Morgunblaðið - 18.04.2013, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2013
sama tíma um aðra helgi. Sjá nánar
á ratmanicure.wordpress.com.
Samþykkt var á fjölmennum
aðalfundi Einingar-Iðju í Hofi á
þriðjudagskvöldið, að láta skrifa
sögu verkalýðsfélaga á félags-
svæðinu frá upphafi.
Björn Snæbjörnsson, formaður
Einingar-Iðju, hældi félagsmönnum
á fundinum. „Það er alveg með ólík-
indum hvað þið félagsmenn góðir
hafið verið duglegir í félagsstarfinu
og gert vinnu okkar í stjórninni og
starfsmanna ánægjulega. Það er al-
veg ljóst að félagið endurspeglar
þann mikla auð sem liggur í fé-
lagsmönnum, fjölmargir hafa komið
til starfa í hinum ýmsum ráðum og
nefndum hjá félaginu. Einn ungur
félagsmaður sagði við mig um dag-
inn að hann hefði aldrei trúað því
að óreyndu að félagið væri svona
öflugt og væri að gera svo mikið
fyrir félagsmennina. Þessi ein-
staklingur var nýkominn í samn-
inganefnd félagsins og hafði ekki
áður verið virkur í félagsstarfi,“
sagði Björn.
Björn nefndi könnun sem Capa-
cent Gallup framkvæmdi fyrir fé-
lagið og AFL starfsgreinafélag.
„Við fengum aftur staðfest í könnun
Capacent Gallup, sem gerð var fyrr
í vetur, að fólk sé sátt með félagið.
Við bættum við okkur frá fyrra ári
um 3% hvað ánægju með félagið
varðar. Um 95% eru ánægðir með
þjónustuna og er það líka aukning
frá fyrra ári. Starfsfólk félagsins
þakkar fyrir sig og vonar að það
geti enn bætt sig.“
Mjög margt er á döfinni næstu
daga í menningarlífinu norðan
heiða eins og venjulega. Ástæða er
til að vekja sérstaka athygli á
Kirkjulistaviku sem framundan er í
Akureyrarkirkju, frá 21. til 28. apr-
íl. Á þriðja hundrað manns koma
fram að margvíslegum viðburðum í
kirkjunni og Hofi. Aðgangur er
ókeypis að öllum viðburðum nema
lokatónleikum Kórs Akureyr-
arkirkju og Sinfóníuhljómsveitar
Norðurlands. Sjá nánar á www.a-
kirkja.is.
Blússveit Þollýjar treður upp á
Græna hattinum í kvöld en á morg-
un verður „súpergrúppan“ MEIK
með tónleika þar. Hana skipa
Magni Ásgeirsson, Jóhann Hjör-
leifsson, Eiður Arnarson, Einar Þór
Jóhannsson, Jón Elvar Haf-
steinsson og Þráinn Árni Baldvins-
son. Sveitin leikur músík KISS.
Langi Seli og Skuggarnir verða
svo á hattinum á laugardagskvöldið.
Hjalti Jónsson tenór og Eyrún
Unnarsdóttir mezzósópran flytja ís-
lensk og erlend sönglög í bland við
þekktar aríur í Hofi í kvöld ásamt
Daníel Þorsteinssyni píanóleikara.
Hjalti og Daníel eru kunnir á Akur-
eyri en Eyrún er nýflutt heim frá
Vínarborg þar sem hún lærði söng.
Rúnar Eff var að senda frá sér
plötu og blæs til útgáfutónleika
ásamt fríðu föruneyti í Hofi á laug-
ardagskvöldið. Sérstakir gestir á
tónleikunum verða Jógvan Hansen,
Vignir Snær Vigfússon og Pontus
Stenkvist.
Síðast, en ekki síst eru það ár-
legir vortónleikar Karlakórs Akur-
eyrar – Geysis í Hofi á sunnudag-
inn. Einblínt verður á tímabilið frá
1930 til 1950 og lofað mjög fjöl-
breyttri söngdagskrá. Einsöngv-
arar kórsins ku fá sérstaklega að
njóta sín að þessu sinni, skv. til-
kynningu.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
List Anna Gunndís Guðmundsdóttir og Bjarney Anna Jóhannesdóttir í Hlöðunni þar sem sýning Bjarneyjar verður.
Menningarsprengja og
duglegur verkalýður
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Endurnýjað húsnæði Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri innanrík-
isráðuneytisins, og Björn Jósef Arnviðarson sýslumaður í gær.
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Dynkur heyrðist úr Vaðlaheiðinni
síðdegis í gær, svo mikill að ein-
hverjum datt jarðskjálfti í hug en
öðrum að byrjað væri að sprengja
fyrir Vaðlaheiðargöngum.
Starfsmenn ÍAV voru þar á
ferð, ekki þó að sprengja gat fyrir
bílaumferð heldur að laga svæðið
við fyrirhugaðan gangamunna. Al-
vöru sprengingar hefjast síðar.
Mikið endurnýjað húsnæði
stofnana innanríkisráðuneytisins að
Hafnarstræti 107 á Akureyri var
formlega opnað í gær eftir mikla
vinnu við breytingar. Þar eru til
húsa Sýslumaðurinn á Akureyri,
Héraðsdómur Norðurlands eystra
og nú síðast skrifstofa Þjóðskrár
Íslands á Akureyri.
Húsið hefur verið endurnýjað í
hólf og gólf að frátalinni þeirri hæð
hússins sem hýsir dómstólinn en sá
hluti hafði áður verið endurnýjaður.
Hjá sýslumanni starfa um 20
manns, sex hjá Héraðsdómi og 15
hjá Þjóðskrá. Starfsemi hennar hef-
ur aukist töluvert í höfuðstað Norð-
urlands undanfarið.
Bjarney Anna Jóhannesdóttir
opnar listsýningu í Hlöðunni í Litla-
Garði á laugardaginn. Bjarney, sem
er tvítug og með asperger heil-
kenni, sýnir tólf verk sem hvert og
eitt tengist lagi sem hún hefur sam-
ið og koma út á geisladiski. Að auki
er fjöldi málverka á sýningunni.
Bjarney segist hafa samið tón-
list í 4-5 ár og leikur á öll hljóð-
færin sjálf. Er að mestu sjálflærð á
þau. „Ég er ekkert ógeðslega góð á
neitt hljóðfæri en allt í lagi á öll,“
sagði hún í gær. Bjarney leikur á
eitt og annað: „trommur, ukulele,
gítar, pikka á píanó, eitthvað á
bassa, munnhörpu, stáltrommu,
klukkuspil – og svo syng ég.“
Anna Gunndís Guðmundsdóttir,
leikkona og frænka Bjarneyjar,
undirbýr sýninguna með henni.
„Við höfum unnið að þessu lengi;
fengum styrk fyrir einu og hálfu ári
frá Evrópu unga fólksins, sem er
menntaáætlun ESB og þetta er
fyrsta sýning Bjarneyjar og fyrsta
platan,“ segir Anna Gunndís.
Sýningin verður opin á laugar-
dag og sunnudag frá 14 til 18 og á
Opið: má-fö. 12:30-18 | Dalvegi 16a | Rauðu múrsteinshúsunum | Kóp. 201 | nora.is
Afsláttur
aðeins í
nokkra daga
Sumartilhlökkun
20% afsláttur af öllum vörum
Kammerkórinn Ópus 12 heldur
vortónleika í Laugarneskirkju
laugardaginn 20. apríl og hefjast
þeir kl. 16:00.
Kammerkórinn Ópus 12 er skip-
aður 12 söngvurum, sex konum og
sex körlum. Karlarnir eru allir
nema tveir úr Oddfellowstúkunni
nr. 11, Þorgeiri, og konurnar eru
allar eiginkonur bræðra í stúk-
unni. Kórinn hefur jafnan haldið
tónleika tvisvar á ári undanfarin
sex ár, aðventutónleika og vor-
tónleika. Auk þess hefur kórinn
sungið á tónleikum með öðrum
kórum, við guðsþjónustur, í sam-
kvæmum og við ýmis önnur tæki-
færi.
Efnisskráin er fjölbreytt en á
meðal höfunda eru Gunnar Þórð-
arson, Þorkell Sigurbjörnsson,
Tryggvi M. Baldvinsson og Tómas
R. Einarsson.
Stjórnandi kórsins frá upphafi
er Signý Sæmundsdóttir, óperu-
söngkona.
Ópus 12 með
vortónleika
Nýsköp-
unarþing verð-
ur haldið í dag
á Grand hóteli í
Reykjavík og
stendur frá
klukkan 8:30 til
10:30. Þar verð-
ur meðal annars
farið yfir nið-
urstöður nor-
rænnar rann-
sóknar, sem bendir til þess að
íslenskt reglugerðarumhverfi
virðist vera hagstætt, frum-
kvöðlamenningin góð og geta
frumkvöðla til að reka fyrirtæki
sömuleiðis.
Á þinginu flytur meðal annars
Glenda Napier, umsjónaraðili
rannsóknarinnar, erindi. Þá mun
Hilmar Veigar Pétursson, for-
stjóri CCP, m.a. flytja erindi um
það hvernig það er að vera
stjórnandi í hraðvaxtarfyrirtæki.
Nýsköpunarþing
haldið í dag
Hilmar Veigar
Pétursson
STUTT
Samtökin Regnbogabörn standa fyr-
ir fyrirlestraröð í Háskólabíói dag-
ana 22., 23. og 24. apríl
Fram kemur í tilkynningu, að þar
verði teknir upp 40 fyrirlestrar um
hinar ýmsu forvarnir og fræðslu-
málefni.
Aðgangur verður ókeypis en
panta verður miða á vefnum midi.is.
Fyrirlestraröð á veg-
um Regnbogabarna