Morgunblaðið - 18.04.2013, Side 27

Morgunblaðið - 18.04.2013, Side 27
27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 2013 Ég hef trú á því að á átta árum geti Íslend- ingar byggt samfélag sem verði með þeim best settu í Evrópu. Samfélag sem getur veitt ungu fólki áhuga- verð og krefjandi störf, þar sem atvinnu- leysi er í lágmarki og kaupmáttur ráðstöf- unartekna með þeim hæsta í Evrópu. Mig langar að nefna fimm atriði sem ég tel að skipti máli í þessu samhengi: Tengslin við Evrópu og norðurskautsmál Ég hef lengi verið þeirrar skoð- unar að við getum ekki búið við ís- lensku krónuna sem okkar gjald- miðil til framtíðar. Ef horft er á hvernig íslenska krónan hefur styrkst og veikst til skiptist á 12 ár- um er ljóst að slíkar sveiflur eru al- gerlega óviðunandi. Því er brýnt að finna framtíðarlausn. Sumir vilja taka einhliða upp annan gjaldmiðil. Aðrir vilja láta reyna á aðild- arsamning við Evrópusambandið og í kjölfarið taka upp evru. Flest bendir til að hvorugur þessara kosta sé raunhæfur við núverandi aðstæður. Er þá enginn annar kost- ur en að vera áfram með íslensku krónuna? Við höfum nú þegar ágæt- an viðskiptasamning við Evrópu- sambandið. Margt bendir til að það séu fleiri ókostir en kostir við fulla aðild. Eru aðr- ar leiðir til? Nú er mikið rætt um norð- urskautsmál og enginn vafi er á að sú þróun sem þar er líkleg á að geta skapað okkur ný og spennandi tækifæri. Væri hugsanlegt að við gætum farið í víðtæk- ara samstarf við hluta af þeim þjóðum sem aðild eiga að Norð- urskautsráðinu? Væri hugsanlegt að við gætum myndað nýtt efna- hagsbandalag með Noregi, Fær- eyingum, Grænlendingum og Kan- ada? Viðskiptabandalag sem hefði ýmsar hliðstæður við Evrópusam- bandið, en að frátalinni þeirri miklu miðstýringu sem þar ríkir. Við- skiptabandalag þar sem minni ríkj- um innan þess væri heimilt að nota gjaldmiðil þeirra stærri? Lagning sæstrengs til Evrópu Lagning sæstrengs til Evrópu hefur lengi verið til umræðu á Ís- landi. Að mínu mati er lagning sæ- strengs góð leið til að bæta lífskjör á Íslandi. Með sæstreng fengjum við mun meiri þjóðhagslegan arð af orkulindunum heldur en við höfum fengið til þessa af stóriðju. Við gæt- um skipulagt og tímasett nýjar virkjanir þannig að um stöðugar ár- legar framkvæmdir yrði að ræða til langs tíma. Framkvæmdirnar hefðu þannig góð áhrif á efnahagslífið. Skynsamlegt væri að gefa íslensk- um lífeyrissjóðum kost á að koma að slíkri uppbyggingu, t.d. með sameiginlegu félagi sem ætti 70% hlutafjár í sæstrengnum og fengi að kaupa 30% hlutafjár í Landsvirkjun. Lagning sæstrengs er stærsta verk- efnið til að bæta lífskjörin í landinu frá því að við færðum landhelgina út í 50 og síðar 200 mílur. Sátt um sjávarútveginn og aukin verðmætasköpun Í meira en tvo áratugi hafa staðið yfir deilur um með hvaða hætti eigi að standa að stjórn fiskveiða og hvað sé eðlilegt að sjávarútvegurinn greiði í afnotagjald fyrir nýtingu á auðlindinni. Enginn vafi er á að upptaka aflamarkskerfis í fisk- veiðum skipti sköpum fyrir mögu- leika greinarinnar til hagræðingar í rekstri. Ekkert kerfi er gallalaust og endalaust má deila um réttlæti upphaflegrar úthlutunar. Stað- reyndin er hins vegar sú að stór hluti allra veiðiheimilda í dag hefur þegar skipt um hendur. Nú skiptir máli að ná sátt um sjávarútveginn. Stjórnmálamenn verða að samein- ast um skipulag sem hámarkar verðmæti sjávaraflans og skilar um leið eðlilegri leigu til eiganda auð- lindarinnar. Ein leið sem sameinar þetta hvort tveggja væri að byggja í aðalatriðum á núverandi fisk- veiðistjórnunarkerfi en kalla veiði- heimildirnar inn í áföngum á 40 ár- um. Innkallaðar veiðiheimildir yrðu síðan boðnar upp á sama grundvelli. Andvirði seldra heimilda væri þá í raun það veiðigjald sem sjávar- útvegurinn greiddi fyrir viðkomandi fiskveiðiár. Auðlindagjaldið mundi þannig ákvarðaðast á markaðs- legum forsendum á hverjum tíma. Eflaust finnst sumum 40 ár langur tími en hafa ber í huga að þetta svarar í reynd til þess að starfandi fyrirtæki haldi kvótanum óskertum í 20 ár. Þetta verður að teljast lág- markstími með tilliti til þeirra miklu fjárfestinga sem liggja að baki í greininni. Sjávarútvegurinn hefur mikla möguleika til að skila enn frekari verðmætum fyrir þjóðarbúið en til þess þarf að efla rannsóknar- og þróunarstarfsemi sem næst ekki nema að sköpuð verði sátt um þessa atvinnugrein. Rekstur fjárfestingarsjóða Til þess að leggja grunn að aukn- um þjóðhagslegum verðmætum og nýjum störfum er nauðsynlegt að halda uppi öflugri fjárfesting- arstarfsemi í landinu. Langstærstur hluti alls sparnaðar í íslensku sam- félagi liggur hjá lífeyrissjóðakerfinu og því nauðsynlegt að þeir komi myndarlega að fjárfestingum í ís- lensku atvinnulífi. Í árslok 2009 stofnuðu lífeyrissjóðirnir meðal annars sameiginlegan vettvang í þessu skyni, Framtakssjóð Íslands, sem hafði það hlutverk að koma að endurreisn íslenskra fyrirtækja eft- ir hrunið. Á tveimur árum fjárfesti FSÍ í átta fyrirtækjum fyrir um 30 milljarða króna og er talið að hagn- aður af starfsemi sjóðsins til þessa sé af svipaðri stærðargráðu. Sem dæmi um þjóðhagslegt mikilvægi þess að lífeyrissjóðirnir fjárfesti í atvinnulífinu má nefna að frá því að þeir komu fjárhagslega að end- urskipulagningu Icelandair 2010 hefur störfum hjá félaginu um nær 800 ársverk. Efling náms í tækni- og raungreinum Á næstu árum og áratugum verð- um við að nýta hugvitið til að skapa aukna hagsæld í landinu. Efla þarf nýsköpun á öllum sviðum og þar gegnir háskólasamfélagið lykilhlut- verki. Mörg af okkar öflugustu fyr- irtækjum eiga rætur í háskóla- samfélaginu. Það mun vanta fjölda tæknimenntaðra einstaklinga á næstu árum til að Ísland verði bet- ur samkeppnishæft í alþjóðlegu samhengi. Við eigum að vera óhrædd við eins og Finnar að beina nemendum í þá átt sem samfélagið þarf á að halda. Það er nauðsynlegt að gert verði sérstakt átak á allra næstu árum til að fjölga ein- staklingum sem fara í raungreina- og tækninám. Það er forsenda þess að við getum skapað þau lífskjör sem við viljum stefna að á næstu átta árum. Eftir Finnboga Jónsson » Lagning sæstrengs er stærsta verkefnið til að bæta lífskjörin í landinu frá því að við færðum landhelgina út í 50 og síðar 200 mílur. Finnbogi Jónsson Höfundur er eðlisverkfræðingur og rekstrarhagfræðingur. Ísland getur verið með ein bestu lífskjör í Evrópu árið 2021 Á öllum aldri Það var gríðarmikil spenna á leik Vals og Stjörnunnar í úrslitakeppni kvenna í handknattleik í gærkvöldi þótt ekki megi lesa það úr andlitum áhorfendanna. Ómar Nýlega var afhjúpuð ótrúleg svikamylla gagnvart íbúum á Reykjanesi. Ekki er hægt annað en opinbera hana. Málavextir eru þessir: Haustið 2011 var boðað til fundar í Eldey á Ásbrú. Þangað var stefnt öllum bæjarstjórum á Reykjanesi, fulltrúum atvinnu- lífs, skóla, þróunarfélaga o.s.frv. Allstór hópur mætti. Fundarboð- endur komu fimm talsins í nafni Evrópusambandsins. Og boð- skapurinn var ekkert smáræði: Ákveðið var að bjóða Reykjanesi rúmlega einn milljarð ÍKR í svokallaða IPA-styrki. Vegna hins bága atvinnuástands á Reykjanesi hefði verið ákveðið að fé þetta rynni til Suð- urnesja. Viðstaddir tóku þessu kostaboði af stillingu en fögnuði þó. Eftir miklar og góðar skýringar á ferlinu varð niðurstaðan sú að skipaðir yrðu tveir vinnuhópar til að vinna hvor sína tillöguna. Hvorki meira né minna en fimm sérfræðingar, launaðir, voru fengnir til að vinna með hópunum. Allt á kostnað Evr- ópusambandsins. Best og fyrst! Skipaðir voru tveir hópar sem tóku þegar til starfa og unnu sleitulaust næsta árið með dyggri aðstoð ráðgjafanna og góðri hvatningu. Eftir nokkurra mánaða starf var tilkynnt um „smá“ breytingu: Peningarnir ættu ekki allir að fara til Suðurnesja heldur yrði þeim jafnað milli landsvæða: „En þið hafið svo gott for- skot og eruð með svo flottar hugmyndir að þið skulið ekki hafa áhyggjur,“ voru huggunarorð forkólfsins við undrun heimamanna. Og enn urðu breytingar: Eftir um átta mánaða vinnu var tilkynnt – án skýringa eins og í fyrra skiptið – að peningarnir væru í raun sam- keppnissjóður þar sem bestu hugmyndir myndu fá mest. Og aftur vorum við hug- hreyst: „Engar áhyggjur. Þið erum með flott- ustu verkefnin og mesta forskotið.“ „Enda með sérfræðinga frá Evrópusambandinu til að gera umsóknir ykkar.“ Milljarður verður að engu Svo var tillögunum skilað, færðar í réttan búning og hinir reyndu ráðgjafar lofuðu verk- ið, enda unnu þeir það með okkur á vikulöng- um undirbúningsfundum. Nú væri bara að bíða því allt yrði þetta að fara í gegnum flókið ferli. Tillögur heimamanna voru tvær: Önnur um auðlindagarð og hin um rann- sóknar- og kennslumiðstöð. Báðar miðuðu að því að efla menntun, rannsóknir, nýsköpun og atvinnulíf en umfram allt samstarf fyrirtækja og stofnana á svæðinu. Ráðgjaf- arnir launuðu hrósuðu hugmyndum heimamanna í hásterkt og töldu nef sitt reynda segja að þarna færu hugmyndir sem rynnu í gegn. Algjör samstaða ríkti meðal allra sem að komu. Ætla má að samtals hafi um 50 manns komið með ýmsum gætti að tillögunum og verulegum tíma varið í úr- vinnslu. Væntingar voru miklar enda sérfræð- ingarnir ósparir á að veifa þeim. Um einu og hálfu ári síðar komu svo niðurstöðurnar. Millj- arðurinn ríflegi sem átti að koma til Reykja- ness reyndist vera 0 krónur. Já, þetta er ekki ritvilla. Ekki ein króna kemur hingað því önn- ur verkefni „voru talin betri“. Hvers vegna sögðu þau ósatt? Einhvern veginn svona er ferlið. Ég fullyrði að þetta sé með einkennilegri uppákomum. Ekki amast ég við þeim verkefnum sem styrk- inn hljóta og samfagna þeim sem hlutu (veit lítið um þau). Ég hins vegar fordæmi þá sem að ferlinu stóðu. Þeir beinlínis lugu að sam- félaginu hér suður frá. Aldrei stóð til að fjár- munir þessir rynnu allir til Suðurnesja. Heið- arlegt fólk hefði sagt frá því strax í byrjun. Sumir af þessum góðu ráðgjöfum reyndust svo líka vera á launum í öðrum byggðarlögum. Ugglaust hafa þau flutt sömu ræðuna þar – lofað gulli og grænum skógum. Hafi þau skömm fyrir óheiðarleg og óvönduð vinnu- brögð þar sem heilt landsvæði er hreinlega platað. Þetta eru svik af verstu gerð Eftir Hjálmar Árnason » Þau veifuðu 1,5 milljörðum framan í samfélagið á Reykjanesi, byggðu upp miklar væntingar en drógu svo allt til baka og sviku öll hin fögru fyr- irheit. Hjálmar Árnason Höfundur er framkvæmdastjóri Keilis. Svik við Reykjanes

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.