Morgunblaðið - 18.04.2013, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 18.04.2013, Blaðsíða 26
FRÉTTASKÝRING Guðni Einarsson gudni@mbl.is G ert er ráð fyrir því að tekjur Verkefnasjóðs sjávarútvegsins (VS) verði 440 milljónir á þessu ári. Árið 2010 voru tekjurnar 799 milljónir, sam- kvæmt upplýsingum úr atvinnuveg- aráðuneytinu. Verkefnasjóður sjávarútvegsins (VS) var stofnaður 2003. Fé úr hon- um skal varið til rannsókna og ný- sköpunar á sviði sjávarútvegs og til eftirlits með fiskveiðum. Sjóðurinn starfar í tveimur deildum, almennri deild og deild um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði. Tekjur sjóðsins byggjast á svo- nefndum VS-afla. Skipstjóri getur ákveðið að hluti afla reiknist ekki til aflamarks skips og landað honum sem VS-afla. Heimildin takmarkast við 0,5% af uppsjávarafla og 5% af öðrum sjávarafla. VS-aflinn er seld- ur á uppboðsmarkaði og renna 80% andvirðisins til VS en það sem eftir er til útgerðar og áhafnar skipsins. Reglum breytt um landanir Helsta skýringin á minnkandi tekjum VS er minna verðmæti land- aðs VS-afla. Upphaflega var allt fiskveiðiárið undir þegar kom að löndun VS-afla. Því gátu menn gert út á VS-afla í lok fiskveiðiárs þótt þeir hefðu lítið upp úr því. Árið 2011 var lögum breytt og heimild til að landa VS-afla, öðrum en uppsjáv- arafla, deilt niður á fjögur þriggja mánaða tímabil. Landa mátti 1,25% af aflamarki sem VS-afla á hverju tímabili. Ekki var hægt að færa ónýttar heimildir á milli tímabila. Samanburður á tölum um land- anir á þorski sem VS-afla sýnir að fiskveiðiárið 2008-2009 var landað 3.257 tonnum sem VS-afla. Fisk- veiðiárið 2009-2010 var VS-afli í þorski 2.851 tonn, en fiskveiðiárið 2011-2012 einungis 1.378 tonn. Frá 1. september 2012 er búið að landa rúmlega 834 tonnum af þorski sem VS-afla á þessu fiskveiðiári. Meira hefur verið landað af ýsu upp á síðkastið sem VS-afla en áður. Það mun bæta eitthvað upp tekju- tapið af minni löndun á VS-þorski. Í lok febrúar s.l. hafði verið landað 565 tonnum af ýsu sem VS-afla sam- anborið við 158 tonn á sama tímabili fyrra fiskveiðiárs. Einnig hefur bráðabirgðaákvæði sem sett var í lög um stjórn fiskveiða í desember 2011 haft áhrif til lækk- unar tekna VS. Þar var ákveðið að hluti af þeim peningum sem renna áttu til rannsóknasjóðsins færi tíma- bundið í ríkissjóð. Í reglum um Verkefnasjóð sjáv- arútvegsins og úthlutanir úr honum segir m.a. að fé úr almennri deild skuli „einungis úthluta til verkefna sem falla undir verkefnasvið og eru á vegum Hafrannsóknastofnunar- innar, fiskveiðieftirlits Fiskistofu og Matvælastofnunar, Veiðimálastofn- unar, Matís ohf. sem og Rann- sóknasjóðs um aukið verðmæti sjáv- arfangs (AVS-rannsóknasjóðs).“ Ráðherra ákveður í byrjun hvers árs hve miklu skuli verja úr sjóðnum til deildar Verkefnasjóðs sjáv- arútvegsins um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði. Tekjusamdrátt- urinn kemur fyrst og fremst niður á samkeppnistyrkjunum. Í fyrra voru veittir slíkir styrkir upp á samtals 150 milljónir en á þessu ári eru ein- ungis 20 milljónir handbærar í sam- keppnisstyrki. Frá árinu 2008 og til ársins í fyrra voru veittar samtals rúmlega 523 milljónir króna til sjávarrannsókna á samkeppnissviði á verðlagi hvers árs. Styrkir úr samkeppnisdeild VS geta að hámarki verið 50% af áætl- uðum heildarkostnaði verkefna. Verkefnasjóðurinn fær minni tekjur Morgunblaðið/Árni Sæberg Löndun Skipstjóri getur ákveðið að landa 1,25% af aflamarki sem VS-afla á þriggja mánaða tímabili. Aflinn fer á markað og 80% renna til rannsókna. 26 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2013 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ríkisstjórninkom aðild-arferlinu „í var“, eins og það var kallað, til að koma í veg fyrir að umsóknin yrði aft- urkölluð á þessu kjörtímabili og til að forðast að kosningarnar snerust um Evrópusambandsaðild. Þetta var herbragð aðildarsinna og átti að forða Samfylking- arflokkunum frá fylgistapi enda gæti ekki farið nema illa að leggja höfuðáherslu á mál sem meginþorri almennings er mótfallinn. Svo kom í ljós að frambjóð- endurnir gátu ekki stillt sig. Þeir fundu sig knúna til að tönnlast á málinu eina og hafa gert það hvar sem þeir koma og hvenær sem þeir stinga nið- ur penna. Í stað þess að reyna að sýna kjósendum fram á að samfylkingarmenn, hvar í flokki sem þeir standa, hafi annað og meira fram að færa en að selja Ísland inn í Evr- ópusambandið, hafa þeir ekki talað um annað. Evrópusam- bandsaðild er eina lausnin og ef farið verður að ráðum sam- fylkingarmanna getur Ísland innan skamms gengið í sam- bandið, rétt eins og haldið var fram fyrir fjórum árum. Árni Páll Árnason, núver- andi formaður Samfylking- arinnar, sagði fyrir fjórum ár- um að samningur gæti legið fyrir ári síðar, eða „snemma sumars 2010“. Nú, fjórum árum síðar, er hann jafn sann- færður um að hægt verði að ljúka viðræðum á jafn skömmum tíma, eða fyrir árslok 2014, og telur það einu leiðina fyrir Ísland. Og hann hefur líka svarað því hvað gerist að hans áliti ef Ísland gengur ekki í Evrópu- sambandið og hann segist hafa algjörlega útfært plan um það. „Það er plan um lakari lífs- kjör, minni velferð og meiri sjálfsþurftarbúskap,“ segir formaðurinn. Þetta er því miður það álit sem frambjóðendur Samfylk- ingarinnar, hvar í flokki sem þeir standa, hafa á landi og þjóð. Þeir telja ómögulegt að Ísland geti staðið sjálfstætt og að hér sé hægt að halda uppi góðum lífskjörum án þess að fela embættismönnum í Brussel stjórn landsins. En hvernig skyldi þá standa á því að Ísland lyfti sér á lið- inni öld sjálft upp í fremstu röð þjóða og er þar enn þrátt fyrir efnahagsáföll? Þá voru að vísu engir frambjóðendur Samfylkingar fullir vanmátt- arkenndar að þvælast fyrir framfaramálum með alls kyns sérvisku, en ætla þeir að skýra meintar breyttar forsendur með því einu? Hvers vegna eru frambjóðendur sam- fylkingarframboð- anna svo fullir van- máttarkenndar?} Á Ísland enga von? Flestum öðrumen forystu- mönnum rík- isstjórnarflokk- anna er orðið ljóst að áróðurinn sem keyrður hefur ver- ið áfram undir slagorðinu „landið er að rísa“ er ekkert annað en einmitt það; áróður. Jóhanna Sigurð- ardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon, staðgengill forsætisráðherra, hafa lengi látið áróðursmenn sína rita greinar og ræður um að birt hafi til í efnahags- málum. Minni spámenn á vinstri vængnum hafa fylgt í kjölfarið og dreift sama áróðrinum. Í gær kynnti greiningar- deild Arion banka sjónarmið sín um horfur í efnahags- málum og var sú umfjöllun öllu raunhæfari en það sem vinstri flokkarnir hafa borið á borð fyrir landsmenn. Í spá greiningardeildarinnar kemur fram að verði ekki breytingar á stefnunni í efna- hagsmálum sé út- lit fyrir enn hæg- ari vöxt en verið hafi. Bent er á að höftin séu mikið vandamál og að verulega skorti á fjárfestingar í atvinnulífinu til að knýja hagvöxtinn áfram. Í umfjölluninni kemur einn- ig fram að verði skipt um gír í efnahagsmálum megi auka hagvöxt hratt og mikið. Þetta er hvorki ný uppgötv- un né óvænt tíðindi en vandi íslensks almennings hefur ver- ið að ríkisstjórnarflokkarnir og fylgiflokkar þeirra hafa engan skilning haft á því að at- vinnulífið verði að fá að dafna eigi hagkerfið að geta vaxið og lífskjör fólks batnað. Þeir telja að sérviska og sundurlyndi muni í framtíðinni brauðfæða landsmenn og áhyggjum veld- ur að enginn frambjóðandi þessara flokka hefur stigið fram og talað með öðrum hætti en fyrrnefndir forystumenn. Alger samstaða er meðal frambjóðenda vinstri flokkanna um skaðlegu efnahagsstefnuna} Minni spámennirnir og hin tvö Þ að er enginn gleðibragur yfir kosn- ingabaráttu Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Vinstri grænna enda eru þetta klofnir flokkar. Ekki kemur það á óvart þegar vinstriflokkar eins og þeir tveir síðastnefndu eiga í hlut. Vinstrimenn hafa alltaf átt í basli með að koma sér saman um hlutina og hægri- menn hafa getað hallað sér makindalega aftur og látið vinstrimenn um að tortíma eigin flokk- um. Nýlega steig formaður Vinstri grænna fram og sagði hættu á að flokkurinn þurrkaðist út af þingi. Þessum árangri hafa vinstri grænir náð einir og óstuddir, enda verstu óvinir sjálfra sín. Samfylkingin hefur svo misst fylgi til flokks sem var sérstaklega stofnaður til að þingmenn sem óttuðust um þingsæti sín héldu vinnunni. Samfylkingin hefur síðan enn aukið á fylgisleysið með ein- hverri vitleysislegustu kosningabaráttu seinni tíma þar sem eingöngu er lögð áhersla á mál sem þjóðin hefur lítinn sem engan áhuga á. Það þarf djúpsálarfræðing til að skilja hvað Samfylkingunni gengur til með því að hrekja kjós- endur svo markvisst og meðvitað frá sér. Staða Sjálfstæðisflokksins er svo sérkapítuli. Flokk- urinn ætti að hafa öll tromp á hendi eftir valdatíð einnar óvinsælustu ríkisstjórnar seinni tíma. Innan Sjálfstæð- isflokks skyldi maður ætla að menn væru samhentir og glaðbeittir og gengju fagnandi til kosningabaráttu. Í stað- inn logar flokkurinn í innanflokksátökum. Nýleg skoð- anakönnun sýndi almælt tíðindi, sem sagt þau að varaformaður flokksins, Hanna Birna Kristjánsdóttir, nýtur umtalsvert meiri hylli kjósenda en formaðurinn, Bjarni Benedikts- son. Formaðurinn gat ekkert annað gert í framhaldinu en að snúa sjónvarpsþætti upp í tilbrigði við grátklökkan Opruh Winfrey þátt sem kallaði á samúð þeirra sem á horfðu. Um leið kom formaðurinn því vandlega til skila að stuðningsmenn Hönnu Birnu væru varasöm hjörð sem ynni gegn sér. Í framhaldinu var þeirri hugmynd svo plantað að Hanna Birna Kristjánsdóttir væri klækjapólitíkus. Ekki verða þessar aðferðir til að sætta fylkingar innan flokksins því varla munu stuðningsmenn Hönnu Birnu taka því þegjandi að vegið sé að henni á þennan hátt. Hún er stjórnmálamaður sem nýtur mikils og umtalsverðs trausts, langt út fyrir raðir flokksins. Nú er með ýmsum ráðum reynt að skaða ímynd hennar. Ekki er geðfellt að horfa upp á þá at- lögu. Hvað gerist næst? Kjósendur hljóta að fylgjast spenntir með sápuóperunni í Sjálfstæðisflokknum sem er orðin mun áhugaverðari en sjálf kosningamálin. Og sápuóperan heldur áfram: Lifa Vinstri grænir kosningarnar af? Nær Samfylkingin 10 prósenta fylgi? Kemur Bjarni Benedikts- son Sjálfstæðisflokknum upp í 30 prósenta fylgi og bjarg- ar þannig pólitísku lífi sínu? Þessu og mörgu fleiru verður svarað í æsispennandi lokaþætti laugardaginn 27. apríl í opinni dagskrá. kolbrun@mbl.is Kolbrún Bergþórsdóttir Pistill Pólitísk sápuópera STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Hafrannsóknastofnun hefur og þegið hæstu styrkina úr al- mennri deild Verkefnasjóðs sjávarútvegsins. Stjórnvöld tóku þá ákvörðun að halda úti hafrannsóknum, þrátt fyrir þrengingar í þjóðarbúskapnum. Almenna deildin mun hafa 545 milljónir til úthlutunar nú. Gert er ráð fyrir að stofnunin fái 451 milljónar styrk í ár og 15 milljónir til að ráða sum- arstarfsmenn. Þá fari 8,7 millj- ónir til síldarrannsókna í Breiðafirði og 35 milljónir til Matís. Hafrannsóknir ALMENN DEILD VS STYRKIR RANNSÓKNIR STOFNANA Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.