu og sýslumannsembættinu. Um næstu mánaðamót fækkar um eitt stöðugildi þegar Ríkarður Másson sýslumaður lætur af störfum og enginn verður ráðinn í hans stað. Samtök sveitarfélaga á Norður- landi vestra, SSNV, hafa reglulega tekið saman yfirlit á svæðinu yfir opinber störf og eins og kemur fram hér til hliðar hefur þeim fækkað mun minna í Húnaþingi en í Skagafirði. Fækkun hefur þó ekki verið alls staðar og í ein- hverjum tilvikum fjölgun. Þannig hafa fjögur stöðugildi bæst við hjá Íbúðalánasjóði á Sauðárkróki frá 2008 og stöðugildi hjá Byggða- stofnun haldist óbreytt, eða um 20 talsins. Byggðirnar lagðar niður Sigurjón Þórðarson, sveit- arstjórnarfulltrúi í Skagafirði, vakti athygli á þessari þróun í pistli sínum nýverið á Eyjunni. Þar sagði hann m.a. að ráðherrar ríkisstjórnarinnar hefðu greinilega ekki staðið við yfirlýsingar síðan fyrir kosningar, að þeim lands- hlutum yrði hlíft við niðurskurði sem hefðu ekki tekið þátt í góð- ærinu fyrir hrun. Niðurskurður og álögur stjórnvalda hefðu hins veg- ar einmitt bitnað harðast á hinum dreifðu byggðum landsins. „Stefna ríkisstjórnarinnar er augljós gagnvart Skagfirðingum og reyndar landsbyggðinni allri – það er verið að leggja byggðirnar niður. Þessi stefna gagnvart dreifðu byggðunum er óskiljanleg vegna þess að í sjávarbyggðunum verður til drjúgur hluti af útflutn- ingstekjum þjóð- arinnar og gæti hann orðið ennþá meiri ef atvinnufrelsi verður aukið,“ ritaði Sigurjón. Aðför að samfélaginu Stefán Vagn Stefánsson, for- maður byggðaráðs Skagafjarðar og yfirlögregluþjónn á Sauð- árkróki, segir að sú staða sem við Skagfirðingum blasir sé alvarleg. „Það er erfitt að kalla þetta nokkuð annað en aðför að því samfélagi sem við búum í. Stað- reyndin er sú að ríkisvaldið er bú- ið að skera niður hjá okkur um 48 stöðugildi frá því 2008 eða um 14% þeirra opinberu starfa sem fyrir voru í Skagafirði. Það hlýtur að vekja upp spurningar um fram- tíðarsýn ríkisins gagnvart svæð- inu,“ segir Stefán Vagn og telur stöðuna með öllu óviðunandi. Skagfirðingar geri þá kröfu að stjórnvöld leiðrétti hana hið fyrsta. „Það segir sig sjálft að fækkun um 48 störf hefur áhrif á svæðið allt og má í raun segja að fækk- unin sé enn meiri sökum fækk- unar á afleiddum störfum í kjöl- farið. Sú stefna sem núverandi stjórnvöld reka gagnvart lands- byggðinni verður að endurskoð- ast,“ segir hann. Meiri fækkun opinberra starfa í Skagafirði en annars staðar  Opinberum störfum hefur fækkað þar um 14,5% frá árinu 2008  Stjórnvöld harðlega gagnrýnd Opinber störf í Skagafirði þróun stöðugilda 2008-2012 (mars) Stofnun 2008 2009 2010 2011 03. 2012 Sjúkrahús og heilsugæsla 119,00 112,75 103,40 89,89 85,53 Fjölbrautaskóli Norðurl. vestra 54,00 50,00 50,00 45,00 46,50 Háskólinn á Hólum 57,00 53,00 45,48 46,85 44,53 Íbúðalánasjóður 18,00 18,00 16,80 22,00 22,00 Byggðastofnun 20,00 20,00 20,00 20,00 20,00 Vegagerð ríkisins 12,00 12,50 13,00 16,00 14,75 Sýslumannsembættið 8,00 7,00 7,50 7,00 7,00 Lögreglan 9,00 9,00 9,00 8,00 7,00 Rarik 9,00 7,00 7,00 7,00 7,00 Prestar og djáknar 5,00 5,00 5,00 5,00 5,00 Matís 2,00 3,00 4,00 4,00 4,50 Farskólinn - Símenntunarmiðst. 3,00 3,00 Vinnueftirlit ríkisins 2,50 1,50 1,50 1,50 2,50 ÁTVR 3,18 3,18 1,40 2,00 2,00 Fornleifavernd ríkisins 2,00 2,00 2,00 2,00 2,00 Héraðsdómur Norðurl. vestra 1,50 2,00 2,00 2,00 2,00 Vígslubiskup á Hólum 1,20 1,20 1,20 1,20 1,20 Veiðimálastofnun 3,00 4,00 3,00 1,00 1,00 Nýsköpunarmiðstöð 2,00 2,50 1,00 1,00 Náttúrustofa Norðurl. vestra 1,50 1,50 1,00 1,00 Vinnumálastofnun 0,50 1,00 1,00 1,00 1,00 Héraðssetur Landgræðslu 1,00 1,00 1,00 1,00 1,00 Héraðsdýralæknir 1,00 1,00 1,00 1,00 0,50 Isavia (flugvöllurinn Skr.) 1,00 1,00 1,00 0,00 0,00 ALLS 329,88 318,63 300,28 288,44 282,01 Ljósmynd/Óli Arnar Brynjarsson Skagafjörður Opinberum störfum á Sauðárkróki og víðar í Skagafirði fækkaði úr 330 stöðugildum árið 2008 í 282 í mars á síðasta ári. Þróunin hefur haldið áfram og nú stefnir í að staða sýslumanns á Sauðárkróki verði lögð niður. Stefán Vagn Stefánsson Samkvæmt samantekt SSNV hefur opinberum störfum í Húnavatnssýslunum fækkað heldur minna en í Skagafirði. Í raun hefur þeim samanlagt fjölgað ef tekin eru með 16 stöðugildi sem hafa bæst við hjá útibúi Vinnumálastofnunar á Skagaströnd frá árinu 2008. Á Skagaströnd hefur opinberum störfum fjölgað um 138% á tímabilinu, úr 13 stöðugildum 2008 í 31 stöðugildi í fyrra, þar af 26 hjá Vinnumálastofnun. Þróunin hefur verið á hinn veginn hjá öðrum Húnvetn- ingum. Í Húnaþingi vestra fækk- aði opinberum störfum um 8,4% frá 2008, úr 70 stöðugild- um í rúm 64. Á Blönduósi og í Húnavatnshreppi fækkaði störf- unum um 6,5%. Þar voru stöðu- gildin 107,5 árið 2008 en voru 100,5 í mars 2012. Mest var fækkunin á sjúkrahúsinu. Skagaströnd undantekning HÚNVETNINGAR Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson H a u ku r 1 0 .1 2 Guðni Halldórsson lögfræðingur, gudni@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, lögg. verðbr.- og fasteignasali, brynhildur@kontakt.is Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is Jens Ingólfsson rekstrarhagfræðingur, jens@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hrl. sigurdur@kontakt.is Forgangslisti er nýjung fyrir kaupendur og fjárfesta. Skráning á www.kontakt.is Skráðu þig á forgangslista og við sendum þér reglulega upplýsingar• í tölvupósti um tækifæri sem við getum ekki sett í auglýsingar. Upplýsingar og skráning á www.kontakt.is. Stórt og rótgróið innflutningsfyrirtæki með áherslu á tæknivörur fyrir• sjávarútveg. Ársvelta 700 mkr. Þekkt pípulagningarfyrirtæki með talsverða sérstöðu. Núverandi• eigandi vill hætta vegna aldurs en er til í að vera einhvern tíma með nýjum eiganda. Tilvalið tækifæri fyrir duglega pípara sem treysta sér í eigin rekstur. Auðveld kaup. Fyrirtæki í innflutningi á sérhæfðum efna- og tæknivörum til notkunar• í fyrirtækjum. Fyrirtækið nýtur álits á markaði og hefur trygga viðskiptavini. Ársvelta 100 mkr. Heildverslun með heilsutengdar vörur. Þekkt merki og sterk staða á• markaði. Ársvelta 250 mkr. EBITDA 25 mkr. Vinsæll pizza staður í góðum rekstri. Stórt og gott húsnæði á góðum• stað. Rótgróið innflutnings- og þjónustufyrirtæki með tæki fyrir• framleiðslufyrirtæki. Ársvelta 300 mkr. Bakarí á góðum stað. Möguleiki á að kaupa eingöngu verslunina.•

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.