Morgunblaðið - 18.04.2013, Side 18

Morgunblaðið - 18.04.2013, Side 18
BAKSVIÐ Kristján Jónsson kjon@mbl.is Hart hefur verið tekist á um heil- brigðismálin á kjörtímabilinu enda ein af grunnstoðum velferðarkerfis- ins og langstærsti einstaki útgjalda- liðurinn á fjárlögum. Á að byggja nýj- an og hátæknivæddan Landspítala? Hvernig á að efla heilsugæsluna á landsbyggðinni og bregðast við vanda fámennra staða þar sem langt er í öfl- ug sjúkrahús? Og hvað um þjónustu fyrir aldraða, er rétt að leggja meiri áherslu á heimahjúkrun? Hvernig á að draga úr lyfjakostnaði en tryggja um leið að allir fái þau lyf sem þeir þurfa? Niðurskurðarhnífnum hefur verið óspart beitt, skjólstæðingar greiða sí- fellt meira sjálfir af kostnaðinum. Sjúkrahúsbyggingar grotna niður, mygla herjar á Landspítalanum, tækjum er haldið saman með plástr- um og mikill urgur hefur verið hjá starfsmönnum vegna kaups, lélegs aðbúnaðar og vinnuálags. Útgjöld spítalans hafa verið minnkuð um lið- lega 20% síðustu árin, mikilvæg, dýr tæki eru löngu komin á grafarbakk- ann vegna aldurs. Sumir starfsmenn hafa hætt og fengið vinnu í Noregi, læknar sem ætluðu heim frá útlönd- um hafa hætt við. Álag og launakjör Og hart var deilt á Guðbjart Hann- esson heilbrigðisráðherra þegar hann hækkaði laun forstjóra Landspítal- ans, Björns Zoëga, í fyrra. Hjúkrun- arfræðingar sögðust ekki eiga síður skilið umbun, sama sögðu sumir læknar og loks sjúkraliðarnir. Ráð- herra dró þessa umdeildu launa- hækkun til baka og baðst afsökunar. En ungir læknar segjast vinna svo mikið að óverjandi sé og krefjast um- bóta. Deilurnar halda áfram. Fullyrt er að álag á starfsfólk sé farið að bitna á sjúklingum en yfirmenn Landsspítal- ans hafna því, segja engar tölur eða rannsóknir styðja þá staðhæfingu. Nýlega sagði Sigurður Guðmunds- son, fyrrverandi landlæknir, að að- haldið hefði verið svo harkalegt síð- ustu árin að spítalinn væri að þrotum kominn. Hann velti fyrir sér hvort stjórnvöld hefðu misnotað langlund- argeð starfsmanna, gengið á lagið og hert stöðugt niðurskurðinn vegna þess að ekki var gerð uppreisn. En á sama tíma hafi verið veittir milljarðar króna í að bjarga illa reknum fjár- málastofnunum, ákveðið að grafa jarðgöng og milljarður farið í um- ræðu um stjórnarskrá. Raða þurfi málum í forgang, öflug heilbrigðis- þjónusta eigi að vera ofar en Byr og SpKef. „Spítalinn er yfirfullur. Legu- plássum á lyflækningadeildum hefur fækkað um 16% frá 2008 og bráðainn- lögnum fjölgað um 24% frá 2009. Af- leiðingin er meðal annars sú að fólk liggur reglulega á göngum. Það er einfaldlega þjóðarskömm. Álag er mikið og var óvenjumikið í byrjun árs. Saman fóru faraldrar Tækjaskortur og álag á starfsfólk  Kaup og kjör á heilbrigðisstofnunum hafa verið efst á baugi en líka deilur um hátæknisjúkrahús  Flest framboð og flokkar vilja fresta byggingu nýja spítalans eða endurskoða áætlanirnar Morgunblaðið/Styrmir Kári Ósáttar Hjúkrunarfræðingar mótmæltu í fyrra lélegum kjörum og afhentu velferðarráðherra undirskriftalista og launaseðla sína. Stiklað á stefnumálum flokkanna Vill m.a. að sameiginlegt sjúkratrygg- ingakerfi tryggi öllum íbúum jafnan aðgang að heilbrigðiskerfinu. Einnig að forvarnir vegna andlegra og líkamlegra kvilla séu öflugar.Vitund al- mennings um „heilsu, gott mataræði og hreyfingu sé aukin“ og efld. Björt framtíð XA Vill heilbrigðisþjónustu sem tryggi sem jafnast aðgengi óháð búsetu, öflug heilsugæsla sé fyrsti viðkomustaður. Sérþjónusta í heilsugæslu og teymisvinna séu efld. Lögð er áhersla á að bæta þurfi kjör heilbrigðisstarfs- manna og draga þannig úr brotthvarfi innan stéttarinnar. Endurskoða þurfi áform um nýbyggingu Landspítalans [hátæknisjúkrahús]. Framsóknarflokkurinn XB Vilja stöðva strax byggingu há- tæknisjúkrahúss við Hringbraut og athugameð byggingu nýs spítala á Vífilsstöðum. Einnig vill flokkurinn bjóða læknum að reka heilsugæslustöðvar, efla þjónustuna á landsbyggðinni og heilsutengda ferðþjónustu. Hann vill meiri áherslu á forvarnir og taka upp „lýsisgjafir í grunnskólum“. Hægri grænir XG Vill að allir landsmenn njóti góðrar heil- brigðisþjónustu, óháð búsetu. Skipulag hennar sé á forsendumneytenda. Einstaklingar hafi áhrif í samræmi við stefnu um „notendastýrða, persónulega aðstoð“. Starfsfólkið í heilbrigðisgeiranum sé hin raunverulegu verðmæti hans. Kostir fjölbreyttra rekstrarforma nýttir til að ná árangri og hagkvæmni. Sjálfstæðisflokkurinn XD Vill tryggja örugga heilbrigðisþjónustu um allt land og innleiða þjónustustýr- ingu í áföngum. Hann vill endurskoða áform um nýbyggingu hátæknisjúkrahús en efla starfsemi Landspítalans. Lands- menn eigi að geta notið þjónustu í heimabyggð. Flokkur heimilanna XI Flokkurinn vill styrkja heilbrigðis- þjónustuna og efla fyrirbyggjandi heilsugæslu. Sálfræðiþjónusta sé hluti af heilbrigðiskerfinu, það muni skila sér í sparnaði á öðrum sviðum kerfisins og í félagsþjónustu. Hann segir að öruggt aðgengi að fæðingarþjónustu sé grundvallar- mannréttindi. Regnboginn XJ Vill m.a. setja heimahjúkrun og aðstoð við aldraða í forgang.Öllum skuli tryggður réttur, óháð efnahag, til við- eigandi, aðgengilegrar og fullnægjandi heilbrigðisþjónustu ogmóta þurfi framtíðarstefnu í málaflokknum. Byggingu hátæknisjúkrahúss verði slegið á frest, bæta verði kjör og aðbúnað starfsfólks Landspítalans og á öðrum, opinberum sjúkrastofn- unum. Lýðræðisvaktin XL Vill koma á þjónustustýringu í heilbrigðiskerfinu og tryggja þannig eðlilegt flæði milli þjónustustiga. Byggt verði á þjónustu stóru sjúkra- húsanna í Reykjavík og áAkureyri en þar sem samgöngur séu erfiðar og fjarlægðir miklar verði að bjóða upp á nauðsynlega grunnþjónustu áminni stofnunum. Jafna skuli greiðsluþátttöku fólks og innleiða hámark á slíkri þátttöku „vegna heilbrigðisþjónustu, tannlækn- inga, lyfja og hjálpartækja“. Samfylkingin XS Flokkurinn vill hefja nýja uppbygg- ingu heilbrigðiskerfisins, hann leggur áherslu á aukið sjálfstæði og fjölbreytni í rekstri stofnana og valddreifingu en leggst gegn einkavæðingu. Snúið verði frá miðstýringu af hálfu ráðuneytisins og forstjóraveldi á spítölunum. Tækja- og búnaðarkaup verði sett í forgang. Dögun XT Vill fjármagna heilbrigðiskerfiðmeð skattfé, starfrækja það á opinberum grunni og beinn kostnaður sjúklinga sé í lágmarki. Kerfið eigi að þjóna öllum, einkarekstur í ágóðaskyni eigi ekki heima „í kjarna velferðarþjónust- unnar“. Tryggja beri rétt sjúklinga, forvarnir, öfluga grunnheilsugæslu og öflugar rannsóknir í heilbrigðismálum. Vinstri Græn XV Flokkurinn er með stefnu til bráða- birgða í málaflokknum.Helstamálið er að áherslum í fíkniefnamálum verði breytt þannig að hætt verði að meðhöndla fíkla sem glæpamenn en litið á þá sem sjúklinga. Einnig vill hann bæta aðgengi að endurhæfingu og bjóða aðstandend- um sjúklinga fræðslu og ráðgjöf. Píratar XP 18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2013 Vélhefill WoodSter pt 85 Verð 69.900 m.vsk. Slípivél Scheppach bts 800 Verð 39.500 m.vsk. Laugavegi 29 sími 552 4320 www.brynja.is - brynja@brynja.is LYKILVERSLUN VIÐ LAUGAVEGINN TRÉSMÍÐAVÉLARNAR FÁST Í BRYNJU

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.