Morgunblaðið - 18.04.2013, Blaðsíða 10
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Fyrsta myndavélin sem égeignaðist var gömulFTB-Canon myndavélsem foreldrar mínir gáfu
mér þegar ég var enn í menntó.
Þá fór ég að fikta og var með að-
gang að myrkrakompu hjá pabba
vinkonu minnar, þar sem ég varði
miklum tíma,“ segir Gréta Guð-
jónsdóttir sem fór strax eftir stúd-
entspróf út til Hollands í nám í
ljósmyndun í listaháskólanum
A.K.I. „Ég valdi Holland vegna
þess að norsk pönkaravinkona mín
var líka á leið þangað. Ég hafði
sjálf verið pönkari í Noregi um
tíma, bjó þar með hústökufólki og
gerði margt skemmtilegt.“
Vantaði næringu
frá náttúru
Gréta var mikið í sveit sem
barn og fyrir vikið hefur hún allt-
af haft mikla þörf fyrir að vera úti
í náttúrunni. „Ég fann að mig
vantaði þessa næringu úti í Hol-
landi og notaði því síðasta árið á
námslánum til að næla mér í
kennsluréttindi og ég var fyrsti
ljósmyndarinn á landinu til fá slík
réttindi. Ég fór í æfingakennslu á
listasviði í Fjölbraut í Breiðholti
og síðan þá hef ég verið að kenna
ljósmyndun þar,“ segir Gréta og
bætir við að brúðarmyndatökur
haldist vel í hendur með kennslu-
starfinu. „Þegar það er sumarfrí í
skólanum er brjálað að gera hjá
mér í brúðarmyndatökum, þegar
skólinn er í jólafríi er nóg að gera
í barna- og fjölskyldumyndatökum
og í páskafríinu sinni ég
fermingarmyndatökum.“ Í brúðarmyndatökum lætur Gréta
íslenska náttúru gjarnan njóta sín
og einnig vill hún hafa myndirnar
óvenjulegar. „Ég hef til dæmis
tekið mynd af brúðhjónum við
pulsuvagninn þar sem þau fengu
sér eina með öllu, en þau bjuggu í
útlöndum og vildu hafa íslenskan
hversdagslegan raunveruleika í
brúðarmyndunum.“
Vann karlana í skotkeppni
Grétu hafði lengi langað til að
fara í Leiðsögumannaskólann og
hún dreif í því fyrir nokkrum ár-
um. „Mig langaði líka til að við-
halda þeim tungumálum sem ég
hef lært, hollensku, þýsku, norsku
og sænsku. Einu skiptin sem ég
hafði tækifæri til að nota þau voru
þegar ég rakst á útlendinga uppi á
hálendi og fjöllum, svo það lá
beint við að koma sér upp leið-
sögumannaréttindum. En fyrst
ákvað ég að næla mér í skot-
veiðileyfi, af því það snýst líka um
útivist. Ég hafði uppgötvað í
sólarlandaferð með börnunum
mínum að ég var mjög hittin með
byssur. Ég var eina konan sem
tók þar þátt í skotkeppni og ég
vann, bæði með riffil og skamm-
byssu. Ítölsku karlarnir voru nú
ekkert mjög ánægðir með að tapa
fyrir kvenmanni,“ segir Gréta og
hlær. „Ég veit ekkert betra en
vakna í kolniðamyrkri um vetur
og halda til fjalla með byssu og
leita uppi rjúpur, labba allan dag-
inn og koma svo heim með feng-
inn,“ segir Gréta og bætir við að
hún fari aldrei á veiðar án þess að
vera með myndavélina með sér í
bakpokanum. „Það væri gaman að
Gaman að kynnast
ólíkum heimum
Henni finnst gaman að ögra sjálfri sér og sækir óhikað inn á karlasvið. Hún fékk
sér skotveiðileyfi og tók meirapróf sem hún nýtir í vinnunni. Hún getur ekki unnið
níu til fimm vinnu en finnst best að vera með mörg járn í eldinum. Gréta
Guðjónsdóttir starfar sem ljósmyndari, kennari og leiðsögumaður.
Skytta Gréta veit fátt skemmtilegra en að fara á skytterí og njóta útiveru.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2013
Á wix.com getur þú gert þína eigin
vefsíðu þér að kostnaðarlausu. Ef þú
átt mikið af fallegri handavinnu í
skápunum þínum sem þig langar til
að selja, ert í tilraunastarfsemi í mat-
argerð, ert vísindalega þenkjandi og
berð saman rannsóknir, hefur þörf
fyrir að koma menningarlegri þekk-
ingu þinni á framfæri, ert skósali,
götusópari eða hvað sem er þá færð
þú tækifæri á Wix til að koma þínum
hugsunum eða verkefnum á fram-
færi. Á síðunni eru skref fyrir skref
leiðbeiningar um hvernig vefsíðu-
gerðin fer fram og þar eru líka útlits-
snið sem skipta hundruðum. Að-
standendur Wix bjóða notendum
sínum þjónustuaðstoð allan sólar-
hringinn. Nú er um að gera að leyfa
hugmyndunum að fara á flug, hripa
niður punkta um áhugamáli eða
vinnu, setjast fyrir framan tölvuna og
leika sér.
Vefsíðan www.wix.com
Gerðu þína eigin vefsíðu
Myndin Last Shop Standing verður
sýnd í kvöld klukkan 20 í Bíó Paradís
og verður hún aðeins sýnd einu sinni.
Myndin er byggð á samnefndri bók
eftir Graham Jones og fer í saumana
á því hvers vegna plötubúðum í Bret-
landi hefur fækkað um nærri tvö þús-
und á skömmum tíma. Spurningunni
um hvort plötubúðir muni heyra sög-
unni til er velt upp.
Að myndinni lokinni verður gleði á
staðnum þar sem plötusnúðar munu
halda uppi fjörinu. Lucky Records
verður með brot af því besta úr búð-
inni til sölu fyrir og eftir sýningu til
að svala vínylþorsta uppveðraðra vín-
ylfíkla. Miðaverð er 1.500 krónur.
Endilega...
farðu í bíó og
keyptu plötu
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Fjarðarkaup
Gildir 18.-20. apríl verð nú áður mælie. verð
Svínakótelettur, kjötborð ............ 1.298 1.698 1.298 kr. kg
Nauta Tbone, kjötborð................ 2.798 3.498 27.98 kr. kg
Hamborgarar m/brauði, 4x80 g .. 620 720 620 kr. pk.
SS sænskar kjötbollur, 750 g...... 1.037 1.249 1.037 kr. pk.
KF íslenskt heiðarlamb............... 1.398 1.598 1.398 kr. kg
Fjallalambs kubbasteik .............. 498 666 498 kr. kg
KF lambalærissneiðar villikr. ....... 1.898 2.198 1.898 kr. kg
Hagkaup
Gildir 18.-21. apríl verð nú áður mælie. verð
Holta BBQ vængir, 800 g............ 418 697 418 kr. pk.
Holta buffalóvængir, 800 g ......... 418 697 418 kr. pk.
Holta úrb. skinnl. bringur ............ 2.249 2.998 2.249 kr. kg
Íslandsnaut hamborg., 2x120g... 449 599 449 kr. pk.
Íslandslamb lambaprime ............ 2.924 3.898 2.924 kr. kg
SS grískar grísahnakksneiðar ...... 2.024 2.698 2.024 kr. kg
Maísbrauð ................................ 299 449 299 kr. stk.
Helgartilboðin
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís