Morgunblaðið - 18.04.2013, Síða 8

Morgunblaðið - 18.04.2013, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2013 Nú eru aðeins 10 dagar til þing-kosninga.    Hinn mikli fjöldi framboða gerirkosningabaráttuna ómarkvissa og umræðuþættir ljósvakamiðla fá lé- legra áhorf fyrir vikið.    Hvað er þá líklegast til að hreyfavið kjósendum við slíkar að- stæður?    Fræðimennhafa iðu- lega vitnað í vís- indalegar kannanir sínar sem sýni að um þriðjungur kjósenda ákveði ekki fyrr en í kjörklefanum, hvernig þeir ráðstafi atkvæði sínu.    Vafalaust er þessi vísindalega nið-urstaða réttilega lesin út úr svörum aðspurðra.    En hvernig stendur þá á því að úr-slit á kjördag fara jafnan svo nærri niðurstöðum síðustu kannana fyrir kosningar?    Hefur kjósandinn tekið ákvörðun ísinni undirvitund mörgum dög- um fyrr, þótt hann trúi því að það geri hann ekki fyrr en í kjörklefanum?    Þykir fínt að segjast taka svo mik-ilvæga ákvörðun ekki fyrr en í kjörklefanum, þar sem ekki er dvalið nema fáeinar sekúndur?    Og hvað er það við kjörklefannsem loks lýkur upp skilning- arvitunum?    Og sé kenningin rétt mun húnstandast núna þegar kjörseðill- inn slagar upp í hálfan metra?    Hvað segja spekingarnir um það? Kjörklefakenningin STAKSTEINAR Veður víða um heim 17.4., kl. 18.00 Reykjavík 1 slydda Bolungarvík -1 alskýjað Akureyri 1 alskýjað Kirkjubæjarkl. 4 skýjað Vestmannaeyjar 4 skýjað Nuuk -2 skýjað Þórshöfn 4 skúrir Ósló 12 heiðskírt Kaupmannahöfn 11 léttskýjað Stokkhólmur 12 heiðskírt Helsinki 6 léttskýjað Lúxemborg 22 heiðskírt Brussel 22 heiðskírt Dublin 13 skýjað Glasgow 11 skýjað London 17 léttskýjað París 23 heiðskírt Amsterdam 20 heiðskírt Hamborg 17 skýjað Berlín 20 skýjað Vín 20 skýjað Moskva 16 heiðskírt Algarve 21 heiðskírt Madríd 28 heiðskírt Barcelona 20 heiðskírt Mallorca 21 léttskýjað Róm 20 léttskýjað Aþena 17 heiðskírt Winnipeg -2 snjókoma Montreal 8 léttskýjað New York 15 heiðskírt Chicago 7 alskýjað Orlando 25 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 18. apríl Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:44 21:11 ÍSAFJÖRÐUR 5:39 21:26 SIGLUFJÖRÐUR 5:21 21:09 DJÚPIVOGUR 5:11 20:43 Flestir Íslendingar ættu að þekkja svörtu eimreiðina sem stendur við Miðbakkann í Reykjavík. Hún vek- ur athygli ungra sem aldinna og má yfirleitt sjá börn að leik í eim- reiðinni á sumrin. Eimreiðinni, sem nefnist Minør, er að jafnaði komið fyrir á hafnarbakkanum í kringum sumardaginn fyrsta ár hvert. Þar fær hún að standa fram að fyrsta vetrardegi en hún er í vörslu Faxaflóahafna yfir veturinn. Hundrað ára saga Í ár eru hundrað ár síðan eim- reiðin lagði upp í sína fyrstu ferð hér á landi, en það var þann 17. apríl 1913. Hún var keypt hingað til lands vegna hafnargerðar og var járnbraut lögð frá Öskjuhlíð að Reykjavíkurhöfn, og síðar einnig frá Skólavörðuholtinu. Þessir stað- ir voru nýttir til grjóttöku fyrir gerð hafnarinnar. Seinna um sumarið barst liðs- auki, eimreiðin Pionér. Eftir braut- inni óku lestirnar og drógu á eftir sér vagna fulla af grjóti, en það var bæði notað til landfyllingar og í varnargarða hafnarinnar. Pionér er nú geymd á Árbæjarsafninu. Báðar voru lestarnar fram- leiddar í Þýskalandi árið 1892. Þær eru 4,9 metrar á lengd, þrír metrar á hæð og vega 13 og 15 tonn fullhlaðnar. Að jafnaði unnu 100 til 140 manns við hafnargerðina þau fjög- ur ár sem hún stóð yfir og var vinnan því veruleg lyftistöng fyrir atvinnulíf Reykjvíkinga á þessum tíma. Spellvirki við lestarteinana Lestarnar hafa ávallt vakið at- hygli bæjarbúa, bæði nú og áður. Í tímaritinu Sögu frá árinu 1973 er lýsing á ýmsum tilraunum manna við lestarteinana. Oft voru lagðir smáhlutir á borð við dósir og pen- inga og höfðu bæjarbúar gaman af því að sjá þá fletjast út þegar lest- in ók yfir hlutina. Oftar en ekki voru líka lagðar keðjur á teinana og þeyttust þær þá í burtu. Eitt sinn varð óhapp þegar lestin Pió- ner ók eftir teinunum. Þá höfðu einhverjir bundið keðjur við tein- ana. Lestin lenti á teinunum, fór af sporinu og valt. Ökumenn hennar sluppu þó ómeiddir. larahalla@mbl.is Ljósmynd/Árbæjarsafn Haldið af stað Minør tekin í notkun þann 17. apríl 1913 í Reykjavík. Eimreiðin við höfn- ina á sér langa sögu  Hundrað ár frá fyrstu ferð hennar  Notuð við hafnargerð í Reykjavík Ferminga gjafirnar fást í Álafoss ÁLAFOSS Álafossvegur 23, Mosfellsbær Opið: Mánud. - Föstud. 09:00 - 18:00 Laugard. 09:00 - 16:00 www.alafoss.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.